Bókatíðindi - 01.12.2022, Blaðsíða 73
KIL
Mennirnir með bleika þríhyrninginn
Frásögn homma af vist sinni í fangabúðum nasista á
árunum 1939-1945
Heinz Heger
Þýð: Guðjón Ragnar Jónasson
Vitnisburðir um líf samkynhneigðra í fangabúðum
nasista sem hefur haft ómæld áhrif víða um heim.
Þetta er frásögn af mannlegri grimmd og niðurlægingu
en líka mögnuð saga um mannlegt þrek og þolgæði,
skráð af brennandi þörf til að miðla reynslu sem
heimurinn vildi lengi ekkert vita af. Hafdís Erla
Hafsteinsdóttir ritar ítarlegan eftirmála.
176 bls.
Sögufélag
IB
Pater Jón Sveinsson – Nonni
Gunnar F. Guðmundsson
Auðmjúkur prestur, rithöfundur, kennari, fyrirlesari,
tónlistarmaður, heimsborgari, Pater Jón Sveinsson
lifði alla ævi í heimi bernskunnar þrátt fyrir að
vera einn víðförlasti og þekktasti Íslendingur síns
tíma. – Ævisaga Nonna kemur nú út í nýrri útgáfu
en bókin hlaut Íslensku bókmenntaverðlaunin
þegar hún kom fyrst út árið 2012.
635 bls.
Ugla
KIL
Rauði þráðurinn
Ný og aukin útgáfa
Ögmundur Jónasson
Beitt pólitísk ævisaga, skrifuð af þekkingu á þróun
síðustu áratugi. Hér er horft fram á veginn og lagst
á sveif með þeim sem vilja vefa hinn rauða þráð.
Kom fyrst út í ársbyrjun og er hér endurútgefin með
viðauka þar sem reifuð eru stjórnmál yfirstandandi
árs. „Örugglega besta bók sem ég hef lesið um
íslensk stjórnmál.“ (Frosti Sigurjónsson)
624 bls.
Bókaútgáfan Sæmundur
IB RAF
Spítalastelpan
Hversdagshetjan Vinsý
Sigmundur Ernir Rúnarsson
Spítalastelpan var hún kölluð stelpan sem veiktist af
berklum í hrygg á Ströndum Norður og var fyrstu
ár sín að mestu reyrð niður í rúm á Sjúkrahúsinu á
Ísafirði. Hún byrjaði ekki að ganga fyrr en á sjöunda
ári, sigldi heim þar sem faðir hennar var dáinn og
móðirin búin að yfirgefa hana í huganum. En hún
bjó yfir einstökum lífsþorsta og vongleði.
239 bls.
Veröld
SVK
Út um víðan völl
Júlíus Sólnes
Sagt er frá lífi, ævintýrum og ferðum höfundar
og konu hans, Sigríðar Maríu. Fjallað er um
fjölbreyttan feril hans við Háskóla Íslands, aðkomu
að Kröfluvirkjun og stofnun umhverfisráðuneytisins.
Tilurð og örlög Borgaraflokksins eru
einnig rakin á greinargóðan hátt.
720 bls.
Háskólaútgáfan
IB
Var, er og verður Birna
Ingibjörg Hjartardóttir
Myndir: Rannveig Einarsdóttir
Birna Þórðardóttir hefur alla sína tíð verið
landsmönnum táknmynd andstöðunnar við
smáborgaraskap og ríkjandi kerfi. Í þessari einstæðu
bók fylgja þær henni á æskuslóðir á Borgarfirði eystra,
vinkona hennar og skrásetjari sögunnar, Ingibjörg
Hjartardóttir, og ljósmyndarinn Rannveig Einarsdóttir.
Um leið er litrík ævi Birnu rakin í máli og myndum.
208 bls.
Forlagið - Mál og menning
IB RAF
Þormóður Torfason
Dauðamaður og dáður sagnaritari
Bergsveinn Birgisson
Þýð: Vésteinn Ólason
Þormóður Torfason fæddist árið 1636 og varð einn
mikilvirkasti sagnaritari landsins - en var líka dæmdur
til dauða fyrir að verða mannsbani. Bergsveinn
Birgisson skrifar hér sögu þessa stórbrotna manns,
með svipaðri aðferð og lesendur þekkja úr hinni
vinsælu bók hans, Leitin að svarta víkingnum.
368 bls.
Bjartur
IB RAF
Ævintýri og líf í Kanada
Endurminningar Guðjóns R. Sigurðssonar
Umsj: Þórður Sævar Jónsson
Árið 1925 hélt Guðjón, þá rúmlega tvítugur,
vestur um haf með ekkert nema eftirvæntinguna
í farteskinu. Áratugum saman vann hann fyrir sér
sem farandverkamaður og þegar hart var í ári veiddi
hann í sig og á. Hann fór sínar eigin leiðir, hræddist
hvorki birni né óblíða náttúru og mætti hinu óþekkta
af óttaleysi og bjartsýni hins frjálsa manns.
407 bls.
Forlagið - Mál og menning
Erum með úrvalið...sérvalið
B Ó K A T Í Ð I N D I 2 0 2 2 73GOR Gormabók HSP Harðspjalda bók HLB Hljóðbók IB Innbundin bók KIL Kilja RAF Rafbók G Sveigjanleg kápa
Ævisögur og endurminningar