Bókatíðindi - 01.12.2022, Blaðsíða 16
IB RAF
Kollhnís
Arndís Þórarinsdóttir
Álfur er fimleikastrákur úr Kópavogi, frábær
sonur og besti stóri bróðir í heimi. Alveg þangað
til mamma og pabbi fá þá flugu í höfuðið að litli
bróðir hans sé einhverfur og Álfi dettur í hug að
leita uppi Hörpu frænku, fimleikahetjuna sem
fór á Ólympíuleika með skammarlegum árangri
og enginn í fjölskyldunni talar lengur við.
259 bls.
Forlagið - Mál og menning
IB
Lóa og Börkur
Langskot í lífsháska
Kjartan Atli Kjartansson og Bragi Páll Sigurðarson
Sjálfstæð og æsispennandi bók í seríunni vinsælu um
vinina Lóu og Börk. Nú fara þau til Bandaríkjanna í
körfuboltabúðir en fyrr en varir fer af stað mögnuð
atburðarás. Það er erfitt að fóta sig í hættulegum
heimi þar sem fólk leynir á sér og ýmislegt getur
gerst. Bók hlaðin rafmagnaðri spennu. Þvílík
troðsla frá Kjartani Atla og Braga Páli!
176 bls.
Sögur útgáfa
IB
Lavander litli frá Lyosborg
Jón Páll Björnsson
Hann Lavander litli lendir í rosalegum hremmingum,
uppi á húsþökum, ofan í skolpræsum og á skuggalegum
götum borgarinnar. Hann á í höggi við heimskar
löggur, illilega glæpamenn, vampírur, galdrakarla og
margt annað sem býr í ævintýraborginni Lyos.
209 bls.
Óðinsauga útgáfa
KIL
Binna B Bjarna og Heyrðu Jónsi
Lestrarkeppnin
Sally Rippin
Binna og Jónsi eru bestu vinir. Þau
vilja gera allt saman.
Í þessari bók taka allir nemendur skólans
þátt í lestrarkeppni. Hvað eiga Jónsi og Binna
til bragðs að taka þegar þau þurfa að sætta
sig við ókunnuga lestrarfélaga?
Bækurnar Binna B Bjarna og Heyrðu Jónsi
henta vel fyrir yngstu lesendurna.
68 bls.
Rósakot
IB
Einkaspæjarastofa Suðurgötusystranna
Leyndardómurinn um stóra sjóbirtinginn
Anna Cabeza
Myndh: Toni Batllori
Þýð: Ásmundur Helgason
Eftir að hafa tekist að leysa sitt fyrsta mál, ráðgátuna
um yfirgefna hundakúkinn, er Einkaspæjarastofa
Suðurgötusystranna nú orðin að veruleika. Strax
á fyrsta degi stofunnar fá þær Karólína, Rósalína
og Abelína sitt fyrsta mál í hendurnar: Í nokkra
daga hefur legið við slagsmálum á markaðnum.
Númeramiðakerfið er bilað og allir fá sama númerið!
96 bls.
Drápa
IB
Bekkurinn minn
Jóla leik rit ið
Yrsa Þöll Gylfadóttir og Iðunn Arna
Jólaleikritið fjallar um Unni Leu og jólaskemmtun
bekkjarins. Unnur Lea skrifar leikrit, leikstýrir
og leikur aðalhlutverkið! Hún er viss um að
þetta verði flottasta leiksýning allra tíma. Bara ef
bekkjarfélagarnir tækju verkefnið alvarlega.
64 bls.
Bókabeitan
IB
Stjáni og stríðnispúkarnir
Jólapúkar
Zanna Davidson
Stjáni og Rúna eru orðin mjög spennt því
jólin eru alveg að koma. Stríðnispúkarnir
lenda auðvitað í alls konar vandræðum en
verður hægt að bjarga jólunum?
Bækurnar um Stjána eru spennandi valkostur fyrir
krakka sem eru að ná góðum tökum á lestri.
80 bls.
Rósakot
IB
Jólasveinarnir í Esjunni
Guðjón Ingi Eiríksson og Lárus Haukur Jónsson
Myndh: Haraldur Pétursson
Lalli er nýkominn úr erfiðum fótboltaleik og
nennir ekki að fara með foreldrum sínum og Dísu
systur sinni á Esjuna að honum loknum. Hann er
dauðþreyttur en fer þó samt og sér sko ekki eftir
því þar sem óvænt ævintýri bíður hans.
96 bls.
Bókaútgáfan Hólar
IB
Jón Oddur og Jón Bjarni – allar sögurnar
Guðrún Helgadóttir
Myndir: Anna Cynthia Leplar
Tvíburarnir Jón Oddur og Jón Bjarni eru í meira
lagi uppátektasamir. Þeim dettur ýmislegt sniðugt
í hug en fá oftast skammir fyrir – jafnvel þegar
þeir ætla bara að gleðja fólk, berjast gegn óréttlæti
eða segja sannleikann! Sögurnar um þá bræður
hafa nú glatt lesendur í nærri fimmtíu ár. Hér
koma þær allar út í vandaðri stórbók.
258 bls.
Forlagið - Vaka-Helgafell
IB RAF HLB
Kennarinn sem fuðraði upp
Bergrún Íris Sævarsdóttir
Krakkarnir í BÖ-bekknum eru að jafna sig á öllu sem
dunið hefur yfir undanfarið og Engilbert kennari
var sem betur fer blásaklaus. Vinskapur Óla Steins
og Axels er traustur og ekkert getur komið upp á
milli þeirra ... eða hvað? Óvænt afbrýðisemi skýtur
upp kollinum og lífshætta steðjar að krökkunum
sem þurfa að glíma við leyndarmál og svik.
Bókabeitan
B Ó K A T Í Ð I N D I 2 0 2 2 GOR Gormabók HSP Harðspjalda bók HLB Hljóðbók IB Innbundin bók KIL Kilja RAF Rafbók G Sveigjanleg kápa16
Barnabækur SK ÁLDVERK