Fréttablaðið - 26.01.2023, Blaðsíða 62
Rósbjörg Jónsdóttir er við-
skiptafræðingur að mennt
með sérhæfingu á sviði
samkeppnishæfni greininga,
klasastjórnunar og sam-
félagslegrar ábyrgðar.
Rósbjörg hefur víðtæka og árang-
ursríka starfsreynslu úr íslensku
atvinnulífi. Til að mynda var hún
framkvæmdastjóri Ráðstefnu-
skrifstofu Íslands 2000–2005 og
markaðsstjóri Hótel Holts 2005–
2010. Á árunum 2011–2016 starfaði
Rósbjörg sem ráðgjafi hjá Gekon og
á þeim tíma sérhæfði hún sig á sviði
klasastjórnunar og gagnkvæms
virðisauka (shared value).
Rósbjörg kortlagði og mótaði
Íslenska ferðaklasann (2012–2016),
lagði grunninn að alþjóðlegum
ráðstefnum sem hafa stutt og eflt
íslenskt samfélag, þar á meðal
Iceland Geothermal Conference
2013 og 2016 og What Works in
Social Progress. Þá leiddi Rósbjörg
umsókn Íslands um að fá til lands-
ins WGC2020.
„Ég hef stýrt mínu eigin ráð-
gjafarfélagi, Cognitio, frá 2016.
Cognitio hefur jafnframt haft veg
og vanda af framsetningu Fram-
faravogarinnar sem metur stöðu
sveitarfélaga út frá félagslegum og
umhverfislegum þáttum og segir
til um hvernig staðan er á þeim
svæðum sem skoðuð eru.“
Rósbjörg er fulltrúi SPI, Social
Progress Imperative, á Íslandi, en
SPI gefur árlega út vísitölu félags-
legra framfara (social progress
index) á heimsvísu.
Hún sat í stjórn Festu 2016–2018
og situr í stjórn faghóps Stjórnvísi
um samfélagsábyrgð og er stjórnar-
maður í Kolviði.
Rósbjörg tók við sem fram-
kvæmdastjóri Orkuklasans vorið
2022.
Að sögn Rósbjargar fagnar
Orkuklasinn tíu ára starfsafmæli í
ár. „Hann var formlega stofnaður
2013, fyrst sem jarðvarmaklasi en
útvíkkaði fókusinn 2018–19 og
horfir til jarðhita, vatnsafls, vinds
og rafeldsneytis. Orkuklasinn hefur
verið brautryðjandi á sviði orku-
mála þar sem horft er til þverfaglegs
samstarfs og haft mikil áhrif, ekki
síst þegar horft til þess að byggja
upp Ísland sem sýningarglugga
Orkuklasinn þverfaglegur
klasavettvangur atvinnulífs
Starfsemi Orku-
klasans hefur að
sögn Rósbjargar
sjaldan eða
aldrei verið
mikilvægari en
nú, en klasinn
fagnar 10 ára
afmæli í ár.
FRÉTTABLAÐIÐ/
SIGTRYGGUR ARI
fyrir endurnýjanlega orku.“
Orkuklasinn er þverfaglegur
samstarfsvettvangur atvinnulífs,
háskólaumhverfis, opinberra aðila,
fjárfesta/fjármögnunaraðila og
frumkvöðla, sem eiga hagsmuna að
gæta varðandi framleiðslu, nýtingu
og dreifingu orku og orkutengdrar
starfsemi og nær til allrar virðis-
keðjunnar.
Að sögn Rósbjargar er leiðarljós
vettvangsins að stuðla að aukinni
samvinnu, þekkingarmiðlun og
framþróun. Með margvíslegum
uppákomum, viðburðum og
fræðslu skapi Orkuklasinn félögum
sínum aukin tækifæri til frekari
verðmætasköpunar með beinum
og óbeinum hætti.
„Það er mikilvægt að huga að
jafnvægi kynjanna,“ segir Rósbjörg.
„Öflugar konur hafa verið að hasla
sér völl á sviði orkutengdrar starf-
semi og fögnum við því og hvetjum
ungar konur til að skapa sér
atvinnutækifæri innan greinar-
innar því hér eru gríðarleg tækifæri
sem eru án landamæra.“
Starfsemi Íslenska orkuklasans
hefur að sögn Rósbjargar sjaldan
ef nokkurn tímann verið jafn mikil-
væg, enda klasasamstarf birtingar-
mynd nýsköpunar og þróunar þar
sem ávinningur heildarinnar sé
hafður að leiðarljósi.
„Klasasamstarf er talið ein
áhrifaríkasta leiðin til að knýja
áfram framþróun og aukna verð-
mætasköpun samfélaga og því
viljum við sem að þessum vettvangi
stöndum leggja okkar af mörkum
þegar við tökumst á við áskoranir
framtíðarinnar,“ segir Rósbjörg
Jónsdóttir hjá Orkuklasanum. n
Tilgangur
klasavettvangsins er:
n Stuðla að aukinni ný-
sköpun, stofnun sprota-
fyrirtækja, rannsóknum og
þróun
n Styrkja ímynd Íslands sem
lands endurnýjanlegrar orku
n Stuðla að aukinni verð-
mætasköpun, þekkingu og
færni aðildarfélaga
n Stuðla að þróun og út-
flutningi sérhæfðrar vöru
og þjónustu og verndun
hugverka
n Efla tengslanet og upplýs-
ingaflæði milli orkugeirans,
stjórnvalda og samfélagsins
Margþættur ávinningur
Framtíðarsýn:
Orkutengd starfsemi er
grunnur velferðar á Íslandi.
Með ábyrgri stjórnun við-
heldur og eflir greinin þau
lífsgæði sem hér ríkja og
tryggir efnahagslegar, sam-
félagslegar og umhverfis-
legar framfarir.
Virðisauki Orkuklasans:
Íslenski orkuklasinn gegnir
lykilhlutverki í því að við-
halda lífsgæðum og stuðlar
að aukinni samkeppnishæfni
félaga sinna með verkefna-
drifnu samstarfi þar sem
þekking, samvinna og fram-
þróun eru höfð að leiðarljósi.
Með því að draga félaga
saman þvert á virðiskeðjuna
og á atvinnugreinar er
stuðlað að þekkingaryfir-
færslu í báðar áttir þar sem
tilgangurinn er að stuðla að
aukinni framþróun. Fram-
þróun innan félaga, atvinnu-
greinar og samfélags.
Lykilstarfsemi og markmið:
Hlutverk Orkuklasans er
að efla samvinnu þvert á
félaga og greinar og hraða
mikilvægum úrbótum og
breytingum til aukinnar
framþróunar í orkutengdri
starfsemi. Miklar kröfur
eru gerðar á greinina til að
ná stórum og mikilvægum
markmiðum á sviði loftslags-
mála. En þar gegna orkumálin
stóru hlutverki. Á sama tíma
og áskoranir eru miklar,
skapast alla vega tækifæri og
mikilvægt að leggjast saman
á árarnar þar sem þess er
þörf. Með það að leiðarljósi
leggur Orkuklasinn áherslu á
þrjár víddir í sinni starfsemi á
komandi misserum sem allar
leiða til aukinnar samvinnu,
þekkingar og framþróunar:
n Nýsköpun og framþróun
n Alþjóðasamskipti og sam-
vinnu
n Fræðslu og þjálfun
Vel sótt námskeið í vinnustofu Orkuklasans í húsnæði Akademias fyrr í þessum mánuði. MYND/AÐSEND
46 kynningarblað 26. janúar 2023 FIMMTUDAGURFélag kvenna í atvinnulíFinu