Skessuhorn - 20.12.2022, Síða 105
ÞRIÐJUDAGUR 20. DESEMBER 2022 105
Óli og Hrabbý
Steðji
Brynja og Þorvaldur Kalastöðum
Bílar og dekk
Sigga Lóa, Sigurþór og fjölsk.
Dóra, Valli og börn
Útgerðin bar
Indriði,
Ásta og fjölsk,
Starfsmannafélag Elkem
Garðar Jónsson málarameistari
Ína, Fjölnir og börn
Ingunn Ríkharðsdóttir og fjölsk.
Grundaskóli
Starfsmenn Teigasels
HÁ bílar
Skessuhorn SK
ES
SU
H
O
R
N
2
02
2
Takk fyrir stuðninginn á árinu
Á árinu 2022 hafa fjölmargir aðilar lagt til pening og ýmsa aðstoð við söfnun í mínu nafni til hjálpar
þeim sem hjálpar eru þurfi. Það þarf fólk eins og ykkur, fyrir fólk eins og mig. Auk eftirtalinna aðila eru
fjölmargir fastir hjálpendur í mínu hugsjónastarfi. Margir þeirra vilja ekki koma fram undir nafni. Þá
eru nokkur fyrirtæki og einstaklingar sem gefið hafa fleiri en eina Góuferð.
Kærleiks- og jólakveðja,
Amma Andrea
Hnetusmjörskökur
Þessar dásemdardúllur þykja alltaf góðar í kringum jólin og eru því alltaf
bakaðar á mínu heimili. Silkimjúkt hnetusmjörið fellur vel við súkkulaði
hnappinn sem settur er ofan á hverja köku.
Uppskrift fyrir ca. 80 kökur
180 g smjör
180 g hnetusmjör
180 g sykur
150 g púðursykur
2 stk. egg
4 msk. mjólk
2 tsk. vanilludropar
530 g hveiti
2 tsk. matarsódi
1 tsk. salt
Súkkulaðidropar
Aðferð
1. Hrærið smjöri, hnetusmjöri, sykri og púðursykri vel
saman.
2. Bætið eggjum saman við og síðan restinni af hrá-
efnunum. Hrærið vel saman.
3. Mótið litlar kúlur sem búið er að dýfa í sykur.
4. Setjið kúlurnar á bökunarpappírsklædda plötu,
pressið niður og mótið fyrir holu í miðjunni.
5. Bakið kökurnar við 180°C í 8 mín, þá er kattartunga
eða súkkulaðidropi sett á hverja köku og bakað
áfram í 3 – 5 mín.
Bergbys brauðterta
Dásamleg brauðterta sem er í senn bragðgóð og virkilega falleg á veislu
borðið. Það er hægt að leika sér með hráefnin og taka út og bæta við sem
hentar hverjum og einum. Bergbys sæta sinnepið er lykillinn að bragðgóðri
tertunni og síðan gerir snakkið líka mjög mikið fyrir brauðtertuna.
Uppskrift
2 rúllutertubrauð
Hráefni
Bergbys sætt sinnep
(fæst aðeins í Krónunni)
1 dós beikonsmurostur
350 ml majónes
1 bakki salat
6-8 skinkusneiðar
6-8 ostsneiðar
Rifinn Mexíkóostur
1 dós rautt pestó
Snakk eftir smekk
Aðferð
1. Skerið brauðtertubrauðin til helminga.
2. Smyrjið hvert brauðtertulag á eftirfarandi hátt:
1 lag: Beikonsmurostur, kál og sætt Bergbys sinnep
2 lag: Majónes undir og yfir, skinkusneiðar/
hunangs skinkusneiðar, ostsneiðar.
3 lag: Beikonsmurostur undir, rautt pestó yfir, rifinn
mexíkóostur, kál og sætt Bergbyssinnep.
4 lag: Majónes undir, rautt pestó og örlítið majónes
hrært saman og smurt yfir, kál og grænmetissnakk.