Bókatíðindi - 01.12.2022, Blaðsíða 33
IB RAF HLB
Opið haf
Einar Kárason
Mögnuð frásögn um ótrúlega mannraun. Fiskibát
hvolfir úti á opnu hafi í vetrarmyrkri og brátt er
aðeins einn sjómannanna eftir ofansjávar. Einn maður
andspænis algeru ofurefli, bjargarlaus á óravíðu
hafi. Í örvæntingu syndir hann af stað … Einar
Kárason segir hér frá bráðum lífsháska og sterkum
lífsvilja, og byggir verkið á sönnum atburði.
124 bls.
Forlagið - Mál og menning
KIL
Óvissa
Anna Ólafsdóttir Björnsson
Horfinn eiginmaður, kafbátaumferð í Reykjavíkurhöfn
að næturþeli og ímyndunarveikur unglingur. Allt
eru þetta óvæntar hliðar á nýju máli sem vinirnir
Linda Lilja og Gabríel sogast inn í. Hörkuspennandi
bók þar sem gullleit, njósnir og glæpir koma
við sögu. Sjálfstætt framhald Mannavillt sem
kom út 2021 og hlaut góða dóma.
248 bls.
Bókaútgáfan Sæmundur
KIL RAF
Reimleikar
Ármann Jakobsson
Ungur maður finnst kyrktur í Heiðmörk með rúmal,
klút sem indverskir atvinnumorðingjar notuðu
fyrr á öldum. Reimleikar er fimmta glæpasaga
Ármanns Jakobssonar um rannsóknarlögreglurnar
Kristínu, Bjarna og þeirra lið, sem notið
hafa mikilla og vaxandi vinsælda.
311 bls.
Bjartur
IB RAF
Reykjavík
Ragnar Jónasson og Katrín Jakobsdóttir
Í ágúst 1956 hverfur ung stúlka, Lára Marteinsdóttir,
úr vist í Viðey og eftir það spyrst ekkert til hennar.
Áratugum saman hvílir mál Láru þungt á íslensku
þjóðinni og engin skýring kemur fram á hvarfi
hennar. Í ágúst 1986 fer ungur blaðamaður að
grafast fyrir um þetta dularfulla mannshvarf
– með ófyrirsjáanlegum afleiðingum.
349 bls.
Veröld
KIL
Meydómur
Hlín Agnarsdóttir
Fullorðin dóttir skrifar látnum föður sínum bréf
sem jafnframt er bréf til ungu meyjarinnar sem
hún eitt sinn var. Meydómur er saga af leiðinni sem
hún fetar frá sakleysi bernskunnar til uppreisnar
unglingsáranna þegar meydómi hennar lýkur.
184 bls.
Ormstunga
KIL
Millibilsmaður
Hermann Stefánsson
Heimildaskáldsaga frá fyrstu árum 20. aldar.
Læknishjón eru nýflutt að norðan. Í Reykjavík geisar
mikið fár yfir hinni nýju stefnu, spíritismanum. Bærinn
er klofinn, jafnt í afstöðu sinni til sjálfstæðismála
sem spíritisma, þar sem vísindi og trú eiga að
fallast í faðma. Læknirinn er krafinn svara um
hin dularfullu fyrirbrigði á miðilsfundum.
312 bls.
Bókaútgáfan Sæmundur
KIL
Morðið í Naphorni
Ásgeir Hvítaskáld
Átakanleg saga um morðið í Naphorni og
síðustu aftökuna á Austurlandi 1786. Skáldsaga
byggð á sannsögulegum atburðum.
195 bls.
Frjálst orð ehf
KIL RAF
Morðið í Öskjuhlíð
Stella Blómkvist
Þrettánda bókin um Stellu Blómkvist gerist árið
1995. Stella er nýútskrifuð og fæst við dularfullt hvarf
rannsóknarblaðamanns. Málið snýst upp í snúna
morðgátu sem teygir anga sína víða og við sögu koma
valdamiklir aðilar sem svífast einskis. Stella er söm við
sig, kjaftfor og úrræðagóð og berst fyrir lítilmagnann,
vopnuð innsæi og spakmælum mömmu.
252 bls.
Forlagið - Mál og menning
KIL
Og svo kom vorið
Smásögur
Guðjón Baldursson
Sprengitilræði í Hvalfirði, kveflæknandi hrútspungar,
læknar með gálgahúmor, Nóbelsskáldið – í
þessu smásagnasafni raðast saman sögur af
hversdagslegu en óvenjulegu fólki og aðstæðum
sem það kann að rata í. Sumt er fyndið, annað
grátbroslegt. Smásagnasafnið Og svo kom vorið er
fyrsta bók læknisins Guðjóns Baldurssonar.
Bókaútgáfan Sæmundur
Það er töff að lesa bók!
www.boksala.is
B Ó K A T Í Ð I N D I 2 0 2 2 33GOR Gormabók HSP Harðspjalda bók HLB Hljóðbók IB Innbundin bók KIL Kilja RAF Rafbók G Sveigjanleg kápa
Skáldverk ÍSLENSK