Bókatíðindi - 01.12.2022, Blaðsíða 51
SVK
Máltaka á stríðstímum
Natasha S.
Máltaka á stríðstímum er frásögn manneskju
sem fylgist með stríði í heimalandi sínu úr
fjarlægð. Hennar eigin þjóð, Rússar, hervæðist
og ræðst inn í Úkraínu. Andstaða höfundar við
stríðsreksturinn vekur margslungnar tilfinningar og
spurningar sem glímt er við í bókinni. Bókin hlaut
Bókmenntaverðlaun Tómasar Guðmundssonar.
68 bls.
Una útgáfuhús
SVK
Með flugur í höfðinu
Sýnisbók íslenskra örsagna og prósaljóða 1922–2012
Umsj: Kristín Guðrún Jónsdóttir og Óskar Árni
Óskarsson
Í þessu yfirliti eru afar fjölbreyttir textar eftir tugi
íslenskra skálda, fyndnir, ljóðrænir, angurværir
eða beittir. Allir eiga það sameiginlegt að liggja
á mörkum ljóðs og sögu og fá margir spennu
sína af því. Kristín Guðrún ritar einnig inngang
þar sem hún rekur sögu bókmenntaformsins
og veltir fyrir sér skilgreiningum þess.
214 bls.
Forlagið - Mál og menning
SVK
Meinvarp
Hildur Eir Bolladóttir
Séra Hildur Eir er prestur í Akureyrarkirkju
og lýsir hér af einlægni, næmni og húmor
glímu sinni við krabbamein og tilfinningunum
sem fylgja þeim átökum: Sársauka og sorg
en líka gleði, trú, von og sátt.
36 bls.
Forlagið - Vaka-Helgafell
SVK
Krossljóð
Sigurbjörg Þrastardóttir
Sigurbjörg Þrastardóttir fer hér nýstárlega leið í
skáldskap sínum og slæst í för með 40 erlendum
skáldum af ólíkum uppruna. Ásamt því að þýða ljóð
eftir hvert og eitt þeirra dregur hún fram óbirt ljóð
úr eigin fórum sem kallast á við raddir gestanna.
115 bls.
Dimma
KIL
Lifað með landi og sjó
Jón Hjartarson
Myndh: Ása Önnu- og Ólafsdóttir
Höfundur er Strandamaður að ætt og uppruna.
Lifað með landi og sjó er sjöunda bók Jóns og
fyrsta ljóðabók hans. Ljóðin eru persónuleg –
óður til náttúru Íslands og sögu lands og þjóðar.
Ása Önnu- og Ólafsdóttir myndskreytti.
64 bls.
Bókaútgáfan Sæmundur
IB
Ljóðin hennar Vigdísar
Umsj: Vigdís Finnbogadóttir
Myndh: Guðbjörg Lind Jónsdóttir
Vart verður fundin meiri ástríðumanneskja en Vigdís
Finnbogadóttir þegar kemur að íslenskri tungu og
menningu. Vigdís hefur alla tíð verið unnandi ljóðlistar
og hér tekur hún saman helstu ljóðin sem hafa fylgt
henni frá bernsku til dagsins í dag. Einstök verk
listakonunnar Guðbjargar Lindar auðga ljóðlínurnar
og mynda skemmtilegt samtal við kvæðin.
124 bls.
Sögur útgáfa
KIL
Ljósker
Lísa María Jónsdóttir
Myndskreytt ljóðabók. Bókin Ljósker er óður til
lífsins og náttúrunnar, en með henni vill höfundur
höfða til mannlegrar tilvistar hér á jörð.
120 bls.
Lísa María Jónsdóttir
SVK
Manndómur
Þorvaldur Sigurbjörn Helgason
Kraftmikið og áleitið verk um uppvöxt drengs til
manns, um ást og sorg og það að sættast við sjálfan
sig. Þorvaldur hefur birt sögur og ljóð í bókum og
tímaritum og sent frá sér tvær ljóðabækur.
63 bls.
Forlagið - Mál og menning
Vertu ekki bóklaus á jólanótt
B Ó K A T Í Ð I N D I 2 0 2 2 51GOR Gormabók HSP Harðspjalda bók HLB Hljóðbók IB Innbundin bók KIL Kilja RAF Rafbók G Sveigjanleg kápa
Ljóð og leikrit