Bókatíðindi - 01.12.2022, Blaðsíða 47
SVK
Undir yfirborðinu
Freida McFadden
Þýð: Ingunn Snædal
Velkomin í fjölskylduna, segir Nina Winchester þegar
ég tek í vel snyrta hönd hennar. Ég brosi kurteislega
og lít í kringum mig í ríkmannlegu anddyrinu. Starfið
hér er síðasta tækifæri mitt til að hefja nýtt líf. Ég
get þóst vera sú sem ég vil vera. Fljótlega kemur
þó í ljós að leyndarmál Winchester-fjölskyldunnar
eru mun ógnvænlegri en mín!
336 bls.
Drápa
KIL RAF
Upplausn
Sara Blædel og Mads Peder Nordbo
Þýð: Ingunn Snædal
Á fallegum sumardegi er Charlotte, móðir tveggja
ungra barna, á leið úr ræktinni í skólann þar
sem hún vinnur í friðsælum smábæ á eyjunni
Fjóni. Nokkrum mínútum síðar er hún horfin
sporlaust á þessari stuttu leið. Hér leggja saman
krafta sína tveir höfundar í fremstu röð.
319 bls.
Bjartur
SVK
Útlínur liðins tíma
Virginia Woolf
Þýð: Soffía Auður Birgisdóttir
Minningabrot eins fremsta rithöfundar 20.
aldarinnar, Virginiu Woolf, sem hér birtast
eru vitnisburður um hvernig endurtekin högg
dauðans, kynferðisbrot og önnur áföll í bernsku
mörkuðu persónuleika hennar fyrir lífstíð.
Soffía Auður Birgisdóttir þýðir af vandvirkni
og ritar einnig ítarlegan eftirmála.
188 bls.
Una útgáfuhús
KIL
Vanþakkláti flóttamaðurinn
Dina Nayeri
Þýð: Bjarni Jónsson
Átta ára gömul flúði Dina Nayeri frá Íran ásamt
kristinni móður sinni og bróður. Áratugum
síðar skilgreinir hún sig enn út frá flóttanum.
Í þessari bók fléttar hún saman sögur annarra
flóttamanna og hælisleitenda á síðustu árum
við sína eigin og varpar ljósi á ægivaldið sem
felst í því að velja á hvern er hlustað.
400 bls.
Angústúra
KIL RAF HLB
Systirin í storminum
Önnur bókin í bókaflokknum um systurnar sjö
Lucinda Riley
Þýð: Valgerður Bjarnadóttir
Ally fær vísbendingu um uppruna sinn við andlát föður
síns. Hún rekur slóð sína til Noregs og tengist ævi
óþekktrar söngkonu, Önnu Landvik, sem var uppi 100
árum fyrr og söng þegar tónlist Griegs við ljóðabálk
Ibsens, Pétur Gaut, var frumflutt. Hvernig tengist
Anna föður hennar, hver var hann í raun og veru?
560 bls.
Benedikt bókaútgáfa
KIL RAF
Sælureitur agans
Fleur Jaeggy
Þýð: Brynja Cortes Andrésdóttir
14 ára stúlka hefur varið hálfu lífi sínu í
heimavistarskólum í Ölpunum en bíður þess eins
að vistinni ljúki svo hið sanna líf geti hafist. Tíminn
líður hægt við fullkomna náttúrufegurð og lífsleiða.
Hún laðast að skólasystur sem þekkir lífið utan
heimavistarskóla ... Einstök skáldsaga um sakleysi
æskuára og ógnir fullorðinsára, listilega skrifuð.
138 bls.
Ugla
KIL
Tjaldið fellur
Síðasta mál Poirots
Agatha Christie
Þýð: Helgi Ingólfsson
Vinirnir Hercule Poirot og Hastings eru komnir
á Styles-setur þar sem þeir leystu sína fyrstu
morðgátu. Bæði Poirot og Styles-setrið hafa séð betri
daga. En þótt Poirot sé kominn í hjólastól vegna
liðagigtar eru „litlu gráu sellurnar“ hans enn í fullu
fjöri. Hann veit að einn gestanna er fimmfaldur
morðingi sem hyggur á enn eitt morðið ...
254 bls.
Ugla
KIL RAF HLB
Tríó
Johanna Hedman
Þýð: Halla Kjartansdóttir
Thora er einkabarn auðugra bóhemforeldra, fædd
með silfurskeið í munni inn í sænska yfirstétt. Hún
og August eru bernskuvinir en rót kemur á samband
þeirra þegar Hugo kemur til sögunnar. Þau dragast
hvert að öðru en undir yfirborðinu krauma andstæður,
stéttamunur, ást – eða óvissa um ást – og jafnvægið
sem ríkir á milli þeirra er afar viðkvæmt.
374 bls.
Forlagið - JPV útgáfa
KIL RAF
Umskiptin og aðrar sögur
Franz Kafka
Þýð: Eysteinn Þorvaldsson og Ástráður Eysteinsson
Hér eru allar sögur Franz Kafka sem hann gekk
sjálfur frá til útgáfu, 44 talsins, allt frá örsögum
upp í nóvellur. Sögurnar eru fjölbreyttar að efni
og formi og sýna vel innsæi höfundar í mannlega
tilveru, furður hennar, ótta og efa. Allar hafa
birst áður á íslensku en koma nú út í einni bók í
endurskoðaðri þýðingu með nýjum eftirmála.
364 bls.
Forlagið
Bækurnar heim!
www.boksala.is
B Ó K A T Í Ð I N D I 2 0 2 2 47GOR Gormabók HSP Harðspjalda bók HLB Hljóðbók IB Innbundin bók KIL Kilja RAF Rafbók G Sveigjanleg kápa
Skáldverk ÞÝDD