Bókatíðindi - 01.12.2022, Blaðsíða 58
SVK
Fimmaurabrandarar 4
Endurs: Fimmaurabrandara- fjelagið
Brotabrot af þeim albestu bröndurum sem birst hafa
á Facebook-síðu Fimmaurabrandarafjelagsins.
80 bls.
Bókaútgáfan Hólar
SVK
Fínir drættir leturfræðinnar
Jost Hochuli
Þýð: Birna Geirfinnsdóttir, Gunnar Þór Vilhjálmsson
og Marteinn Sindri Jónsson
Fallegt og spennandi umbrot gleður auga
lesenda og vekur áhuga þeirra. Sé illa hugað að
hinum f ínni dráttum textans verður lesturinn
hins vegar erfiður og gleðin skammvinn. Hér
má finna ýmsar lausnir, ekki síst í umbroti og
framleiðslu bókarinnar sjálfrar. Ómissandi bók
fyrir þá sem áhuga hafa á góðri hönnun.
63 bls.
Angústúra
KIL
Smárit Stofnunar Vigdísar Finnbogadóttur
Fjöltyngi og fjölskyldur
Birna Arnbjörnsdóttir
Ritstjórar: Kristín Guðrún Jónsdóttir og Ásdís R.
Magnúsdóttir
Í þessari bók er að finna umfjöllun um hlutverk
og áhrif samfélagsins og fjölskyldunnar á þroska
og menntun fjöltyngdra barna. Höfundurinn
hefur um árabil rannsakað sambýli tungumála
og gefið út bækur og rit um áhrif þeirra á
sjálfsmynd, uppeldi og nám ungmenna sem
nota fleiri en eitt tungumál í daglegu lífi.
Stofnun Vigdísar Finnbogadóttur / Háskólaútgáfan
SVK
Handbók í íslenskri miðaldasögu IV
Fornir hættir
Húsakostur og verkmenning
Gunnar Karlsson
Hér er að finna rækilega úttekt á húsakosti
Íslendinga á miðöldum með hliðsjón af nýlegum
rannsóknum á fornleifum og fræðilegri umfjöllun
síðustu ára. Efnið er sett í samhengi við hugmyndir
um hnignun mannlífs á síðari hluta miðalda og
leiddar að því líkur að samspil hnignunar og
framfara sé flóknara en áður hefur verið talið.
298 bls.
Háskólaútgáfan
SVK
Krossgátur
Frístundarbókin
Krossgátur og athyglisþrautir
Ritstjóri: Guðjón Baldvinsson
Eitthvað fyrir alla krossgátuunnendur. Í bókinni eru
95 krossgátur og athyglisþrautir af ýmsu tagi, þar
af 58 hefðbundnar krossgátur af ýmsum stærðum.
Svo fljóta með orðaleitargátur, völundarhús, flísaðir
málshættir, sudoku-gátur, orðatvístursgátur, stjörnuleit,
felumyndir og krosstölur. Frábær dægradvöl.
64 bls.
Frístund útgáfa ehf.
IB
Draugaslóðir á Íslandi
Símon Jón Jóhannsson
Myndaritstj: Ívar Gissurarson
Íslendingar hafa lengi trúað á drauga. Sumar
draugasögur eru hroðalegar og enda jafnvel með
blóðsúthellingum en aðrar eru saklausari. Þeir sem
deyja með voveiflegum hætti eða ósáttir er hættar við
að ganga aftur og ást og hatur er því algengur hvati í
draugasögum. Í bókinni eru um 100 draugasögur úr
öllum landshlutum. Þeim fylgja myndir og kort.
288 bls.
Nýhöfn
GOR
Fagteikning í húsasmíði
Verkefnasafn
Atli Már Óskarsson
Bókin fjallar um grunnatriði og helstu eiginleika
tölvuteikninga. Hún samanstendur af 42
teikniverkefnum þar sem lögð er áhersla á hagnýta
þekkingu og þjálfun við notkun teikniforrita.
Markmiðið er að nemendur geti lesið merkingar
og verklýsingar á teikningum og notað teikniforrit
við gerð og miðlun hönnunaruppdrátta.
62 bls.
IÐNÚ útgáfa
IB
Farsótt
Hundrað ár í Þingholtsstræti 25
Kristín Svava Tómasdóttir
Þetta er saga um sjúkdóma, lækningar og tilraunir
til að vernda samfélagið gegn sóttum. Þetta er saga
borgar og velferðarkerfis en ekki síst saga af fólki.
Aðalpersónan er þó gamla timburhúsið sem byggt
var árið 1884 sem fyrsta sjúkrahús Reykvíkinga.
Síðar var það gert að farsóttaspítala, geðsjúkrahúsi
og seinast gistiskýli fyrir heimilislausa.
350 bls.
Sögufélag
IB
Fáskrúðsfjarðarsaga I-III
Þættir úr sögu byggðar til ársins 2003
Smári Geirsson
Í Fáskrúðsfjarðarsögu er fjallað um fjölmarga
efnisþætti, s.s. þróun byggðarinnar, málefni
hreppa, sjávarútveg, landbúnað, verslun, starfsemi
mikilvægra stofnana og félags- og menningarmál.
Þetta er þriggja binda verk og eru margir
Fáskrúðsfirðingar, fyrr og nú kallaðir fram á
sjónarsviðið. Fjölmargar myndir prýða bækurnar.
1805 bls.
Bókaútgáfan Hólar
SVK
Feiknstafir
Ráðgátan um Grím Thomsen
Ritstjórar: Sveinn Yngvi Egilsson og Þórir Óskarsson
Grímur Thomsen (1820–1896) var skáld,
bókmenntafræðingur, heimspekingur, embættismaður
og stjórnmálamaður. En hver var þessi maður sem
mörgum hefur reynst ráðgáta? Hópur hugvísindafólks
rannsakaði Grím og samtíma hans í tilefni af tveggja
alda afmæli hans. Þessi bók varpar nýju ljósi á einn
þekktasta fulltrúa 19. aldarinnar á Íslandi.
412 bls.
Hið íslenska bókmenntafélag
B Ó K A T Í Ð I N D I 2 0 2 2 GOR Gormabók HSP Harðspjalda bók HLB Hljóðbók IB Innbundin bók KIL Kilja RAF Rafbók G Sveigjanleg kápa58
Fræði og bækur almenns efnis