Bókatíðindi - 01.12.2022, Síða 24
KIL
Stóra ógeðsbókin um prump
Þýð: Svanhildur Sif Halldórsdóttir
Myndskreytt handbók um vísindin, söguna og listina á
bak við prump. Hversu mikið veistu í raun um prump?
Hvað gerist þegar geimfarar prumpa? Af hverju geta
kafarar ekki prumpað? Af hvaða mat fretarðu mest?
134 bls.
Óðinsauga útgáfa
SVK
Sumar þrauta bók Stúfs
Eva Rún Þorgeirsdóttir og Blær Guðmundsdóttir
Í bókinni Stúfur fer í sumarfrí fer jólasveinninn Stúfur
til Ítalíu með Lóu vinkonu sinni. Hann skemmtir
sér konunglega og lendir í nokkrum óvæntum
ævintýrum. Í þessari bók eru þrautir og myndir til
að lita sem tengjast sumarfríinu hans Stúfs. Þetta er
tilvalin bók til að taka með í þitt eigið sumarfrí!
40 bls.
Bókabeitan
HSP
Tré
Fimm fræðandi gegnsæjar blaðsíður
Þýð: Kolbeinn Þorsteinsson
Hefurðu einhvern tímann velt fyrir þér öllu því
stórkostlega sem tré geta gert? Skoðaðu það nánar
í gegnum árstíðirnar á þessum frábæru gegnsæju
blaðsíðum! Sjáðu hvernig samvinna ólíkra hluta
trés hjálpar því að vaxa og uppgötvaðu með
hvaða hætti tré eru góð fyrir menn og dýr. Búðu
þig undir ferðalag, því tré eru stórkostleg.
16 bls.
Setberg
IB
Vísindalæsi
Umhverfið
Sævar Helgi Bragason
Myndir: Elías Rúni
Mannkynið hefur breytt umhverfinu meira en
nokkur önnur dýrategund. Hér segir af fólki sem
gerði stórar uppgötvanir sem leiddu til lausna í
umhverfismálum og bættu lífið á Jörðinni. Skemmtileg
og hvetjandi léttlestrarbók í nýjum bókaflokki sem
eflir vísindalæsi forvitinna krakka frá sex ára aldri.
Bókin er prýdd fjölmörgum fjörlegum litmyndum.
80 bls.
Forlagið - JPV útgáfa
IB
Friðrik Dór, Hildur Vala og KK
Sofðu rótt
– hugljúfar vögguvísur
Jón Ólafsson
Myndh: Úlfur Logason
Í Sofðu rótt færa söngfuglarnir KK, Friðrik Dór og
Hildur Vala okkur fimmtán gullfalleg vögguljóð við
undirleik Jóns Ólafssonar, sem ljúft er að líða með
syngjandi inn í heim draumanna. Öll eiga lögin
það sammerkt að hafa öðlast einstakan sess meðal
þjóðarinnar og börnin elska að syngja með. Lögin
í bókinni er einnig hægt að spila án söngs.
52 bls.
Sögur útgáfa
SVK
Spurningabókin 2022
Spennandi spurningakeppni fyrir alla fjölskylduna
Guðjón Ingi Eiríksson
Hér er enn ein spurningabókin úr smiðju
Bókaútgáfunnar Hóla en hún er sú tuttugasta
og þriðja í þessum bókaflokki, sem skartað
hefur einni bók árlega frá 1999 að einu ári
undanskyldu. Þessar bækur hafa allar notið mikilla
vinsælda, eins og spurningaleikir almennt gera
og vafalítið verður svo um ókomna tíð.
79 bls.
Bókaútgáfan Hólar
IB
Stafróf fuglanna
Árni Árnason Hafstað
Stafróf fuglanna er ætlað börnum sem eru farin að
sýna stöfum og orðum áhuga. Jafnframt er kverinu
ætlað að kynna börnum algenga fugla sem halda sig í
náttúru Íslands, ýmist allt árið eða að sumarlagi.
74 bls.
Bókaútgáfan Hólar
IB
Sterkast, snjallast, banvænast …
Skemmtileg flipabók fyrir forvitna krakka
Þýð: Kolbeinn Þorsteinsson
Veist þú … Hvar sterkasti stormurinn geisaði?
Hvort dýranna er gáfaðra – kráka eða kolkrabbi?
Hver er banvænasta planta í heiminum? Lyftu
flipunum til að kanna heitustu stjörnu alheimsins,
kynnast háværasta eldgosinu, svipta hulunni af verst
lyktandi dýri sem til er og ótal mörgu öðru.
15 bls.
Setberg
Bækurnar heim!
B Ó K A T Í Ð I N D I 2 0 2 2 GOR Gormabók HSP Harðspjalda bók HLB Hljóðbók IB Innbundin bók KIL Kilja RAF Rafbók G Sveigjanleg kápa24
Barnabækur FR ÆÐI OG BÆKUR ALMENNS EFNIS