Bókatíðindi - 01.12.2022, Blaðsíða 78
SVK
Tilgangurinn
Tilfinningalegt ferðalag sálarinnar. Að læra að sjá
lífið með öðrum augum.
Ríkarður E. Líndal
Hér er fjallað um tilfinningalegt ferðalag okkar
gegnum lífið frá sjónarhorni sálarinnar og leitast
við að svara spurningunni: Af hverju er ég hér?
Bókin er að nokkru leyti skáldskapur en heilræði
hennar um sjálfsskoðun og skilning ættu að auðvelda
mörgum að skilja tilgang sinnar eigin tilveru.
324 bls.
Lindal Publishing Co.
KIL
Sjálfstyrktarbók
Tíu skilaboð
Að skapa öryggi úr óvissu
Bergsveinn Ólafsson
Tíu skilaboð er ákveðinn leiðarvísir til að fást við lífið.
Þrátt fyrir að við lendum í skakkaföllum, upplifum
sársauka og vitum ekki hvað framtíðin ber í skauti
sér, þá höldum við áfram. Við öxlum ábyrgð, sýnum
hugrekki og þrautseigju, höldum í vonina og höfum
trú á okkur sjálfum og mannkyninu í heild.
267 bls.
Einu sinni var
SVK
Hugarfrelsi
Vellíðan barna - Handbók fyrir foreldra
Hrafnhildur Sigurðardóttir, Unnur Arna Jónsdóttir
og Ingrid Kuhlman
Markmið bókarinnar er að styrkja foreldra. Í
hverjum kafla er að finna ýmsan fróðleik og
fjölbreyttar æfingar sem hafa það að markmiði að
kenna börnum hagnýtar aðferðir til að efla sig og
styrkja þannig að þau verði betur í stakk búin að
takast á við krefjandi verkefni í námi og leik.
232 bls.
Bókafélagið
KIL
Veran í moldinni
Hugarheimur matarfíkils í leit að bata
Lára Kristín Pedersen
Í Verunni í moldinni opnar knattspyrnukonan Lára
Kristín Pedersen sig upp á gátt og segir af einstakri
einlægni frá átakanlegri baráttu sinni við matarf íkn,
sem hún hefur glímt við um árabil meðfram því að
stunda íþrótt sína af kappi hér heima og erlendis.
*****„Magnað innlit í hugarheim þess sem glímir
við f íkn.“ – Hrefna Rut Baldursdóttir
296 bls.
Sögur útgáfa
Erum með úrvalið...sérvalið
B Ó K A T Í Ð I N D I 2 0 2 2 GOR Gormabók HSP Harðspjalda bók HLB Hljóðbók IB Innbundin bók KIL Kilja RAF Rafbók G Sveigjanleg kápa78
Sálfræði, sjálfshjálp og andleg leiðsögn