Saga - 2020, Blaðsíða 156
íbúum.20 Fyrir þetta sendi danska nefndin um stuðning við særða
hermenn og munaðarlaus börn Íslendingum „vort virðingarfyllsta
þakklæti fyrir þenna talsverða fjárstyrk“ eins og segir í íslenskri
þýðingu Rosenörns stiftamtmanns á bréfi nefndarinnar sem barst
30. apríl 1849. Samkvæmt bréfinu höfðu alls safnast á Íslandi 4.410
ríkisbankadalir og 84 skildingar. Segja nefndarmeðlimir söfnunina
á Íslandi merki um „þjóðlegt hugarfar landsbúa og fúsan vilja þeirra
á að ljetta eða bæta úr bágindum“ þeirra sem komu illa undan
stríðinu.21
Þetta þýðir auðvitað ekki að það hafi verið afstaða allra Íslend -
inga til Dana enda er það ljóst á dreifibréfi Bjarna Thorsteinssonar
að einhverjir voru ósammála því að safna ætti fyrir Dani sérstaklega.
Eins tekur Brynjólfur Svenzon sýslumaður það sérstaklega fram í
bókinni sem hann tók saman yfir gefendur úr Barðastrandarsýslu
að alls hafi 128 bændur og húsráðendur „gjört sig fráleita með því,
öldúngis að daufheyrast við bóninni um hjálp handa téðum þurfa-
mönnum“. Hann virðist ekki allt of sáttur við þá fyrst hann tekur
þetta sérstaklega fram. Aftur á móti greinir hann frá því að í vestur-
parti sýslunnar hafi „flestir búendur og búlausir“ rétt fram fé handa
þurfamönnunum. Líklega var hann stoltari af því.22 Þó virðist al -
mennt ríkja vilji meðal fólks til þess að gefa til söfnunarinnar. Þannig
skrifar Kristín Sigurðardóttir frá Rifgirðingum bréf til sýslumanns -
ins í Snæfellsnessýslu þar sem hún segist vera orðin svo fátæk að
hún geti ekki gefið neitt eins og stendur þótt hún vilji það gjarnan.
Þá rekur hún mál sitt og segist eiga fjármuni og eigur ýmsar inni hjá
presti í Helgafellssveit. Hvetur hún yfirvöld til þess að rannsaka
kristjana vigdís ingvadóttir154
20 ÞÍ. Vesturamt. B/154. Skýrsluna er að finna í örk 12. Nr. 1368 I. Það er „skýrsla
um gjafir sem skotið hefur verið saman, í Vesturamtinu til aðstoðar hinum
særðu, og munaðarleysíngjum hinna föllnu, í stríði Dana við Þjóðverja, á árun-
um 1848 og 1849.“ Skýrslan er tekin saman af Bjarna Thorsteinssyni, konfe-
rentsráði og fyrrverandi amtmanni í Vesturamtinu. Í örkum 13–16 er mikið af
bréfum sem tengjast málinu líka en þau eru bæði á íslensku og dönsku, frá
sýslumönnum jafnt sem æðri embættismönnum og stjórnvöldum í Danmörku.
21 ÞÍ. Vesturamt. B/154-15. Nr. 1368 IV. Bréf frá Rosenörn 29. maí 1849, þýðing á
bréfi frá nefnd til stuðnings særðum hermönnum og munaðarlausum börnum
30. apríl 1849.
22 ÞÍ. Vesturamt. B/154-14. Síðasta blaðsíðan af lista yfir þá góðhjörtuðu innbúa
Barðastrandasýslu sem góðfúslega hafa gjöfum skotið, til að bæta úr nauðsýn
vorra kjæru bræðra dana, er særast í stríðinu, sem yfir stendur við þjóðverja,
og þeirra munaðarlausu ekkjur og börn, er þeir föllnu eptir skilja. 25. júlí 1849.