Bókatíðindi - 01.12.2022, Blaðsíða 4
SVK
Skrifum og þurrkum út
Dundað með einhyrningum
Kirsteen Robson
Hver elskar ekki einhyrninga? Þessi fallega
bók er tilvalin fyrir krakka sem eru að læra
að stjórna penna, telja og skrifa tölustafina.
Skemmtileg verkefni sem þjálfa athyglisgáfuna
og hægt er að gera aftur og aftur.
22 bls.
Rósakot
IB
Enginn
Svein Nyhus
Þýð: Aðalsteinn Ásberg Sigurðsson
Falleg og skemmtileg myndabók eftir einn
fremsta höfund Norðmanna. Hér segir frá
Engum sem býr einn í húsinu sínu og er svolítið
einmana, en svo hittir hann Einhvern.
Hnittin frásögn og frábær leikur með orð
í leiðinni. Sannkallað meistaraverk.
48 bls.
Dimma
IB
Ég er Jazz
Jazz Jennings og Jessica Herthel
Myndh: Shelagh McNicholas
Frá tveggja ára aldri vissi Jazz að hún væri stelpa
þó að allir héldu að hún væri strákur. Þetta olli
ruglingi í fjölskyldunni. Foreldrarnir fóru með
hana til læknis sem greindi Jazz sem trans og
útskýrði að hún væri fædd á þennan hátt. Þetta
er saga Jazz sem byggir á upplifun hennar.
32 bls.
Bókabeitan
IB
Ég er (næstum) alltaf góð manneskja
Anna Milbourne
Ég er (næstum) alltaf góð manneskja er bók sem fjallar
um mikilvægi þess að vera góður við aðra og reyna að
setja sig í spor annarra. Það skiptir meira máli en að
geta hlaupið hratt eða svarað öllu sem við erum spurð
um. Falleg bók í stóru broti fyrir unga sem aldna.
21 bls.
Rósakot
IB
Ég njósna með Múmínsnáðanum
Tove Jansson
Þýð: Jakob F. Ásgeirsson
Múmínsnáðinn njósnar um alls konar hluti á
göngu sinni um Múmíndal. Snúðu hjólinu á
hverri opnu til að koma auga á allt sem hann
sér — í garðinum, við ána og á ströndinni.
Ein af hinum sívinsælu myndabókum sem
byggðar eru á sögum Tove Jansson.
10 bls.
Ugla
HSP
Bóbó bangsi og jólin
Jólasaga með flipa til að opna!
Þýð: Kolbeinn Þorsteinsson
Þegar óskalistahraðsendillinn stansar fyrir utan
heimili Bóbó bangsa um miðja nótt til að sækja
síðustu óskalistana, stekkur Bóbó bangsi á sleðann
án þess að hika og endar heima hjá jólasveininum.
Þar er svo sannarlega margt að sjá! En hvernig kemst
Bóbó bangsi aftur heim til sín? Hrífandi jólabók
með texta, myndum og fjölda flipa til að opna!
20 bls.
Setberg
IB
Depill kann að telja
Eric Hill
Þýð: Jakob F. Ásgeirsson
Lærum að telja frá einum upp í tíu með
Depli, hundinum ástsæla.
Hvað eru dýrin á bændabýlinu mörg?
Lyftu flipunum og það kemur í ljós!
Bækurnar um Depil eru eftirlætis
flipabækur barnanna.
28 bls.
Ugla
IB
Depill úti í snjó
Brúðubók
Eric Hill
Þýð: Jakob F. Ásgeirsson
Fingrabrúða af Depli er áföst bókinni og
skýtur upp kollinum á hverri síðu.
– Þegar snjóar fara allir út að leika sér! Komdu
út að leika með Depli í snjónum og leiktu
með skemmtilegu fingrabrúðunni.
10 bls.
Ugla
IB
Obbuló í Kósímó
Duddurnar
Kristín Helga Gunnarsdóttir
Myndh: Halldór Baldursson
Oddný Lóa Þorvarðardóttir býr í
Kjóamóa þrjúhundruð og sjö.
Hvaða krakki getur sagt það? Enginn.
Obbuló á heima í Kósímó.
Er hægt að hætta með duddu? Getur afi hætt að drekka
kaffi? Mega börn vera alein heima á kvöldin?
Þessum spurningum og öðrum er svarað í bókinni.
30 bls.
Bjartur
SVK
Skrifum og þurrkum út
Dundað með dýrunum
Kirsteen Robson
Þessi litríka bók er tilvalin fyrir krakka sem
eru að læra að stjórna penna, telja og skrifa
tölustafina. Skemmtileg verkefni með alls konar
dýrum sem hægt er að gera aftur og aftur.
24 bls.
Rósakot
B Ó K A T Í Ð I N D I 2 0 2 2 GOR Gormabók HSP Harðspjalda bók HLB Hljóðbók IB Innbundin bók KIL Kilja RAF Rafbók G Sveigjanleg kápa4
Barnabækur MYNDRÍK AR