Bókatíðindi - 01.12.2022, Blaðsíða 53
KIL
Svartdjöfull
Gunnlaugur Bjarnason
Með gömlum hákarlaveiðimanni sækir höfundur á
mið myrkurs og sjávar til að gá hvað þar leynist. Á
eftir þeim liggur slóð klakahröngls, þunglyndis og
ótta. Eða hvað leynist innan við litlar dyr undir súð
og bakvið andlit í spegli? Hákarlar, djöflaskötur og
mara leggjast yfir og breyta skáldi í marmara.
96 bls.
Bókaútgáfan Sæmundur
SVK
Söngvar norðursins
Ljóð Inúíta frá Grænlandi og Kanada
Þýðandi ljóða: Björn Ingvarsson
Telja má til tíðinda að ljóð Inúíta komi út á íslensku,
ljóð sem voru samin áður en Inúítar fengu ritmál.
Mannfræðingurinn Knud Rasmussen skráði
kveðskapinn á ferðum sínum og gaf út á dönsku. Björn
Ingvarsson þýddi ljóðin eftir útgáfu hans. Hann segir
þýðinguna erfiða, hann hafi reynt að setja í forgang
að koma boðskap ljóðanna sem best til skila.
133 bls.
Félag ljóðaunnenda á Austurlandi
SVK
Talandi steinar
Guðmundur Gíslason
Ljóðabálkurinn Talandi steinar lýsir dvöl á geðdeild
og glímu við erfiðar tilfinningar. Þessi áhrifamikla
bók hlaut nýræktarstyrk Miðstöðvar íslenskra
bókmennta árið 2022 og segir í umsögn meðal annars:
"Þetta heildstæða verk býr yfir framvindu um leið
og hvert ljóð stendur sjálfstætt sem sjónhending inn
í tilveru þeirra sem glíma við geðsjúkdóma."
62 bls.
Bjartur
SVK
Tíminn á leiðinni
Steinunn Sigurðardóttir
Í nýrri ljóðabók höfuðskáldsins Steinunnar
Sigurðardóttur er tíminn meginstefið; kynslóðirnar,
árstíðirnar, upphaf og endalok – horft er
bæði inn á við og út í heiminn, á náttúruna,
lífið sjálft. Ljóðmálið er í senn leikandi létt
og hnitmiðað, myndir dregnar skýrum og oft
óvæntum dráttum, ærsl og alvara vegast á.
82 bls.
Forlagið - Mál og menning
SVK
Skurn
Arndís Lóa Magnúsdóttir
Ung stúlka stríðir við svefnleysi eftir að tvíburasystir
hennar lendir í slysi. Hún reynir að dreifa huganum
með því að hugsa um allt sem er kringlótt.
Skurn er f íngerð ljóðsaga um aðskilnað og áföll,
styrk og viðkvæmni, og eftir stendur spurningin
hvort hægt sé að skilja sársauka annarra.
101 bls.
Una útgáfuhús
SVK
Spádómur fúleggsins
Birta Ósmann Þórhallsdóttir
Spádómur fúleggsins er fyrsta ljóðabók Birtu
en hún hefur áður gefið út örsagnasafnið
Einsamræður og þýðingu úr spænsku á
Snyrtistofunni eftir Mario Bellatin.
69 bls.
Skriða bókaútgáfa
KIL
Stórsæ stjarnfræðileg fyrirbæri
Eyrún Ósk Jónsdóttir
Eyrún Ósk Jónsdóttir, handhafi Bókmenntaverðlauna
Tómasar Guðmundssonar, yrkir hér um föðurmissi,
afstæði tíma og rúms, og hvernig megi lifa af
missi sem líkist því þegar reikistjarna hverfur af
himni. En líka um það sem yfirstígur tíma og rúm,
kærleikann, fegurðina og ástina og þá töfra lífsins
sem mikilvægt er að við förum ekki á mis við.
108 bls.
Bjartur
IB
Stundum verða stökur til
Hjálmar Jónsson
Bragasnillingurinn Hjálmar Jónsson fer hér á
kostum í leiftrandi kveðskap og frásögnum. Hann
rekur sig fram um ævina í vísum og ljóðum enda
ljóst að bundið mál varðar æviveginn.
175 bls.
Bókaútgáfan Hólar
Það er stuð að lesa bók
B Ó K A T Í Ð I N D I 2 0 2 2 53GOR Gormabók HSP Harðspjalda bók HLB Hljóðbók IB Innbundin bók KIL Kilja RAF Rafbók G Sveigjanleg kápa
Ljóð og leikrit