Fréttablaðið - 26.01.2023, Page 76

Fréttablaðið - 26.01.2023, Page 76
starfaði hjá Controlant í heildina í janúar 2016 þegar Anna hóf störf. Hennar fyrsta verkefni sem gæða- stjóri var að byggja upp gæðakerfi Controlant, sem tryggði að fyrir- tækið væri metið sem hæfur birgir hjá lyfjafyrirtækjum. „Gæðamál eru gríðarlega mikil- væg fyrir Controlant og óhætt að segja að þau hafi verið hluti af okkar DNA frá upphafi,“ segir Anna. Mörg af stærstu lyfjafyrir- tækjum heims reiða sig á lausnir Controlant og má þar meðal ann- ars nefna Pfizer, Roche, og Johnson & Johnson. Lyfjafyrirtækin gera gríðarlegar kröfur þegar kemur að gæðamálum og regluverk og eftirlit með alþjóðlega lyfjaiðnaðinum er mjög umfangsmikið. Anna og hennar samstarfsfólk á gæðasviði sér til þess að Contorlant uppfylli allar kröfur sem lúta að gæðum og upplýsingaöryggi ásamt kröfum sem birgjar fyrir lyfjafyrirtæki verða að uppfylla. Allt er hægt ef viljinn er fyrir hendi Vallý Helgadóttir er framkvæmda- stjóri rekstrarsviðs Controlant. Rekstrarsviðið er ábyrgt fyrir þjón- ustu og innleiðingu lausna Cont- rolant fyrir viðskiptavini auk þess að sjá um rekstur og framleiðslu. Miklar og hraðar breytingar hafa einkennt þann tíma sem Vallý hefur starfað hjá Controlant. „Ég er alltaf að læra, læri eitthvað nýtt á svo til hverjum einasta degi. Lausnirnar okkar, bæði vél- og hug- búnaður, eru í stöðugri framþróun og þjónustan er alltaf að þróast. Sá lærdómur sem mér finnst kannski vænst um er að það er allt er hægt ef viljinn er fyrir hendi. Til þess þarf þó gríðarlega öflugan, og fjölbreyttan, hóp og það er það sem við í Controlant státum af og höfum markvisst byggt upp,“ segir Vallý. Þetta kom svo sannarlega í ljós þegar Controlant fékk það gríðarlega umfangsmikla verkefni að vakta dreifingu bóluefnis Pfizer í heimsfaraldrinum. „Controlant hefur vaktað um það bil 7 millj- arða af bóluefnaskömmtun og hafa 99,998% af bóluefnunum komist heilu og höldnu á áfangastað. Það er einstakur árangur í ljósi þess að árlega sóast um það bil 20% allra lyfja í f lutningum,“ segir Vallý. Sjálfbærni og menning er rauði þráðurinn Elín María Björnsdóttir er framkvæmdastjóri mannauðs- og sjálfbærnisviðs Controlant sem er ábyrgt fyrir mannauðs- málum, samskiptum, menningu og sjálfbærnivegferð Controlant. „Sjálfbærni, fólkið og menningin er rauði þráðurinn í öllu sem við gerum. Hraður vöxtur Controlant og einstakur árangur í vöktun bóluefna hefði aldrei verið mögu- legur nema fyrir það einstaka fólk sem starfar hjá Controlant og góða menningu. Við viljum styðja við þessa menningu og hjálpa fólkinu okkar að vaxa enn frekar meðal annars með markvissri fræðslu,“ segir Elín María. „Sjálfbærni hefur aldrei verið mikilvægari en nú. Við horfum á sjálfbærni í víðu samhengi. Lausnir okkar stuðla að aukinni sjálfbærni í aðfangakeðju lyfja og við viljum einnig gera okkar besta í umhverfis- og efnahagsmálum. Þá er okkur einnig mjög umhugað um þau áhrif sem við höfum á samfélagið okkar, starfsfólk og samstarfsaðila. Við viljum vera til fyrirmyndar og tryggja að starfs- fólkið okkar og samfélagið sem við störfum í njóti góðs af starfsemi okkar,“ segir Elín María. Næg verkefni fram undan Varðandi áskoranirnar fram undan þá verður af nógu að taka. „Ég ætla að halda áfram