Bókatíðindi - 01.12.2022, Blaðsíða 42
KIL RAF
Hitt húsið
Rachel Cusk
Þýð: Ingunn Ásdísardóttir
Kona býður frægum listmálara að dvelja í gestahúsi
sínu við afskekkta sjávarströnd þar sem hún og
fjölskyldan búa. Málverk hans hafa heillað hana og hún
vonast til að myndsýn hans geti vitrað henni leyndina
sem býr innra með henni. Þegar líður á sumarið
verður storkandi návist hans henni æ óskiljanlegri
og raskar hennar annars friðsælu tilveru.
204 bls.
Benedikt bókaútgáfa
KIL
Hjónaband rauðu fiskanna
Guadalupe Nettel
Þýð: Kristín Guðrún Jónsdóttir
Ritstjóri: Ásdís R. Magnúsdóttir
Smásögur Guadalupe Nettel frá Mexíkó hafa vakið
mikla athygli. „Tengsl dýra og manna geta verið jafn
flókin og þau sem sameina okkur mannfólkið“, skrifar
hún. Sögurnar fjalla allar um samhliða hegðun dýra
og manna. Höfundurinn kafar í leyndustu kima
mannssálarinnar og fléttar örlög manneskjunnar við
lífshætti bardagafiska, kakkalakka, katta o.fl.
Stofnun Vigdísar Finnbogadóttur / Háskólaútgáfan
KIL
Homo Sapína
Niviaq Korniliussen
Þýð: Heiðrún Ólafsdóttir
Fía, Inuk, Sara, Arnaq og Ivinnguaq eru öll í leit
að ástinni og sjálfum sér í ísköldum grænlenskum
veruleika. Niviaq Korniliussen er fædd í Nuuk
árið 1990. Hún fékk lof fyrir Homo Sapína
sem var tilnefnd til Norðurlandaráðsverðlauna
2015, en verðlaunin fékk hún svo í fyrra fyrir
Blómadalinn sem kemur út á íslensku 2023.
160 bls.
Bókaútgáfan Sæmundur
KIL RAF
Hvarf Jims Sullivans
Tanguy Viel
Þýð: Jórunn Tómasdóttir
Bandaríkjamaðurinn Dwayne Koster var heillaður
af örlögum landa síns, tónlistarmannsins Jims
Sullivans sem nánast gufaði upp í eyðimörkinni í
Nýju-Mexíkó árið 1975. Ekkert hefur spurst til hans
síðan og engar vísbendingar hafa komið fram um
hvað af honum hafi orðið. Marglaga skáldsaga sem
fetar nýjar slóðir eftir franskan verðlaunahöfund.
182 bls.
Ugla
KIL RAF HLB
Inngangur að efnafræði
Bonnie Garmus
Þýð: Sunna Dís Másdóttir
Ástir og efnafræði, sjónvarpsþættir um
matargerð, kenningar um sjálfskviknun lífs
og vaknandi kvenfrelsi á sjöunda áratug
síðustu aldar – allt blandast þetta saman á
óviðjafnanlegan hátt í þessari hröðu, spennandi,
fyndnu og hjartnæmu sögu af efnafræðiséníinu
og sjónvarpskokknum Elizabeth Zott.
441 bls.
Forlagið - Mál og menning
KIL RAF
Harmur og hamingja
Meg Mason
Þýð: Eyrún Edda Hjörleifsdóttir
Á yfirborðinu lifa Martha og Patrick fullkomnu
lífi en undir niðri geisar hamslaus stormur. Það
er nefnilega eitthvað að Mörthu, eitthvað sem
gerir það að verkum að hún grætur, grýtir diskum
og hefur íhugað að taka eigið líf. Bráðfyndin
og nístandi sár skáldsaga um geðsjúkdóma,
barneignir, fjölskyldutengsl og skilnað.
351 bls.
Forlagið - Mál og menning
KIL RAF HLB
Heiðríkja
Ann Cleeves
Þýð: Snjólaug Bragadóttir
Gamlir vinir úr háskóla halda til Hjaltlandseyja
til að vera við brúðkaup. Um nótt hverfur ein úr
hópnum, Eleanor, sporlaust. Lögregluforinginn
Jimmy Perez er sannfærður um að meira búi að
baki hvarfi Eleanor en virðist við fyrstu sýn. Hafði
hún komist á snoðir um gamalt leyndarmál sem
var svo ískyggilegt að það kallaði á morð?
400 bls.
Ugla
KIL RAF HLB
Helkuldi
Viveca Sten
Þýð: Elín Guðmundsdóttir
Fyrsta bókin í nýrri glæpaseríu eftir Vivecu Sten,
höfund hinna vinsælu Sandhamn-bóka. Frosið lík
finnst í skíðalyftu í Åre. Ýmislegt bendir til morðs
og jafnvel að fleiri morð séu í vændum. Stormur
er í aðsigi og lögreglan má engan tíma missa við
lausn morðgátunnar. Hve mörg verða fórnarlömbin
áður en sannleikurinn lítur dagsins ljós?
464 bls.
Ugla
KIL RAF
Hin óhæfu
Michael Hjorth og Hans Rosenfeldt
Þýð: Snæbjörn Arngrímsson
Bækur Hjorths og Rosenfeldts um sálfræðinginn
Sebastian Bergman hafa farið sannkallaða sigurför um
heiminn. Hin óhæfu er fimmta bókin í röðinni.
496 bls.
Bjartur
KIL RAF HLB
John Adderley - önnur bók
Hin systirin
Peter Mohlin og Peter Nyström
Þýð: Friðrika Benónýsdóttir
Fólk lítur undan þegar það sér andlit Aliciu Bjelke,
svo afmyndað er það. Hún hefur skapað sér líf sem
forritari og er höfundur að vinsælli stefnumótasíðu
ásamt Stellu systur sinni. Stella er gullfalleg og er
andlit fyrirtækis þeirra systra út á við. Þegar Stella er
myrt veit Alicia að lífi hennar er líka stefnt í voða.
360 bls. / H 11:12 klst.
MTH útgáfa
B Ó K A T Í Ð I N D I 2 0 2 2 GOR Gormabók HSP Harðspjalda bók HLB Hljóðbók IB Innbundin bók KIL Kilja RAF Rafbók G Sveigjanleg kápa42
Skáldverk ÞÝDD