Bókatíðindi - 01.12.2022, Blaðsíða 27
KIL RAF HLB
Skuggabrúin
Ingi Markússon
Lesari: Jóhann Sigurðarson, Álfrún Helga
Örnólfsdóttir og Haraldur Ari Stefánsson
Í fjarlægri framtíð, á ísilagðri jörð, hafa allar
stjörnurnar slokknað nema ein; án hennar væri
vetrarmyrkrið algert. Þegar síðasta stjarnan hverfur
verða Dimmbrá og Hnikar viðskila og hrekjast um
heimskautið. Ekki er allt sem sýnist og myrkrið grúfir
yfir. Hvað varð um stjörnuna, hvernig tengist hún
skuggabrúnni — verður hægt að afstýra almyrkva?
400 bls. / H 11:24 klst.
Storytel
IB
Uppskrift að klikkun
Hjartasósa, hafgúuheilar og gvakamóri við
leiðindum
Dita Zipfel
Myndh: Rán Flygenring
Lúsí er 13 ára. Henni leiðist nýi kærasti mömmu
sinnar og dreymir um að flytja til Berlínar. Lúsí
finnst hún detta í lukkupottinn þegar hún sér
auglýst eftir manneskju til að viðra hund hinum
megin í bænum en kemst þó fljótt að því að það
er enginn hundur heldur skrítinn gamall maður í
leit að ritara fyrir dularfulla uppskriftabók.
200 bls.
Angústúra
SVK
Verum ástfangin af lífinu – vinnubók
Þorgrímur Þráinsson
Vinnubók sem fylgir eftir hinni vinsælu bók Verum
ástfangin af lífinu. Þorgrímur hvetur ungmenni
landsins til dáða með fjölmörgum verkefnum sem
auka sjálfsþekkingu, aðstoða við að setja markmið og
temja sér dugnað, sjálfsaga og einbeitingu. Allt eru
þetta mikilvæg atriði til að styrkja sjálfsmynd krakka
og löngun þeirra til að standa á eigin fótum.
40 bls.
Forlagið - Mál og menning
IB
Vættaveiðar
Jarmalandskrónikan – 2. hluti
Johan Theorin
Þýð: Elín Guðmundsdóttir
Orrustunni um Salajak er lokið en ekki
baráttunni við vættina. Margir hafa flúið
gamla heimili sitt í fjallinu til undirheimanna.
Stríðsmaðurinn Ristin og vættaprinsinn Dhor
hverfa inn í hyldýpi Jarmalands. Á hæla þeirra
er mýgrútur hermanna, riddara og álfa ...
396 bls.
Ugla
IB
Órói
Krunk hrafnanna
Hrund Hlöðversdóttir
Gömul, stórfurðuleg kona verður á vegi Svandísar
sem flækist inn í spennuþrunginn ævintýraheim álfa,
skuggafólks, kynjaskepna og drauga. Þegar Þráinn,
nýi strákurinn í bekknum, bætist í vinahópinn
kvikna nýjar tilfinningar og ástamálin flækjast.
220 bls.
Bókaútgáfan Hólar
IB
Stína og Stjáni
Ráðgátan um hauslausa ræningjann
Aðalsteinn Stefánsson
Stína og Stjáni eru gamlir skólafélagar. Leiðir
þeirra liggja aftur saman þegar þau leysa mál
fyrir ríka ekkju. Hún býður þeim í þakklætisskyni
stuðning til að stofna einkaspæjarastofu.
Fyrsta mál þeirra er allt hið undarlegasta. Óprúttinn
aðili rænir skartgripaverslanir um hábjartan dag.
En það sem gerir málið allt hið dularfyllsta ...
166 bls.
Óðinsauga útgáfa
IB
SKAM 4. þáttaröð: Sana
Julie Andem
Þýð: Erla E. Völudóttir
Í þessari bók eru senur sem aldrei voru teknar
upp og samtöl sem voru klippt burt ásamt
athugasemdum og hugleiðingum.
Þetta er handritið að fjórðu þáttaröð Skam,
nákvæmlega eins og það var skrifað.
194 bls.
Ugla
SVK
Skotti og sáttmálinn
Unnur Sveinsdóttir
Hvað er það versta sem 12 ára strákur gæti þurft
að takast á við í lífi sínu? Kannski mannabein
sem eru ekki þar sem þau ættu að vera? Ótrúlega
dularfullan leynikjallara með hryllilegum hættum?
Sex eldri systur? Eða kannski flóðrottur?
255 bls.
Allsherji ehf
Vertu ekki
bóklaus á jólanótt
B Ó K A T Í Ð I N D I 2 0 2 2 27GOR Gormabók HSP Harðspjalda bók HLB Hljóðbók IB Innbundin bók KIL Kilja RAF Rafbók G Sveigjanleg kápa
Unglingabækur SK ÁLDVERK