Bókatíðindi - 01.12.2022, Blaðsíða 76
KIL
1. bók framhald: Vestfjarðakjálkinn
Hjólabókin
Erfiðar dagleiðir og auðveldari smáleiðir
Ómar Smári Kristinsson
Gamla Vestfjarðabókin er uppseld. Þessi bók er
með glænýjum leiðalýsingum. Hér er lýst 8 erfiðum
dagleiðum sem liggja í hring. Einnig 17 stuttum
hringleiðum og um 20 leiðum sem liggja fram
og til baka. Fegurð og fjölbreytileiki einkenna
svæðið og leiðirnar. Vestfjarðakjálkinn nýtur
sífellt meiri vinsælda meðal hjólreiðafólks.
112 bls.
Ómar Smári Kristinsson
SVK
Hlaupahringir á Íslandi
Ólafur Heiðar Helgason
Hlaupahringir á Íslandi er fróðleg, skemmtileg og
gagnleg bók fyrir alla sem hafa ánægju af útivist.
Hér eru vandaðar lýsingar á 36 hlaupaleiðum um
allt land fyrir bæði byrjendur og lengra komna.
Hlaupahringirnir eru fjölbreyttir og liggja um
fjöll, öræfi, sveitir, skóga og strendur.
328 bls.
Salka
IB
Lokakeppni HM í Katar 2022
HM bókin
Kevin Pettman
Þýð: Ásmundur Helgason
Lokakeppni HM 2022 er að hefjast! HM bókin
inniheldur allt sem þú þarft til að verða alvöru
sérfræðingur um HM í Katar 2022. Farið er yfir
öll liðin í keppninni, allar stjörnurnar sem mæta
til leiks, sögu keppninnar og nokkur af stærstu
augnablikum hennar. Hverjir munu slá í gegn í
Katar? Hvaða lið fara alla leið í úrslitaleikinn?
64 bls.
Drápa
IB
Íslensk knattspyrna 2022
Víðir Sigurðsson
Bækur Víðis Sigurðssonar um íslenska knattspyrnu
eru einstakar og eiga engan sinn líka í heiminum.
Þessi vinsæli bókaflokkur hefur nú komið út í rúm
fjörutíu ár og hefur aldrei verið betri. Hér finnur
áhugafólk um knattspyrnu allt sem gerðist í íslenska
boltanum á árinu 2022 í máli og myndum. Ómissandi
árbók allra áhangenda íslenskrar knattspyrnu.
272 bls.
Sögur útgáfa
IB
Jógagleði
Hannah Barrett
Þýð: Herdís M. Hübner
Í Jógagleði finnurðu allt sem hjálpar þér að byggja
upp innri styrk, hamingju og þrautseigju til að
finna leið þína í nútímanum, hvort sem þú er
byrjandi eða langar til að dýpka iðkun þína. Hannah
Barrett, jóga- og íhugunarkennari, sýnir hvernig þú
getur tileinkað þér meginreglur og hugsunarhátt
jóga og gert það að hluta daglegs lífs.
246 bls.
Bókafélagið
IB
Knattspyrnubærinn
100 ára knattspyrnusaga Akraness
Björn Þór Björnsson
ÍA vann fyrsta Íslandsmeistaratitil sinn árið 1951
og var það í fyrsta sinn sem Íslandsbikarinn
yfirgaf höfuðborgina. Titlarnir komu á
færibandi næstu áratugi og fljótlega varð
Akranes þekkt sem knattspyrnubærinn. Hér
er saga knattspyrnunnar á Akranesi rakin í
máli og myndum frá 1922 til okkar dags og
knattspyrnuiðkun beggja kynja gerð góð skil.
504 bls.
Bókaútgáfan Hólar
SVK
Sérkort 1:200 000
Snæfellsnes - Borgarfjörður
Vandað og handhægt kort yfir vinsælt landsvæði á
Íslandi. Á kortinu eru einnig ljósmyndir og upplýsingar
um helstu ferðamannastaði á svæðinu. Kortið er unnið
eftir nýjustu stafrænum gögnum og þar eru helstu
upplýsingar um vegi, vegalengdir og ferðaþjónustu.
Mælikvarði: 1:200 000. Blaðstærð: 41 x 100 cm.
Tungumál: Íslenska, enska, þýska, franska.
IÐNÚ útgáfa
IB
Stjörnurnar í NBA
Kjartan Atli Kjartansson
Bandaríski körfuboltinn er ein vinsælasta íþrótt
heims og stjörnur NBA þær stærstu í sögunni.
NBA-deildin hefur lengi notið mikilla vinsælda á
Íslandi en aldrei eins og nú. Hér tekur höfundurinn og
íþróttafréttamaðurinn snjalli Kjartan Atli Kjartansson
saman alla þá leikmenn sem skipta máli í sögu
keppninnar og auðvitað alla þá heitustu í dag.
120 bls.
Sögur útgáfa
SVK
Sérkort 1:200 000
The Golden Circle
Gullfoss - Geysir - Þingvellir
Vandað og handhægt kort yfir vinsælustu
ferðamannaleið á Íslandi. Á kortinu eru einnig
ljósmyndir og upplýsingar um helstu ferðamannastaði.
Kortið er unnið eftir nýjustu stafrænum gögnum og
þar eru helstu upplýsingar um vegi, vegalengdir og
ferðaþjónustu. Mælikvarði: 1:200 000. Blaðstærð: 35 x
94 cm. Tungumál: Íslenska, enska, þýska, franska.
IÐNÚ útgáfa
Það er töff að lesa bók!
www.boksala.is
B Ó K A T Í Ð I N D I 2 0 2 2 GOR Gormabók HSP Harðspjalda bók HLB Hljóðbók IB Innbundin bók KIL Kilja RAF Rafbók G Sveigjanleg kápa76
Íþróttir og útivist