Bókatíðindi - 01.12.2022, Page 2
Kæri bókaunnandi
E nn á ný er uppáhalds árstími okkar bókaunnenda runninn upp
þegar nýjar bækur streyma í verslanir og efnisveitur og umfjöll
un um bækur í fjölmiðlum nær hámarki. Lesendur fyllast eftir
væntingu þegar þeir kynna sér bækur nýrra höfunda eða sjá að von er á
nýrri bók frá uppáhalds rithöfundinum.
Bókatíðindin eru mælikvarði á umfang jólabókaflóðs hvers árs og þeim
er jafnan vel tekið. Á liðnum árum hefur óskum um rafræna útgáfu rits
ins fjölgað jafnt og þétt enda sífellt fleiri sem frábiðja sér fjölpóst auk
allra þeirra Íslendinga sem búa erlendis og sakna blaðsins við óskalista
gerð og gjafaákvarðanir. Fyrir ári síðan hófum við útgáfu á rafrænum
Bókatíðindum og hefur vefurinn tekið miklum framförum síðan. Þar má
finna ýmsar viðbætur sem ekki eru hér í blaðinu, svo sem hljóðbrot, sýnis
horn innan úr bókum, slóð á vefsölur auk lengri og ítarlegri kynningar
texta. Ég hvet þig, lesandi góður, til þess að kynna þér rafræna útgáfu
Bókatíðinda á www.bokatidindi.is. Þrátt fyrir úrbætur okkar á vefrænni
framsetningu höldum við enn í þá áralöngu hefð að gefa Bókatíðindin
út í prentaðri útgáfu í aðdraganda jóla.
Sú samantekt á útgáfubókum ársins sem Félag íslenskra bókaútgef
enda sinnir með útgáfu Bókatíðinda er í raun einstök. Ekki þekkjast
sambærileg dæmi hvað þetta varðar í öðrum löndum. Sama á við um
okkar séríslenska jólabókaflóð og þá hefð að gefa bækur í jólagjöf,
hefð sem vakið hefur vaxandi athygli á síðustu árum meðal bókaunn
enda um allan heim. Dæmi um þann áhuga má finna í miklum fjölda
pósta á samfélagsmiðlum frá öllum heimshornum þar sem myllumerkið
#jolabokaflod er notað.
Í Bókatíðindum ársins sem þú ert nú með í höndunum er að finna drekk
hlaðið veisluborð af sprúðlandi ferskum og fjölbreyttum krásum nýrra
bóka við allra hæfi. Staðfesting þess að við getum með sanni kallað
okkur bókaþjóð.
Gleðileg íslensk bókajól!
Heiðar Ingi Svansson, formaður Félags íslenskra bókaútgefenda.
Undir kápumyndum allra bóka má
nú finna tákn sem vísa til útgáfu-
forms. Táknskýringar má finna
neðst á öllum kynningarblaðsíðum.
GOR Gormabók
HSP
Harðspjalda bók – allar
blaðsíður úr hörðum pappír
HLB Hljóðbók
IB
Innbundin bók – kápuspjöld
úr hörðum pappír
KIL Kilja
RAF Rafbók
SVK
Sveigjanleg kápa – líkt og
kilja en í annarri stærð
Merking tákna
í Bókatíðindum
BÓKATÍÐINDI 2022
Útgef andi: Félag íslenskra bóka út gef enda
Bar óns stíg 5
101 Reykja vík
Sími: 511 8020
Netf.: fibut@fibut.is
Vef ur: www.fibut.is
Hönn un kápu: Halldór Baldursson og Ámundi Sigurðsson
Ábm.: Bryndís Loftsdóttir
Upp lag: 100.000
Prentvinnsla: Prentmet Oddi ehf., umhverfisvottað fyrirtæki
ISSN 10286748
Efnisyfirlit
Barna- og ungmennabækur
Myndríkar . . . . . . . . . . . . . . . . . . . . . . . . . . . . . . . . . . . . . . . 3
Skáldverk . . . . . . . . . . . . . . . . . . . . . . . . . . . . . . . . . . . . . . . . 12
Fræði og bækur almenns efnis . . . . . . . . . . . . . . . . . . . . . 21
Teiknimyndasögur . . . . . . . . . . . . . . . . . . . . . . . . . . . . . . . 25
Unglingabækur . . . . . . . . . . . . . . . . . . . . . . . . . . . . . . . . . . 25
Skáld verk
Íslensk . . . . . . . . . . . . . . . . . . . . . . . . . . . . . . . . . . . . . . . . . . 28
Þýdd . . . . . . . . . . . . . . . . . . . . . . . . . . . . . . . . . . . . . . . . . . . . 38
Ljóð og leikrit . . . . . . . . . . . . . . . . . . . . . . . . . . . . . . . . . . . . . . . . 49
Listir og ljósmyndir . . . . . . . . . . . . . . . . . . . . . . . . . . . . . . . . . . 55
Fræði og bækur almenns efnis . . . . . . . . . . . . . . . . . . . . . . . . . 56
Sagnfræði, trúarbrögð og ættvísi . . . . . . . . . . . . . . . . . . . . . . 69
Ævi sög ur og end ur minn ing ar . . . . . . . . . . . . . . . . . . . . . . . . . 71
Hannyrðir og matreiðsla . . . . . . . . . . . . . . . . . . . . . . . . . . . . . . 74
Íþróttir og útivist . . . . . . . . . . . . . . . . . . . . . . . . . . . . . . . . . . . . 75
Sálfræði, sjálfshjálp og andleg leiðsögn . . . . . . . . . . . . . . . . 77
Titl askrá . . . . . . . . . . . . . . . . . . . . . . . . . . . . . . . . . . . . . . . . . . . . 79
Útgef end askrá . . . . . . . . . . . . . . . . . . . . . . . . . . . . . . . . . . . . . . . 82
Kynntu þér úrvalið á boksala.is
Æðisleg bókabúð, geggjuð verð.
Háskólatorgi - s. 570 0777 - boksala@boksala.is - www.boksala.is
Auðvelt
að panta
og fá sent
heim
B Ó K A T Í Ð I N D I 2 0 2 2 GOR Gormabók HSP Harðspjalda bók HLB Hljóðbók IB Innbundin bók KIL Kilja RAF Rafbók G Sveigjanleg kápa2