Bókatíðindi - 01.12.2022, Blaðsíða 67
IB
Unser Leben mit Pferden
Benedikt Líndal og Sigríður Ævarsdóttir
Þýð: Marietta Maissen og Pétur Behrens
Í þessari einstöku og fallega myndskreyttu bók, er
talað um hesta frá ýmsum sjónarhornum. Höfundar
skrifa út frá hjartanu um reynslu sína af hestum
og lífi sínu með þeim. Sagt er frá eftirminnilegum
hestum og inn í frásögnina er fléttað fræðslu, sögum,
og því nýjasta sem uppgötvað hefur verið um hesta.
Bókin er fáanleg á íslensku, ensku og þýsku.
256 bls.
Nýhöfn
IB
Veðurskeyti frá Ásgarði
Ferðahandbók um tónverk
Ritstjóri: Atli Ingólfsson
Veðurskeyti frá Ásgarði er eins konar ferðahandbók
um söngverk Atla Ingólfssonar, Elsku Borga mín,
og myndbandsverk sem Jeannette Castioni gerði
við það. Verkin byggjast á sendibréfum sem Lilja
Magnúsdóttir, bóndakona í Ásgarði í Dölum, skrifaði
dóttur sinni um miðja 20. öldina. Bókin samanstendur
af greinum fræðafólks úr ýmsum áttum.
88 bls.
Forlagið - JPV útgáfa
IB RAF
Vegabréf: Íslenskt
Frá Afganistan til Bosníu og Búrkína Fasó
Sigríður Víðis Jónsdóttir
Sigríður Víðis Jónsdóttir býður lesandanum
að fylgja sér á ferðalögum um heiminn, m.a. til
Palestínu, Sýrlands og Rúanda. Í gegnum frásagnir
af fólki á hverjum stað miðlar hún heimssögunni
af einstakri næmni og virðingu, og minnir okkur
á að þrátt fyrir að höf og eyðimerkur skilji okkur
að búum við öll undir sama himni, sömu sól.
426 bls.
Forlagið - Mál og menning
IB
Tíminn minn 2023
Björg Þórhallsdóttir
Hlý og fallega myndskreytt dagbók eftir íslensku
listakonuna Björgu Þórhallsdóttur.
164 bls.
Bókafélagið
IB
Tíminn og trúin
Kirkjuárið og textaraðirnar
Sigurjón Árni Eyjólfsson
Sömu ritningartextar eru lesnir upp í kristnum
guðsþjónustum um heim allan árið um kring og
lagt út af þeim í prédikun, söng og bæn. Segja
má að þessir textar birti tiltölulega skýra mynd af
kristnum hugmyndaheimi. En hvernig byrjaði þetta
allt saman? Hvers vegna urðu textaraðirnar kjölfesta
kirkjuársins og hver eru innbyrðis tengsl þeirra?
384 bls.
Skálholtsútgáfan - Kirkjuhúsið
SVK
Tómið eftir sjálfsvíg
Anna Margrét Bjarnadóttir
Í Tóminu eftir sjálfsvíg segja aðstandendur frá
einni erfiðustu upplifun lífs síns, missi ástvinar í
sjálfsvígi. Sögurnar eru átakanlegar en þær veita
von. Í bókinni eru jafnframt kaflar sem veita
aðstandendum bjargráð í sorgarferlinu.
192 bls.
Bókafélagið
SVK
Um skáldskaparmenntina
Árni Sigurjónsson
Um skáldskaparmenntina er safn ritgerða eftir Árna
Sigurjónsson um bókmenntafræði og mælskufræði.
Þær varpa m.a. ljósi á verk Halldórs Laxness, Níelsar
skálda, og að ferðafrásögnum Íslendinga um Sovétríkin
á árunum milli heimsstyrjalda. Þá eru grunnhugtök
mælskufræði kynnt en sú grein skipaði veglegan
sess í skólum Vesturlanda í margar aldir.
251 bls.
Hið íslenska bókmenntafélag
IB
Undir gjallregni
Ólafur Ragnar Sigurðsson
Frásögn lögreglumanns af gosinu í Eyjum 1973
er einstök og persónuleg frásögn sjónarvottar
af miklum sögulegum atburðum. Hún er saga af
fólki sem tók hrikalegum náttúruhamförum af
æðruleysi og þrautseigju í þeirri von að hægt yrði
að byggja Eyjar á ný, eins og raunin varð.
166 bls.
Bókafélagið
Þar sem týpurnar versla er þér óhætt!
B Ó K A T Í Ð I N D I 2 0 2 2 67GOR Gormabók HSP Harðspjalda bók HLB Hljóðbók IB Innbundin bók KIL Kilja RAF Rafbók G Sveigjanleg kápa
Fræði og bækur almenns efnis