Bókatíðindi - 01.12.2022, Blaðsíða 12
IB RAF HLB
Vinkonur
Bekkjar drottn ing in
Sara Ejersbo
Þýð: Ingibjörg Valsdóttir
Jósef ína er alveg ákveðin í að vilja ekki vera með
vinkonum sínum í sjötta bekk og reynir að fá
foreldra sína til að leyfa sér að skipta um skóla.
En hvað með Lúkas, sætasta strákinn í skólanum,
sem vill endilega að hún verði kyrr? Og er hún
tilbúin til að missa vinkonur sínar að eilífu?
125 bls.
Bókabeitan
SVK
Lauflétt að lesa
Bekkur inn minn 1-4
Yrsa Þöll Gylfadóttir og Iðunn Arna
Bekkurinn minn - lauflétt að lesa er einfaldari útgáfa
af hinum vinsæla bókaflokki Bekkurinn minn.
Hver bók er sögð frá sjónarhorni eins nemanda í
íslenskum grunnskóla. Sögurnar eru áhugaverðar og
spennandi og henta einstaklega vel fyrir þá sem eru
að stíga sín allra fyrstu skref á lestrarbrautinni.
36 bls.
Bókabeitan
IB
Bold-fjölskyldan verður villt
Julian Clary
Þýð: Magnús Jökull Sigurjónsson
Fimmta bókin í hinni frábæru seríu um
Bold-fjölskylduna. – Amma Ímamú kemur í
heimsókn alla leið frá Afríku og er ekki skemmt
þegar hún sér að Bold-fjölskyldan er farin að apa
allt eftir mannfólkinu. Hún ákveður að breyta
þessu og fá barnabörnin sín til að haga sér eins
og alvöru híenur – jafnvel í skólanum.
Og þá fyrst byrjar nú ballið ...
304 bls.
Ugla
KIL
Fróði Sóði
Bók 3
Alan MacDonald
Viltu kynnast Fróða? Hann hefur óteljandi ósiði!
Hann er að springa úr geggjað ógeðslegum
hugmyndum. Í bókinni eru þrjár sjálfstæðar sögur:
Lottóvinningurinn, Bakarabasl og Djöfladúkkan.
Góðar lestrarbækur fyrir 8 ára og eldri
með f ínu letri og góðu línubili.
96 bls.
Rósakot
KIL
Fróði Sóði
Bók 4
Alan MacDonald
Ef þú ert að leita að vandræðum þá þarftu ekki að
leita lengra - Fróði er mættur með sínar hræðilegu
hugmyndir! Í bókinni eru þrjár sjálfstæðar
sögur: Sýklar, Danskeppnin og Gelgjan.
Góðar lestrarbækur fyrir 8 ára og eldri
með f ínu letri og góðu línubili.
96 bls.
Rósakot
Barnabækur
SKÁLDVERK
IB
Alfinnur álfakóngur
G.T. Rotman
Alfinnur álfakóngur og sonur hans Trítill hrökklast
frá heimkynnum sínum. Þeir feðgar lenda í
hreint ótrúlegum ævintýrum. Þessa fallegu bók
prýða nú í fyrsta skipti 120 litmyndir. Bókin
er jafnframt í stærra broti en áður. Þessi nýja
útgáfa hentar vel fyrir nýja kynslóð barna.
124 bls.
Óðinsauga útgáfa
IB
Ljósaserían
Algjör steli þjóf ur
Þórdís Gísladóttir
Myndh: Þórarinn Már Baldursson
Hver var þessi undarlegi hlutur sem krakkarnir fundu
í kartöflugarðinum? Hvers vegna tók flugmaðurinn
hann af þeim og lét þau fá lakkrískonfekt í staðinn?
Hvernig eiga þau að endurheimta hlutinn?
Spennandi, fyndin, vonandi dálítið fróðleg en
samt aðallega ævintýralega hversdagsleg saga!
Myndir eftir Þórarin Má Baldursson.
64 bls.
Bókabeitan
IB
Amma glæpon enn á ferð
David Walliams
Þýð: Guðni Kolbeinsson
Alls staðar birtast fréttir um f ífldjarfan þjóf sem
stelur ómetanlegum dýrgripum. Glæpirnir minna
á loppuför alþjóðalega skartgripaþjófsins SVÖRTU
KISUNNAR - ömmu hans Benna. En amma er dáin og
hver í ósköpunum gæti framið þessa ósvífnu glæpi?
Getur Benni leyst málið?
296 bls.
Bókafélagið
IB RAF HLB
Alexander Daníel Hermann Dawidsson
Bannað að ljúga
Gunnar Helgason
Myndir: Rán Flygenring
Æsispennandi framhald metsölubókarinnar
Bannað að eyðileggja. Til viðbótar við litríka og
fjöruga fjölskylduna þurfa Alexander og Sóley
nú að glíma við harðsvíraðan eineltispúka og
alvöru glæpamann! Þegar Alexander þarf að
bjarga mannslífum er ADHD-ið reyndar bara
hjálplegt. Eldfjörug saga prýdd fjölda mynda.
203 bls.
Forlagið - Mál og menning
Skáldverk
B Ó K A T Í Ð I N D I 2 0 2 2 GOR Gormabók HSP Harðspjalda bók HLB Hljóðbók IB Innbundin bók KIL Kilja RAF Rafbók G Sveigjanleg kápa12
Barnabækur SK ÁLDVERK