Bókatíðindi - 01.12.2022, Blaðsíða 9
IB
Múmínsnáðinn og óskastjarnan
Tove Jansson
Þýð: Tinna Ásgeirsdóttir
Múmínsnáðinn finnur fallegan, ljómandi stein.
Snorkstelpan og Snabbi halda að hann sé
fallin stjarna og að Múmínsnáðinn megi óska
sér! En óskir geta verið ansi flóknar ...
Tekst Múmínsnáðanum að velja sér eina
ósk áður en stjarnan fölnar?
Ein af hinum sívinsælu myndabókum sem
byggðar eru á sögum Tove Jansson.
29 bls.
Ugla
IB
Múmínsnáðinn og vetrarsnjórinn
Tove Jansson
Þýð: Tinna Ásgeirsdóttir
Veturinn kemur snemma í Múmíndal og vinur
Múmínsnáðans þarf að ferðast suður á bóginn.
Múmínsnáðinn veltir fyrir sér hvort Snúður muni
sakna hans jafn mikið og hann muni sakna Snúðs.
Og ef svo sé, hvernig hann geti vitað það?
Ein af hinum sívinsælu myndabókum sem
byggðar eru á sögum Tove Jansson.
28 bls.
Ugla
IB
Múmínsnáðinn úti í náttúrunni
Toga-og-leita ævintýri
Tove Jansson
Þýð: Jakob F. Ásgeirsson
Múmínsnáðinn fer út að leita að Snúði vini
sínum. Hvar gæti hann verið?
Í þessari bók er hægt að toga út myndir
úr ævintýraferð Múmínsnáðans og skoða
hinn dásamlega heim Múmíndals.
10 bls.
Ugla
IB
Ósýnilegur gestur í múmíndal
Cecilia Davidsson
Myndir: Filippa Widlund
Þýð: Gerður Kristný
Hugljúf og falleg endursögn á smásögu Tove Jansson
um stúlkuna Ninnu sem varð ósýnileg þegar hún
dvaldi hjá kuldalegri frænku. Tikkatú er viss um
að hjá múmínfjölskyldunni muni Ninna verða
sýnileg aftur en múmínsnáðinn og Mía litla eru
ekki sammála um hvaða leið sé best til þess. Litríkar
myndir varpa töfraljóma á lífið í múmíndal.
34 bls.
Forlagið - Mál og menning
SVK
Lindís vitjar neta
2 . útgáfa
Guðný Anna Annasdóttir
Myndir: Páll Jóhann Sigurjónsson
Bókin fjallar um 4 ára stelpu sem heitir Lindís.
Hún fer í páskaheimsókn með fjölskyldunni til
Ísafjarðar. Þar fer hún á grásleppuveiðar með pabba
sínum, Manga Langa og Sigga Suðurtanga.
33 bls.
Gudda Creative
HSP
Litlu börnin læra orðin
Rhea Gaughan
Þýð: Andri Karel Ásgeirsson
Litlu börnin læra orðin með púslkubbum.
Orðapúslið sem finna má í þessari bók er
skemmtilegt og fræðandi og sérstaklega
hannað með yngstu kynslóðina í huga.
8 bls.
Unga ástin mín
SVK
Lærum og leikum
með Mikka og félögum
Walt Disney
Í gegnum sögur og leiki sjáum við hvernig
þau eru góð hvert við annað og vanda sig
við það sem þau eru að gera.
44 bls.
Edda útgáfa
IB
Mamma kaka
Lóa Hlín Hjálmtýsdóttir
Viggó er kominn í vetrarfrí. En það er mamma alls
ekki. Hún hefur engan tíma til að leika við Viggó
heldur vill bara vinna, sussa og skammast. Þá væru
góð ráð dýr fyrir flesta krakka. En ekki fyrir Viggó!
56 bls.
Salka
IB
Múmín mallakútur
1, 2, 3
Tove Jansson
Þýð: Jakob F. Ásgeirsson
Teljum frá 1 upp í 10 með þessari
skemmtilegu harmónikubók.
Skarpar litaandstæður og mynstur gera þessa bók
að fullkominni skemmtun fyrir litla mallakúta.
10 bls.
Ugla
Verslaðu heima
www.boksala.is
B Ó K A T Í Ð I N D I 2 0 2 2 9GOR Gormabók HSP Harðspjalda bók HLB Hljóðbók IB Innbundin bók KIL Kilja RAF Rafbók G Sveigjanleg kápa
Barnabækur MYNDRÍK AR