Bókatíðindi - 01.12.2022, Blaðsíða 10
IB
Snari brunabíll
Alice Dainty
Þýð: Guðni Kolbeinsson
Kolli er besti slökkviliði í heimi. Hann getur gert svo
margt í einu. Hann grípur búnaðinn sinn, setur á sig
hjálminn, rennir sér niður súluna og brunar af stað.
Snari brunabíll - hjólabók með teygju.
10 bls.
Unga ástin mín
IB
Snertu og finndu - Leikum okkur!
Ellie Boultwood
Þýð: Andri Karel Ásgeirsson
Þessi bók er sérstaklega hönnuð með hreyfingu
barna í huga. Litríkar myndir, mynstur og ljósmyndir
sem vekja áhuga og kátínu. Öll fjölskyldan
hefur gaman af því að hreyfa sig saman.
12 bls.
Unga ástin mín
IB
Snjókarlinn
Raymond Briggs
Þegar snjórinn fellur fyllist loftið af töfrum. Um
snjóþungan dag býr strákur til snjókarl – og
um miðja nótt vaknar hann til lífsins. Í bókinni
eru myndir úr upprunalegu teiknimyndinni um
Snjókarlinn. Þessi dásamlega bók fer með þig í
töfrandi ferðalag til Norðurpólsins og aftur heim.
32 bls.
Óðinsauga útgáfa
IB
Snúlla finnst erfitt að segja nei
Helen Cova
„Snúlla finnst erfitt að segja nei“ er önnur bókin um
Snúlla. Í þetta skiptið áttar Snúlli sig á því að stundum
segir hann já við hlutum sem hann langar í raun ekki að
gera. Hvernig mun Snúlli vinna úr tilfinningum sínum?
Og hvað mun hann læra á leiðinni?. þetta er bók sem
kennir börnum að takast á við hópþrýsting.
36 bls.
Karíba útgáfa
IB
Obbuló í Kósímó
Snyrtistofan
Kristín Helga Gunnarsdóttir
Myndh: Halldór Baldursson
Oddný Lóa Þorvarðardóttir býr í
Kjóamóa þrjúhundruð og sjö.
Hvaða krakki getur sagt það? Enginn.
Obbuló á heima í Kósímó.
Þar búa líka mamma, pabbi og Bessi besti bróðir.
Hann á þrjá pabba, sem er mjög
ósanngjarnt. Obbuló á bara einn.
30 bls.
Bjartur
IB
Penelópa bjargar prinsi
Jóna Valborg Árnadóttir og Berglind
Sigursveinsdóttir
Penelópa hefur margoft heyrt ævintýrið um prinsinn
sem beit í epli galdrakerlingar og féll í dá. Samkvæmt
því hefur hann legið í gullkistu uppi á fjallstindi
í heila öld! Hún ákveður að kanna hvort sagan sé
sönn, finna kistuna og bjarga prinsinum.
Hér er gömlum ævintýraminnum snúið á hvolf
svo sagan kemur skemmtilega á óvart.
48 bls.
Bókabeitan
SVK
Rauði hatturinn og krummi
Ásgerður Búadóttir
Rauði hatturinn og Krummi er skemmtileg
barnabók á fimm tungumálum. Bókin var skrifuð og
myndskreytt af Ásgerði Búadóttur myndlistarmanni
og var fyrst gefin út af Helgafelli árið 1961.
27 bls.
Listasafn Íslands
IB
Risaeðlur
Bastien Contraire
Þýð: Sverrir Norland
Fersk og litrík túlkun á vinsælum efnivið.
Vissirðu að freyseðlan var lengri en tvær rútur og
að þorneðlan var þyngri en tólf hvítabirnir?
Risaeðlurnar hafa löngum örvað hugarflug
barna jafnt sem fullorðinna.
Í þessari glæsilegu bók lifna þær aftur við,
litríkari og fallegri en nokkru sinni fyrr.
56 bls.
AM forlag
IB
Sara og töfrasteinninn
Hjálmar Waag Árnason
Myndir: Erna Kristín Gylfadóttir
Sagan fjallar um Söru sem fer í Húsdýragarðinn. Þar
finnur hún töfrastein. Allt í einu skilur hún og getur
talað við dýrin sem verður henni mikil skemmtun.
Á leiðinni út úr garðinum týnir hún steininum. Við
það missir hún sambandið við dýrin. Næst þegar
þú átt leið í Húsdýragarðinn skaltu skoða þig vel
um og kanna hvort þú sjáir steininn góða.
54 bls.
Hjálmar Waag Árnason
SVK
Kuggur
Skordýraþjónusta Málfríðar
Sigrún Eldjárn
Kuggur, Málfríður og mamma Málfríðar eru
alltaf jafn hress og kát, og bækurnar um þau hafa
nú glatt íslensk börn í 35 ár. Hér er glæný útgáfa
af sögunni um það þegar Málfríður stofnar sitt
eigið fyrirtæki og ætlar að leysa hvers manns
vanda með aðstoð ýmiss konar skordýra.
32 bls.
Forlagið - Mál og menning
B Ó K A T Í Ð I N D I 2 0 2 2 GOR Gormabók HSP Harðspjalda bók HLB Hljóðbók IB Innbundin bók KIL Kilja RAF Rafbók G Sveigjanleg kápa10
Barnabækur MYNDRÍK AR