Bókatíðindi - 01.12.2022, Blaðsíða 48
KIL RAF HLB
Það síðasta sem hann sagði mér
Laura Dave
Þýð: Arnar Matthíasson
Hannah Hall rennismiður flytur þvert yfir Bandaríkin
til að giftast Owen, einstæðum föður sem hverfur
skyndilega og skilur hana eftir með stjúpdóttur sem
er henni ekki sérlega vinveitt. Einu skilaboðin frá
Owen eru „Verndaðu hana“. Verðlaunin Goodreads
Choice 2021, valin af bókaklúbbi Reese Witherspoon
og hefur selst í meira en 2.000.000 eintaka.
288 bls.
Benedikt bókaútgáfa
KIL RAF HLB
Þernan
Nita Prose
Þýð: Magnea J. Matthíasdóttir
Þernan Molly Gray er frábær í sínu starfi en hún
á það til að misskilja og rangtúlka aðra og hefur
engan lengur til að hjálpa sér að skilja heiminn eftir
að amma hennar dó. Þegar auðkýfingur einn finnst
látinn í herbergi sínu og grunur fellur á Molly eru
góð ráð dýr en hún kemst að raun um það hverjir
eru vinir hennar í raun – og hverjir ekki.
375 bls.
Forlagið - JPV útgáfa
KIL RAF HLB
Þessu lýkur hér
Colleen Hoover
Þýð: Birgitta Elín Hassell og Marta Hlín Magnadóttir
Stundum er það sá sem maður elskar mest sem
særir dýpst. Lífið hefur ekki alltaf verið Lily auðvelt
og hún hefur þurft að leggja hart að sér. Hún komst
frá smábænum sem hún ólst upp í, útskrifaðist úr
háskóla, flutti til Boston og stofnaði eigið fyrirtæki.
Þegar hún kynnist heila- og taugaskurðlækninum
Ryle virðist lífið hreinlega of gott ...
400 bls. / H 11:54 klst.
Björt bókaútgáfa - Bókabeitan
KIL RAF HLB
Þetta gæti breytt öllu
Jill Mansell
Þýð: Snjólaug Bragadóttir
Ef Essie hefði ekki skrifað þetta tölvubréf – sem
enginn átti að sjá nema besta vinkona hennar en fór
óvart til allra sem hún þekkti – væri hún enn örugg
í fanginu hjá Paul og jafnvel að undirbúa brúðkaup
þeirra. En þá hefði hún aldrei flutt í risíbúðina við
torgið – og aldrei hitt Conor eða kynnst Lucasi ...
384 bls.
Ugla
KIL
Ævintýri frá Kóreu og Japan
Endurs: Unnur Bjarnadóttir
Myndh: Elías Rúni
Ævintýri frá Kóreu og Japan er endursögn fimm
kóreskra og fimm japanska ævintýra á íslensku. Í þeim
er að finna persónugervinga mismunandi náttúruafla,
dísir og guði sem búa bæði á himnum og á sjávarbotni,
og börn sem finnast inni í trjám eða ávöxtum.
Hverju ævintýri fylgir stutt umfjöllun og einnig er
gerð grein fyrir sögu og menningu landanna.
96 bls.
Bókaútgáfan Asía
KIL RAF HLB
Vargar í véum
Hans Rosenfeldt
Þýð: Nanna Brynhildur Þórsdóttir
Blóðugt uppgjör glæpagengja. Dauðir úlfar með
mannakjöt í maganum. Kaldrifjaður útsendari
rússnesku maf íunnar mætir á svæðið. Lögreglan
í sænska landamærabænum Haparanda kann að
fást við smákrimma en hér er við öllu svæsnari
glæpamenn að etja. Lögreglukonan Hanna
þarf að takast á við erfið mál um leið og hún
stríðir við ýmsar flækjur í einkalífinu.
381 bls.
Forlagið - JPV útgáfa
KIL RAF HLB
Veðurteppt um jólin
Sarah Morgan
Þýð: Birgitta Elín Hassell og Marta Hlín Magnadóttir
Fjölskyldujól og óvæntur gestur! Miller-systkinin;
Ross, Alice og Clemmie eru á leið heim til foreldra
sinna yfir jólin. Lucy Clarke sér fram á mögulegan
starfsmissi í nýársgjöf – nema hún geti fengið Ross
Miller í samstarf. Þegar Lucy birtist á tröppunum
hjá Miller-fjölskyldunni halda þau að hún sé
kærasta Ross og taka henni fagnandi.
408 bls.
Björt bókaútgáfa - Bókabeitan
KIL
Veldi hinna illu
Anthony Burgess
Þýð: Helgi Ingólfsson
Í þessari miklu skáldsögu segir frá útbreiðslu kristni í
Rómaveldi á 1. öld þegar misvitrir og spilltir keisarar
á borð við Tíberíus, Calígúla og Neró ríktu. Þetta
er ein metnaðarfyllsta skáldsaga Anthonys Burgess
og býr yfir öllum hans bestu höfundareinkennum
– í senn fyndin og sorgleg, blíð og grimm, raunsæ
og heimspekileg en umfram allt mannleg.
604 bls.
Ugla
KIL RAF HLB
Velkomin heim
Ninni Schulman
Þýð: Elín Guðmundsdóttir
Einn síðsumardag í Hagfors fær blaðakonan Magdalena
Hansson boð um að hitta gamla bekkjarfélaga úr
grunnskóla. Ætlunin er að dvelja í kennarabústaðnum
eins og þau gerðu eina helgi í 9. bekk. Við
endurfundina virðast allir falla í gamalt mynstur og
fljótlega kemur upp á yfirborðið óuppgerð misklíð.
Um kvöldið finnst einn bekkjarfélaginn dáinn ...
532 bls.
Ugla
KIL RAF HLB
Við skulum ekki vaka
Heine Bakkeid
Þýð: Magnús Þór Hafsteinsson
Thorkild Aske heldur með systur sinni til Íslands að
heimsækja aldraðan föður þeirra, Úlf, sem glímir við
krabbamein. Úlfur er mikill umhverfissinni og á að
baki litríka ævi í endalausu stríði við íslensk stjórnvöld.
Á Íslandi sogast Thorkild inn í morðmál sem
tengjast umhverfisvernd og virkjanaframkvæmdum
– og æsilegir leikar berast um landið.
447 bls.
Ugla
B Ó K A T Í Ð I N D I 2 0 2 2 GOR Gormabók HSP Harðspjalda bók HLB Hljóðbók IB Innbundin bók KIL Kilja RAF Rafbók G Sveigjanleg kápa48
Skáldverk ÞÝDD