Bókatíðindi - 01.12.2022, Blaðsíða 31
SVK
Húslestur
Ritgerðir
Magnús Sigurðsson
Í bókmenntatextum sem leika á mörkum sannleika
og skáldskapar, arfs og umbyltingar, alvöruþunga
og „absúrd kómíkur“, er látið reyna á tjáningargetu
ritgerðaformsins sem skáldlistar. Viðfangsefni
þessara veraldlegu húslestra eru bæði frumleg og
fjölbreytt, en bókin ber keim af fyrri verkum höfundar,
Tregahandbókinni og Íslenskri lestrarbók.
156 bls.
Dimma
KIL RAF HLB
Hvað er Drottinn að drolla?
Auður Haralds
Miðaldra bókhaldari vaknar skyndilega upp sem
gjafvaxta ungmey í Englandi á 14. öld. Þar bíða
hennar ýmis vandræði: vafasamar hreinlætisvenjur,
brúðgumar til að bíta af sér og manndrápsplága sem
breiðist út með ógnarhraða. En lífsreynd 20. aldar
kona hefur ýmis ráð undir rifjum. Bleksvartur og
beittur Auðarhúmor eins og hann gerist bestur.
270 bls.
Forlagið - JPV útgáfa
KIL
Jarðsetning
Anna María Bogadóttir
„Við sýnum teikningar og módel af nýjum byggingum
og skálum fyrir því þegar þær rísa. Við leggjum
hornsteina og höldum reisugilli. Niðurrif og
jarðsetning bygginga fer hins vegar iðulega fram í
kyrrþey." Með hversdagslíf borgarinnar í bakgrunni
fléttar höfundurinn frásögn af lífi og dauða byggingar
saman við sögu hugmynda og sína eigin sögu.
308 bls.
Angústúra
IB
Hamingja þessa heims
Riddarasaga
Sigríður Hagalín Björnsdóttir
Sagnfræðiprófessor í útlegð, ásakaður um ósæmilega
framkomu, finnur gamalt handrit sem varpar nýju
ljósi á löngu liðna sögu. Fimmtánda öldin er öldin
sem týndist í Íslandssögunni, þegar þjóðin lenti
skyndilega í hringiðu evrópskra stjórnmála og
viðskiptahagsmuna. Hér stíga helstu persónur hennar
ljóslifandi fram; með Ólöfu ríku í broddi fylkingar.
464 bls.
Benedikt bókaútgáfa
HLB
Handritagildran: Bókaþjófurinn kjöldreginn
Friðgeir Einarsson
Lesari: Friðgeir Einarsson
Síðustu misseri hefur dularfullur aðili valdið usla
í íslenskri bókaútgáfu með glæpsamlegu athæfi.
Hann hefur stolið handritum, hótað útgefendum og
virðist hafa viðkvæmar upplýsingar um einkalíf fólks
í bókmenntageiranum í höndum. Eftir handtöku
FBI á 29 ára Ítala í New York virðist málið leyst, en
ein mikilvæg spurning stendur eftir: Af hverju?
H 4:25 klst.
Storytel
KIL
Heildarsafn ritverka Sjóns
Sjón
Með einstöku hugmyndaflugi, víðtækri þekkingu og
magnaðri stílgáfu hefur Sjón auðgað bókmenntirnar
og vakið athygli víða. Hér koma út í einu lagi öll
ritverk hans frá 1978 til 2022, þrettán ljóðabækur
og tíu skáldsögur. Í hverri bók er eftirmáli eftir
fræðimann eða rithöfund; greiningar, skýringar og
túlkanir. Verkin koma einnig út sem hljóðbækur
2292 bls.
Forlagið - JPV útgáfa
IB
Eilífs saga
Heitt hjarta og illt
Eiríkur P. Jörundsson
Á tímum galdraofsókna vestur á fjörðum fæðist
drengurinn Eilífur. Svartir hamrar tala til hans og
innra með honum búa kraftar sem hann óttast.
Vályndar návættir og huldir heimar eru nærri. Eilífs
bíða þolraunir þegar hann uppgötvar mátt sinn og
uppruna. Sagan fléttar saman raunverulega atburði og
einstaklinga við skáldaðar persónur og þjóðsögur.
463 bls.
LEÓ Bókaútgáfa
IB
Hungur
Stefán Máni
Lögreglan í Reykjavík fær tilkynningu um dularfullt
mannshvarf. Ungur maður frá Vestfjörðum sem
ætlaði að tjalda í borgarlandinu er horfinn sporlaust.
Nokkru síðar er tilkynnt um hrottalegt morð um
hábjartan dag á heimili í nágrenni Elliðaárdals. Hörður
Grímsson telur að málin tengist og að hryllingnum
sé ekki lokið. Hið illa er komið á kreik.
304 bls.
Sögur útgáfa
B Ó K A T Í Ð I N D I 2 0 2 2 31GOR Gormabók HSP Harðspjalda bók HLB Hljóðbók IB Innbundin bók KIL Kilja RAF Rafbók G Sveigjanleg kápa
Skáldverk ÍSLENSK