Fréttablaðið - 26.01.2023, Blaðsíða 76
starfaði hjá Controlant í heildina í
janúar 2016 þegar Anna hóf störf.
Hennar fyrsta verkefni sem gæða-
stjóri var að byggja upp gæðakerfi
Controlant, sem tryggði að fyrir-
tækið væri metið sem hæfur birgir
hjá lyfjafyrirtækjum.
„Gæðamál eru gríðarlega mikil-
væg fyrir Controlant og óhætt
að segja að þau hafi verið hluti
af okkar DNA frá upphafi,“ segir
Anna. Mörg af stærstu lyfjafyrir-
tækjum heims reiða sig á lausnir
Controlant og má þar meðal ann-
ars nefna Pfizer, Roche, og Johnson
& Johnson. Lyfjafyrirtækin gera
gríðarlegar kröfur þegar kemur að
gæðamálum og regluverk og eftirlit
með alþjóðlega lyfjaiðnaðinum
er mjög umfangsmikið. Anna og
hennar samstarfsfólk á gæðasviði
sér til þess að Contorlant uppfylli
allar kröfur sem lúta að gæðum og
upplýsingaöryggi ásamt kröfum
sem birgjar fyrir lyfjafyrirtæki
verða að uppfylla.
Allt er hægt ef
viljinn er fyrir hendi
Vallý Helgadóttir er framkvæmda-
stjóri rekstrarsviðs Controlant.
Rekstrarsviðið er ábyrgt fyrir þjón-
ustu og innleiðingu lausna Cont-
rolant fyrir viðskiptavini auk þess
að sjá um rekstur og framleiðslu.
Miklar og hraðar breytingar hafa
einkennt þann tíma sem Vallý
hefur starfað hjá Controlant.
„Ég er alltaf að læra, læri eitthvað
nýtt á svo til hverjum einasta degi.
Lausnirnar okkar, bæði vél- og hug-
búnaður, eru í stöðugri framþróun
og þjónustan er alltaf að þróast. Sá
lærdómur sem mér finnst kannski
vænst um er að það er allt er hægt
ef viljinn er fyrir hendi. Til þess
þarf þó gríðarlega öflugan, og
fjölbreyttan, hóp og það er það
sem við í Controlant státum af og
höfum markvisst byggt upp,“ segir
Vallý. Þetta kom svo sannarlega
í ljós þegar Controlant fékk það
gríðarlega umfangsmikla verkefni
að vakta dreifingu bóluefnis Pfizer
í heimsfaraldrinum. „Controlant
hefur vaktað um það bil 7 millj-
arða af bóluefnaskömmtun og hafa
99,998% af bóluefnunum komist
heilu og höldnu á áfangastað. Það
er einstakur árangur í ljósi þess að
árlega sóast um það bil 20% allra
lyfja í f lutningum,“ segir Vallý.
Sjálfbærni og menning
er rauði þráðurinn
Elín María Björnsdóttir er
framkvæmdastjóri mannauðs-
og sjálfbærnisviðs Controlant
sem er ábyrgt fyrir mannauðs-
málum, samskiptum, menningu
og sjálfbærnivegferð Controlant.
„Sjálfbærni, fólkið og menningin
er rauði þráðurinn í öllu sem við
gerum. Hraður vöxtur Controlant
og einstakur árangur í vöktun
bóluefna hefði aldrei verið mögu-
legur nema fyrir það einstaka fólk
sem starfar hjá Controlant og góða
menningu. Við viljum styðja við
þessa menningu og hjálpa fólkinu
okkar að vaxa enn frekar meðal
annars með markvissri fræðslu,“
segir Elín María.
„Sjálfbærni hefur aldrei verið
mikilvægari en nú. Við horfum
á sjálfbærni í víðu samhengi.
Lausnir okkar stuðla að aukinni
sjálfbærni í aðfangakeðju lyfja og
við viljum einnig gera okkar besta
í umhverfis- og efnahagsmálum.
Þá er okkur einnig mjög umhugað
um þau áhrif sem við höfum á
samfélagið okkar, starfsfólk og
samstarfsaðila. Við viljum vera til
fyrirmyndar og tryggja að starfs-
fólkið okkar og samfélagið sem við
störfum í njóti góðs af starfsemi
okkar,“ segir Elín María.