að byggja upp fyrir- tækið með frábæru samstarfsfólki,“ segir Anna. „Áskorunin verður að forgangsraða og velja svo þau verkefni sem styðja best við okkar framtíðaráætlanir,“ segir Vallý. „Við erum einnig að setja aukinn kraft í stafræna umbreytingu sem mun gera okkur kleift að ná enn betri árangri við að þjónusta viðskipta- vini okkar,“ bætir hún við. „Á næstu mánuðum munum við setja aukinn kraft í sjálfbærni- vegferð okkar og halda áfram að hjálpa starfsfólki okkar að ná árangri. Þá gerum við einnig ráð fyrir að bæta fleiri frábærum ein- staklingum í teymið okkar en við gerum ráð fyrir að vera orðin 600 í lok þessa árs,“ segir Elín María. „Fókus okkar er í raun og veru mjög skýr, við ætlum að halda áfram að stuðla að sjálfbærum vexti Controlant, vexti teymisins og vexti okkar frábæra starfsfólks,“ segir Elín María. n Gæðamál eru gríðarlega mikil- væg fyrir Controlant og óhætt að segja að þau hafi verið hluti af okkar DNA frá upphafi. Anna Karlsdóttir Sjálfbærni, fólkið og menningin er rauði þráðurinn í öllu sem við gerum. Elín María Björnsdóttir Sá lærdóm- ur sem mér finnst kannski vænst um er að það er allt er hægt ef viljinn er fyrir hendi. Vallý Helgadóttir Vöxtur Controlant hefur verið ævintýralegur frá því fyrirtækið var stofnað árið 2007. Anna Karlsdóttir, Vallý Helgadóttir og Elín María Björnsdóttir sitja í fram- kvæmdastjórn Controlant. Controlant er leiðandi hátækni- fyrirtæki á sviði rauntíma vöktunarlausna fyrir alþjóðlega lyfjaiðnaðinn. Lausnir Controlant stuðla að öruggari, traustari, rekjanlegum og sjálfbærari flutningi lyfja á heimsvísu. Cont- rolant var stofnað árið 2007 og hefur vaxið hratt undanfarin ár, en fyrirtækið gegndi lykilhlut- verki í vöktun Covid-19 bóluefnis Pfizer í heimsfaraldrinum. Í dag starfa 430 manns hjá Controlant og starfsstöðvarnar eru á Íslandi, í Hollandi, Danmörku, Póllandi og Bandaríkjunum. Anna Karlsdóttir, Vallý Helga- dóttir og Elín María Björnsdóttir eru í framkvæmdastjórn Cont- rolant. Þær segja nóg af skemmti- legum verkefnum fram undan hjá Controlant nú þegar því risavaxna verkefni að vakta bóluefni í heims- faraldri sé að ljúka. Controlant ætlar að spila lykilhlutverk í þeirri umbyltingu sem fram undan er í aðfangakeðju lyfjaiðnaðarins með aukinni stafrænni þróun og nútímavæðingu. Gæðamál hluti af DNA Controlant Anna er framkvæmdastjóri Gæðasviðs Controlant, sem samanstendur af gæðadeild, verkefnadeild, þróun skipulags- heilda og upplýsingatæknideild. Alls starfa um 40 manns á sviðinu sem er helmingi fleira starfsfólk en Vilja útrýma sóun í einni mikilvægustu aðfangakeðju í heimi F.v. Vallý Helgadóttir framkvæmdastjóri rekstrarsviðs, Anna Karlsdóttir framkvæmdastjóri gæðasviðs og Elín María Björnsdóttir framkvæmdastjóri mannauðs- og sjálfbærnisviðs Controlant. 60 kynningarblað 26. janúar 2023 FIMMTUDAGURFélag kVenna í atVinnulíFinu

x

Fréttablaðið

Direct Links

If you want to link to this newspaper/magazine, please use these links:

Link to this newspaper/magazine: Fréttablaðið
https://timarit.is/publication/108

Link to this issue:

Link to this page:

Link to this article:

Please do not link directly to images or PDFs on Timarit.is as such URLs may change without warning. Please use the URLs provided above for linking to the website.