Bókatíðindi - 01.12.2022, Blaðsíða 59
SVK
Grunnteikning fyrir málm- og bíliðngreinar
Um er að ræða endurskoðaða kennslubók í
grunnteikningu, sem hét áður Teikning fyrir
hönnunargreinar, en er nú sérstaklega ætluð fyrir nám
í málm- og bíliðngreinum. Þetta þýðir að köflum sem
sleppt var í fyrri útgáfu hefur verið bætt við að nýju.
Jafnframt því hefur val á verkefnum verið endurskoðað
og þeim endurraðað í samræmi við nýjar áherslur.
299 bls.
IÐNÚ útgáfa
IB
Halldór H. Jónsson arkitekt
Pétur H. Ármannsson og Björn Jón Bragason
Halldór H. Jónsson arkitekt er í senn kunnur sem
höfundur þjóðþekktra bygginga og einn helsti
áhrifamaður í íslensku athafnalífi á 20. öld. Samhliða
rekstri eigin teiknistofu varð hann snemma eftirsóttur
til forystustarfa í atvinnurekstri og var á seinni
árum gjarnan nefndur „stjórnarformaður Íslands“
vegna setu sinnar í stjórnum stórfyrirtækja.
251 bls.
Hið íslenska bókmenntafélag
SVK
Sýnisbók íslenskrar alþýðumenningar
Heimsins hnoss
Söfn efnismenningar, menningararfur og merking
Ritstjórar: Davíð Ólafsson og Kristján Mímisson
Í þessari sýnisbók birtast greinar eftir hóp fræðimanna
sem varpa ljósi á efnislegar eigur fólks á Íslandi á 18. og
19. öld. Til grundvallar liggja ólíkar gerðir munasafna,
annars vegar gripir varðveittir á Þjóðminjasafni
Íslands og hins vegar skráningar á dánarbúum 30 þús.
Íslendinga varðveittar á Þjóðskjalasafni Íslands.
300 bls.
Háskólaútgáfan
IB
Hjarta Íslands – Frá Hrísey til Fagradalsfjalls
Gunnsteinn Ólafsson og Páll Stefánsson
Hjarta Íslands – Frá Hrísey til Fagradalsfjalls er þriðji
og síðasti hluti stórvirkis Gunnsteins Ólafssonar
og Páls Stefánssonar um Ísland. Gunnsteinn fléttar
hér saman náttúrulýsingum, sögu, þjóðtrú og
bókmenntum og Páll Stefánsson ljósmyndari sýnir allar
sínar bestu hliðar, bæði á jörðu niðri og úr lofti.
200 bls.
Veröld
KIL
Fræðabálkur að ferðalokum
Efni skráð 2020-2021
Þórður Tómasson
Í þessari bók rekur Þórður Tómasson (1921–2022)
meðal annars gamalt orðafar um raddfæri og málfar,
geð- og skapbrigði, svefn og svefnhætti, fjallar um
lækningajurtir og matargerð fyrri alda og greinir frá
margvíslegum fróðleik um mannlíf og menningu
fyrri tíðar undir Eyjafjöllum og víðar um Suðurland.
Í bókarauka birtist ítarleg ritaskrá höfundar.
186 bls.
Bókaútgáfan Sæmundur
KIL
Kvár
Elías Rúni
Kvár er heimildarmyndasaga um að vera kynsegin;
að upplifa sig hvorki karlkyns né kvenkyns,
hvort tveggja í senn eða eitthvað allt annað. Þetta
er ein fyrsta bókin um þetta efni sem er gefin
út á íslensku. Hún er jafnframt fyrsta íslenska
heimildarmyndasagan. Sagan er byggð á viðtölum
við sex kvár um reynslu þeirra og skoðanir.
96 bls.
Una útgáfuhús
SVK
Fyrningar
Ritgerðir um bókmenntir fyrri alda 1969–2019
Vésteinn Ólason
Ritstjóri: Þórður Ingi Guðjónsson
Greinasafn með 22 ritgerðum, á íslensku, ensku
og norsku, sem birtust frá 1969 til 2019: greinar
um fornan kveðskap, greinar um fornsögur og
loks greinar um Snorra Sturluson og verk sem
honum hafa verið eignuð. Höfundur kenndi
íslenskar bókmenntir við Háskóla Íslands,
háskóla á Norðurlöndum og vestanhafs og var
forstöðumaður Árnastofnunar í áratug.
419 bls.
Stofnun Árna Magnússonar í íslenskum fræðum
SVK
Glaðasti hundur í heimi
Biblía hundaeigandans
Heiðrún Villa
Glaðasti hundur í heimi er afar kærkomin bók fyrir
hundaeigendur. Hún er skrifuð af kostgæfni, reynslu
og þekkingu og geymir allt það sem skiptir máli í
hundauppeldi og meira til. Þetta er biblía sem allir
hundaeigendur verða að eignast. Heiðrún Villa
hundaþjálfari er einn helsti hundaatferlisfræðingur
landsins og notar afar uppbyggilegar aðferðir.
180 bls.
Sögur útgáfa
SVK
Gripla 33 (2022)
Alþjóðlegt ritrýnt tímarit Árnastofnunar
Ritstjórar: Annette Lassen og Gísli Sigurðsson
Í Griplu er tilraunaútgáfa á ólíkum gerðum Laxdælu,
túlkun á kristilegu táknmáli í Heimskringlu og
karlmennsku í Kormáks sögu, og greinar um
náttúrusteina og hlutverk Margrétar sögu við fæðingar.
Þá er rýnt í spássíukrot, messusöngsbækur og heimildir
um Þingeyrakalaustur, Sethskvæði, Grobbians rímur
og karllæga ritstjórn á sögu um Gríshildi góðu.
300 bls.
Stofnun Árna Magnússonar í íslenskum fræðum
Verslaðu heima
www.boksala.is
B Ó K A T Í Ð I N D I 2 0 2 2 59GOR Gormabók HSP Harðspjalda bók HLB Hljóðbók IB Innbundin bók KIL Kilja RAF Rafbók G Sveigjanleg kápa
Fræði og bækur almenns efnis