Bókatíðindi - 01.12.2022, Blaðsíða 21
SVK
Atlasinn minn: Heimsmet
Gary Semtrust
Þýð: Guðni Kolbeinsson
Hér geturðu lesið allt um heimsmet jarðarinnar sem
er hvert öðru stórkostlegra. Þessi atlas er troðfullur
af stórkostlegum staðreyndum, myndskreyttum
kortum og glæstum listaverkum og ljósmyndum.
24 bls.
Bókafélagið
SVK
Brandarar, gátur og þrautir 2
Geggjuð blanda
Endurs: Guðjón Ingi Eiríksson
Brandarar, gátur og þrautir er bók fyrir fólk
á öllum aldri og hentar bæði einstaklingum
og hópum hvar og hvenær sem er.
72 bls.
Bókaútgáfan Hólar
SVK
Brandarar og gátur 6
Huginn Þór Grétarsson
Nei! Það dugði ekki að gefa út fimm bækur troðfullar
af skemmtilegum bröndurum. Lesendur heimtuðu
aðra bók! Brandarar og gátur 6! Húmor án hafta
fyrir börn á öllum aldri! Öskrandi, grenjandi,
verkjandi hlátur fylgir lestri bókarinnar.
76 bls.
Óðinsauga útgáfa
SVK
Dundað um jólin
Afþreyingarbók
Þýð: Kolbeinn Þorsteinsson
Þessi frábæra og litríka jólabók er stútfull af þrautum
og dulmáli til að leysa. Leikir, teikniverkefni og ótal
margt annað sem mun stytta biðina eftir jólunum.
64 bls.
Setberg
Barnabækur
FRÆÐI OG BÆKUR ALMENNS EFNIS
HLB
Aha!
Sigyn Blöndal og Sævar Helgi Bragason
Hér bregða Sigyn Blöndal og Sævar Helga Bragason
enn og aftur á leik og velta upp hinum ýmsu
spurningum sem brenna á okkur. Hvert fer eiginlega
kúkurinn? Og er mamma þín kannski geimvera? Í
hljóðseríunni Aha! er gerð tilraun til að svara þessum
og fleiri spurningum. Á leiðinni kemur reyndar
líka margt í ljós sem alls enginn spurði að.
H 3:40 klst.
Storytel
SVK
Allt um hamingjuna
Hugmyndir og góð ráð fyrir lífið sjálft!
Þýð: Kolbeinn Þorsteinsson
Hvernig tek ég á áhyggjum? Hvernig get ég verið
betri við mig? Heilinn er stórkostlegur en stundum
þarf hann hjálp til að vera hamingjusamur. Þessi
bók er stútfull af einföldum útskýringum, hvetjandi
dagbókarráðum og fleiru sem mun hjálpa þér að hugsa
vel um heilann þinn, svo heilinn geti hugsað um þig.
48 bls.
Setberg
SVK
Allt um heilsuna
Hugmyndir og góð ráð fyrir lífið sjálft!
Þýð: Kolbeinn Þorsteinsson
Hvað gerist í líkamanum þegar maður sefur? Af hverju
er gott að stunda æfingar? Hvaða fæðu þarf líkaminn?
Það er gott að vita hvernig á að hugsa vel um líkamann.
Þessi bók er stútfull af skemmtilegum útskýringum,
ráðum og æfingum sem munu hjálpa þér að hugsa vel
um líkamann, svo líkaminn geti hugsað um þig.
48 bls.
Setberg
SVK
Atlasinn minn: Geimurinn
Alexandre Wajnberg
Þýð: Guðni Kolbeinsson
Með hjálp upplýsinga í þessari bók,
fallegra teikninga og magnaðra ljósmynda,
getur þú fræðst um heiminn.
24 bls.
Bókafélagið
Fræði og bækur almenns efnis
Bækurnar heim!
www.boksala.is
B Ó K A T Í Ð I N D I 2 0 2 2 21GOR Gormabók HSP Harðspjalda bók HLB Hljóðbók IB Innbundin bók KIL Kilja RAF Rafbók G Sveigjanleg kápa
Barnabækur FR ÆÐI OG BÆKUR ALMENNS EFNIS