Bókatíðindi - 01.12.2022, Blaðsíða 3
Barnabækur
MYNDRÍKAR
IB
5 mínútna kósísögur
Walt Disney
Fallegt sögusafn með tíu hugljúfum kósísögum.
160 bls.
Edda útgáfa
IB
Aldrei snerta pöndu!
Rosie Greening
Þýð: Sigurgeir Orri Sigurgeirsson
Þú mátt aldrei snerta pöndu nema í þessari bók!
Börn og fullorðnir finna sameiginlega snertifleti
á þessum litskrúðugu og heillandi verum. Góða
skemmtun við að snerta íþróttadýrin... ef þú þorir!
10 bls.
Unga ástin mín
IB
Artúr og álfaprinsessurnar
Verndarar sporðljónsins
Ólíver Þorsteinsson og Páll Gestsson
Myndir: Sigmar Boði Hallmundsson
Frá því að prins Artúr kom heim frá Mýrheim
hefur hann þráð að ganga á vit ævintýranna á ný.
Óvænt tækifæri býðst þegar systir hans, Úlfdís,
ferðast til eyðimerkurheims. Litli prinsinn stenst
ekki mátið og laumast með henni. Þar hitta þau
Töru, sem er ólm í að bjarga sporðljónsunga
sem tekinn var af sporðriddurum.
40 bls.
LEÓ Bókaútgáfa
IB
Baddi er reiður
Mervi Lindman
Þýð: Gunnur Vilborg Guðjónsdóttir
Baddi er frábær strákur en rosalega tilfinningaríkur.
Og nú er Baddi reiður! Hann gerir allt
vitlaust og urrar eins og grimmt ljón! Nei,
reyndar er Baddi reiður eins og ...
Skoðið, bendið, lesið og hlæið með Badda!
32 bls.
Veröld
IB
Baddi kyssir
Mervi Lindman
Þýð: Gunnur Vilborg Guðjónsdóttir
Baddi er frábær strákur en rosalega tilfinningaríkur.
Og nú vill hann kyssa alla. Mömmu, pabba,
stóru systur, hundinn, kisu og orminn.
Nei, ekki orminn!
Skoðið, bendið, lesið og hlæið með Badda!
32 bls.
Veröld
IB
Bangsímonsögur
Walt Disney
Glæsilegt sögusafn með átta hrífandi sögum
af Bangsímon og vinum hans.
160 bls.
Edda útgáfa
IB
Bíb-bíb! Depill á ferðinni
Bók með hljóðum
Eric Hill
Þýð: Jakob F. Ásgeirsson
Bíb-bíb! Hér kemur Depill á leikfangabílnum sínum.
Komdu út að leika í uppáhaldsfarartækjunum
hans Depils.
Og ýttu á takkana til að heyra í þeim hljóðið.
10 bls.
Ugla
HSP
Bóbó bangsi heima
Fjör hjá Bóbó bangsa frá morgni til kvölds!
Þýð: Kolbeinn Þorsteinsson
Dagur í lífi Bóbó bangsa og litlu, gulu andarinnar
heima hjá mömmu og pabba. Í þessari litríku bók
er að finna ótal marga hluti, inni í húsi eða úti í
garði. Á síðustu opnunni eru myndir af hlutunum.
Getur þú fundið þá heima hjá Bóbó bangsa?
12 bls.
Setberg
HSP
Bóbó bangsi í sveitinni
Gaman hjá Bóbó bangsa í sveitinni
Þýð: Kolbeinn Þorsteinsson
Í þessari litríku harðspjaldabók kynnumst við lífinu
í sveitinni. Á sveitabænum er ýmislegt að sjá og
Bóbó bangsi lærir margt nýtt. Á síðustu síðunum eru
myndir af dýrum, hlutum og ýmsu öðru í sveitinni.
Getur þú fundið það allt saman inni í bókinni?
12 bls.
Setberg
Barna- og ungmennabækur
Myndríkar
B Ó K A T Í Ð I N D I 2 0 2 2 3GOR Gormabók HSP Harðspjalda bók HLB Hljóðbók IB Innbundin bók KIL Kilja RAF Rafbók G Sveigjanleg kápa
Barnabækur MYNDRÍK AR