Bókatíðindi - 01.12.2022, Blaðsíða 55
IB
Gullöldin
Myndir og minningar
Rúnar Gunnarsson
Í 60 ár hefur Rúnar Gunnarsson af eljusemi og
fagkunnáttu tekið ógrynni ómótstæðilegra ljósmynda
af fjölskrúðugu mannlífinu í Reykjavík. Úrval þeirra
má nú sjá í þessari veglegu ljósmyndabók. Í bókinni
er að auki sjálfsævisögulegur inngangur höfundar
með ljósmyndasögulegu ívafi auk smásagna sem
vekja upp bæði ljúfar og ljúfsárar minningar.
272 bls.
Nýhöfn
IB
Gunnar Örn – Retrospective
Gunnar Örn Gunnarsson, Aldís Arnardóttir og
Ólafur Elíasson
Myndir: Sigurgeir Sigurjónsson
Þýð: Ingunn Snædal
Gunnar Örn kom með sprengikrafti inn á svið
íslenskrar myndlistar og helgaði sér þar brátt rými.
Hann festi sig hvergi í straumum né stefnum en
kappkostaði að skapa eigin stíl af einstöku næmi
og dirfsku. Hér er haldið til haga verkum þessa
fjölhæfa listamanns frá fjörutíu ára ferli hans.
248 bls.
Forlagið
IB
Iceland – Photographer’s Paradise
Ritstjóri: Jón Sveinsson
Úrval glæsilegra Íslandsmynda eftir nokkra
innlenda og erlenda ljósmyndara sem sýna landið
í fjölbreytilegu ljósi á öllum tímum árs. Einstök
handbók fyrir alla náttúruunnendur.
144 bls.
Forlagið - Vaka-Helgafell
IB
Svona er Akranes
Friðþjófur Helgason
Friðþjófur Helgason hefur tekið ljósmyndir á
Akranesi í hartnær hálfa öld og er hvergi nærri
hættur. Myndasafn hans er einstök heimild um
mannlíf, sögu og samfélagið á Skaganum.
128 bls.
MTH útgáfa
SVK
Verksmiðjan á Hjalteyri
Draumarústir
Margrét Elísabet Ólafsdóttir, Bryndís
Snæbjörnsdóttir, Dominique Gauthier og Pari Stave
Ritstjóri: Margrét Elísabet Ólafsdóttir
Listamannarekna rýmið Verksmiðjan á Hjalteyri
tók til starfa í gömlu síldarverksmiðunni á
Hjalteyri haustið 2008. Í bókinni er starfseminni
lýst í máli og myndum og fjallað um stöðu
Verksmiðjunnar sem listamannarekins rýmis
í innlendu og erlendu samhengi.
139 bls.
Verksmiðjan á Hjalteyri
Listir og ljósmyndir
IB
Abstrakt – Geómetría
á Íslandi 1950–1960
Ritstjóri: Ólafur Kvaran
Ásdís Ólafsdóttir
Abstrakt – Geómetría á Íslandi 1950–1960 er
glæsilegt stórvirki um eitt gróskumesta tímabil
íslenskrar listasögu. Í fyrsta sinn voru myndlistarmenn
okkar samstíga öðrum norrænum og evrópskum
kollegum. Fjöldi mynda af einstökum verkum þessara
listamanna er að finna í bókinni og fróðlegur texti
um listina á tímabilinu sem og listamennina.
266 bls.
Veröld
SVK
Arctic Creatures
Stefán Jónsson, Óskar Jónasson og Hrafnkell
Sigurðsson
Þrír vinir fara á hverju sumri í óbyggðir og eyðifirði og
búa til list úr því sem á leið þeirra verður eða þeir finna
í fjörum; rusli, dóti, plasti ... Ljósmyndabók á ensku.
80 bls.
Bjartur
IB
Georg Guðni / Berangur
Jón Kalman Stefánsson og Einar Garibaldi Eiríksson
Ljóð: Harpa Rún Kristjánsdóttir
Ritstjóri: Ragnheiður Vignisdóttir
Vegleg útgáfa vegna sýningarinnar Georg Guðni /
Berangur. Falleg útgáfa um íslenska myndlist sem
listunnendur ættu ekki að láta fram hjá sér fara!
108 bls.
Listasafn Íslands
IB
Guðmundur Thorsteinsson - Muggur
Kristín G. Guðnadóttir
Ritstjóri: Harpa Þórsdóttir
Vegleg útgáfa um listamanninn Guðmund
Thorsteinsson - Mugg
Sagt var að allt sem Muggur snerti yrði að listaverki
og mótaðist af hinum einstaka persónuleika hans.
207 bls.
Listasafn Íslands
Listir og ljósmyndir
B Ó K A T Í Ð I N D I 2 0 2 2 55GOR Gormabók HSP Harðspjalda bók HLB Hljóðbók IB Innbundin bók KIL Kilja RAF Rafbók G Sveigjanleg kápa
Listir og ljósmyndir