Bókatíðindi - 01.12.2022, Blaðsíða 8
IB
Leitin að Lúru
Margrét Tryggvadóttir og Anna Cynthia Leplar
Hundurinn Kaffon á góðan leikfélaga. Það er
hún Lúra. En núna er Lúra týnd. Kaffon spyr öll
dýrin hvar Lúra geti verið en ekkert þeirra veit
svarið. Og þó … Leitin að Lúru er falleg saga
fyrir yngstu bókaormana eftir höfunda sem sent
hafa frá sér fjölda vinsælla barnabóka.
32 bls.
Forlagið - Mál og menning
IB
Lindis and the bubble house
Guðný Anna Annasdóttir
Myndir: Páll Jóhann Sigurjónsson
Þýð: John Tebbutt
Lindís er leikskólastelpa sem fer í heimsókn til
afa síns í kúluhúsið hans við Lake Erie.
Hún lærir af afa sínum hvernig hægt er að lifa með
virðingu fyrir náttúrunni og umhverfinu. Því umhverfið
og náttúran umlykja allt okkar mannlega samfélag.
Bókin er á ensku.
32 bls.
Gudda Creative
SVK
Lindis og boblehuset
Guðný Anna Annasdóttir
Myndir: Páll Jóhann Sigurjónsson
Þýð: Guðný Anna Annasdóttir
Lindís er leikskólastelpa sem fer í heimsókn til
afa síns í kúluhúsið hans við Lake Erie.
Hún lærir af afa sínum hvernig hægt er að lifa með
virðingu fyrir náttúrunni og umhverfinu. Því umhverfið
og náttúran umlykja allt okkar mannlega samfélag.
Bókin er á dönsku.
32 bls.
Gudda Creative
IB
Lindis stikker af fra børnehaven
Guðný Anna Annasdóttir
Myndir: Páll Jóhann Sigurjónsson
Þýð: Guðný Anna Annasdóttir
Bókin fjallar um 4 ára stelpu sem heitir Lindís. Hún
er í leikskólanum Björk í Árósum og einn mánudag
leiðist henni svo mikið að hún tekur til sinna ráða.
Bókin er á dönsku.
32 bls.
Gudda Creative
IB
Lindís getur flogið
Guðný Anna Annasdóttir
Myndir: Páll Jóhann Sigurjónsson
Það er komið vetrarfrí í Kóraskóla í Kópavogi.
Lindís fer í draumaferð til Frakklands með
ömmu sinni. Hún flýgur í þotu, ferðast með
lest og fær að upplifa að fljúga sjálf.
32 bls.
Gudda Creative
IB
Könguló sem hvergi bjó
Jón Pétur Hansson
Myndir: Lena Björk Bjarnadóttir
Þegar vinaleg könguló ákveður að hún sé búin
að finna sinn heimastað þá lætur hún ekkert
stöðva sig, með góða vini sér við hlið.
Könguló sem hvergi bjó er bók sem bæði er
gaman að lesa og hlusta á. Hugrökk og hjálpsöm
könguló sem sýnir okkur að góð framkoma og
vinalegheit skilar sér margfalt til baka.
36 bls.
LEÓ Bókaútgáfa
IB
Lara goes swimming
Birgitta Haukdal
Myndir: Anahit Aleqsanian
Þýð: Abigail Cooper
Tvær vinsælar Lárubækur eru nú loks fáanlegar
á ensku og lýsa íslenskum hversdegi á heillandi
hátt. Lára fer í útisundlaug, æfir sundtökin með
afa og leikur sér í grunnu lauginni með Atla vini
sínum. Á heimleiðinni fer hún í ísbúð.
41 bls.
Forlagið - Vaka-Helgafell
IB
Lara visits the farm
Birgitta Haukdal
Myndir: Anahit Aleqsanian
Þýð: Abigail Cooper
Tvær vinsælar Lárubækur eru nú loks fáanlegar
á ensku og lýsa íslenskum hversdegi á heillandi
hátt. Á heitum sumardegi fer Lára í heimsókn til
afa og ömmu Atla vinar síns. Þau eru bændur sem
hafa gert upp gamlan torfbæ fyrir ferðamenn.
Í sveitinni er margt forvitnilegt að sjá og
dýravinurinn Lára nýtur þess að hjálpa til.
41 bls.
Forlagið - Vaka-Helgafell
IB
Lára fer í útilegu
Birgitta Haukdal
Myndir: Anahit Aleqsanian og Elen Nazaryan
Fjölskylda Láru er á leið í útilegu og Lára fær að
bjóða Atla vini sínum með. Á tjaldstæðinu hitta þau
hóp af skemmtilegum krökkum og fara í æsilegt
vatnsstríð. Þegar kvölda tekur er notalegt að hjúfra
sig undir teppi við varðeldinn. Sögur Birgittu
Haukdal um Láru og bangsann Ljónsa eru litríkar
og fallegar bækur sem krakkar hrífast af.
41 bls.
Forlagið - Vaka-Helgafell
IB
Láttu draumana rætast
11 hvetjandi sögur
Þýð: Baldur Snær Ólafsson
Farðu í ævintýraferð með þessu safni af hvetjandi
frásögnum, sem eru fullkomnar fyrir skemmtilega
sögustund. Með 11 stórkostlegar sögur í farteskinu,
fara litlir ferðalangar með stóra drauma í geimferð
með Kötu, klífa hæsta tréð með Tinnu, gæða sér á
pönnukökum með Edda og ótal margt fleira.
96 bls.
Setberg
B Ó K A T Í Ð I N D I 2 0 2 2 GOR Gormabók HSP Harðspjalda bók HLB Hljóðbók IB Innbundin bók KIL Kilja RAF Rafbók G Sveigjanleg kápa8
Barnabækur MYNDRÍK AR