Bókatíðindi - 01.12.2022, Blaðsíða 35
IB
Tálsýn
Rannveig Borg Sigurðardóttir
Líf Önnu er eins og spegilslétt yfirborð vatnsins. Þar
birtist mynd af framakonu sem allir vegir eru færir. En
vatnið tekur að gárast og vísbendingar um að óvinveitt
öfl sæki að Önnu hrannast upp. Rannveig Borg
Sigurðardóttir sló í gegn með fyrstu bók sinni, Fíkn,
og fylgir henni hér eftir með afar spennandi bók.
276 bls.
Sögur útgáfa
IB RAF
Tól
Kristín Eiríksdóttir
Líkt og í fyrri bókum Kristínar Eiríksdóttur virðist allt
blasa við en ekkert er sem sýnist. Hvernig tengist Villa
Dúadóttir hvalveiðimanninum Dimma, sem hún hefur
nú gert um heimildamynd? Hvers vegna vill hún segja
sögu hans? Er yfirleitt viðeigandi að hún geri það? Og
hvað með Amalíu, sem hún klippti út úr myndinni?
352 bls.
Forlagið - JPV útgáfa
RAF HLB
Trúnaður
Rebekka Sif Stefánsdóttir
Lesari: Orri Huginn Ágústsson, Þórdís Björk
Þorfinnsdóttir, Ísgerður Elfa Gunnarsdóttir, Þórey
Birgisdóttir, Birna Pétursdóttir og Katla Njálsdóttir
Það er komið að saumaklúbbi og vinkonurnar fimm
sem hafa þekkst síðan í menntaskóla hafa allar ólíkar
væntingar til kvöldsins. Í aðdraganda saumaklúbbsins
fylgjumst við með þeim undirbúa sig og setja á
sig grímuna fyrir kvöldið. Draugar fortíðar banka
upp á og uppgjörið framundan er óumflýjanlegt.
Vinkonuhópurinn verður aldrei samur.
H 5:06 klst.
Storytel
IB RAF
Tugthúsið
Haukur Már Helgason
Þegar sýslumenn vildu fá að hengja lausgangara
landsins kom tilskipun frá danska kónginum um að
reisa tugthús. Næstu áratugi hírðust konur og karlar
í Tugthúsinu við Arnarhól við hörmulegar aðstæður.
Áleitin skáldsaga sem varpar ljósi á lífið í Reykjavík
á seinni hluta 18. aldar, aumustu þegna landsins
og valdhafana sem sýsluðu með örlög þeirra.
453 bls.
Forlagið - Mál og menning
IB RAF
Strákar sem meiða
Eva Björg Ægisdóttir
Maður finnst myrtur í sumarbústað í
Skorradal. Á veggnum fyrir ofan hann hafa
verið skilin eftir blóðug skilaboð.
Elma glímir hér við sérlega erfitt mál sem
teygir anga sína víða um samfélagið og tugi ára
aftur í tímann – ekki síst eftir að gömul dagbók
ungs drengs finnst. Og á Akranesi er fólk sem
vill alls ekki að sannleikurinn komi í ljós.
351 bls.
Veröld
KIL
Svar við bréfi Helgu
Bergsveinn Birgisson
Endurútgáfa einnar vinsælustu skáldsögu sem út hefur
komið hin síðari ár og nú hefur verið kvikmynduð.
106 bls.
Bjartur
KIL
Svefngríman
Örvar Smárason
Átta smásögur sem vega salt á mörkum þess
hversdagslega og þess fáránlega. Síðasti kaffibollinn
fyrir heimsendi, eðlilegur útlimamissir, úthverfablinda,
gervigreindarvinátta, óráð, ímyndun, sambönd
og tengslaleysi. Verk sem hlaut nýræktarstyrk
Miðstöðvar íslenskra bókmennta.
156 bls.
Angústúra
SVK
Takk fyrir komuna
Hótel Saga geymir ýmis leyndarmál og ævintýri,
þar blandast fólk og aðrar furðuverur eins og skyr
og hafragrautur. Nokkrir meistaranemar í ritlist,
með aðstoð ritstjóra sinna, töfra hér fram ljóð
og sögur sem verða að ljúffengum hræringi með
svignandi veisluborðum, klámi, daðri, óvæntum
uppákomum, dulúð og dauðum hana.
188 bls.
Una útgáfuhús
Þar sem týpurnar
versla er þér óhætt!
B Ó K A T Í Ð I N D I 2 0 2 2 35GOR Gormabók HSP Harðspjalda bók HLB Hljóðbók IB Innbundin bók KIL Kilja RAF Rafbók G Sveigjanleg kápa
Skáldverk ÍSLENSK