Næg verkefni fram undan
Varðandi áskoranirnar fram undan
þá verður af nógu að taka. „Ég ætla
að halda áfram að byggja upp fyrir-
tækið með frábæru samstarfsfólki,“
segir Anna. „Áskorunin verður
að forgangsraða og velja svo þau
verkefni sem styðja best við okkar
framtíðaráætlanir,“ segir Vallý. „Við
erum einnig að setja aukinn kraft
í stafræna umbreytingu sem mun
gera okkur kleift að ná enn betri
árangri við að þjónusta viðskipta-
vini okkar,“ bætir hún við.
„Á næstu mánuðum munum
við setja aukinn kraft í sjálfbærni-
vegferð okkar og halda áfram
að hjálpa starfsfólki okkar að ná
árangri. Þá gerum við einnig ráð
fyrir að bæta fleiri frábærum ein-
staklingum í teymið okkar en við
gerum ráð fyrir að vera orðin 600
í lok þessa árs,“ segir Elín María.
„Fókus okkar er í raun og veru
mjög skýr, við ætlum að halda
áfram að stuðla að sjálfbærum
vexti Controlant, vexti teymisins
og vexti okkar frábæra starfsfólks,“
segir Elín María. n
Gæðamál eru
gríðarlega mikil-
væg fyrir Controlant og
óhætt að segja að þau
hafi verið hluti af okkar
DNA frá upphafi.
Anna Karlsdóttir
Sjálfbærni,
fólkið og
menningin
er rauði
þráðurinn
í öllu sem
við gerum.
Elín María
Björnsdóttir
Sá lærdóm-
ur sem
mér finnst
kannski
vænst um
er að það
er allt er
hægt ef
viljinn
er fyrir
hendi.
Vallý
Helgadóttir
Vöxtur Controlant hefur
verið ævintýralegur frá því
fyrirtækið var stofnað árið
2007. Anna Karlsdóttir, Vallý
Helgadóttir og Elín María
Björnsdóttir sitja í fram-
kvæmdastjórn Controlant.
Controlant er leiðandi hátækni-
fyrirtæki á sviði rauntíma
vöktunarlausna fyrir alþjóðlega
lyfjaiðnaðinn. Lausnir Controlant
stuðla að öruggari, traustari,
rekjanlegum og sjálfbærari
flutningi lyfja á heimsvísu. Cont-
rolant var stofnað árið 2007 og
hefur vaxið hratt undanfarin ár,
en fyrirtækið gegndi lykilhlut-
verki í vöktun Covid-19 bóluefnis
Pfizer í heimsfaraldrinum. Í dag
starfa 430 manns hjá Controlant
og starfsstöðvarnar eru á Íslandi, í
Hollandi, Danmörku, Póllandi og
Bandaríkjunum.
Anna Karlsdóttir, Vallý Helga-
dóttir og Elín María Björnsdóttir
eru í framkvæmdastjórn Cont-
rolant. Þær segja nóg af skemmti-
legum verkefnum fram undan hjá
Controlant nú þegar því risavaxna
verkefni að vakta bóluefni í heims-
faraldri sé að ljúka. Controlant
ætlar að spila lykilhlutverk í þeirri
umbyltingu sem fram undan er
í aðfangakeðju lyfjaiðnaðarins
með aukinni stafrænni þróun og
nútímavæðingu.
Gæðamál hluti
af DNA Controlant
Anna er framkvæmdastjóri
Gæðasviðs Controlant, sem
samanstendur af gæðadeild,
verkefnadeild, þróun skipulags-
heilda og upplýsingatæknideild.
Alls starfa um 40 manns á sviðinu
sem er helmingi fleira starfsfólk en
Vilja útrýma sóun í
einni mikilvægustu
aðfangakeðju í heimi
F.v. Vallý Helgadóttir framkvæmdastjóri rekstrarsviðs, Anna Karlsdóttir framkvæmdastjóri gæðasviðs og Elín María Björnsdóttir framkvæmdastjóri mannauðs- og sjálfbærnisviðs Controlant.
60 kynningarblað 26. janúar 2023 FIMMTUDAGURFélag kVenna í atVinnulíFinu