Bókatíðindi - 01.12.2022, Síða 40
KIL RAF HLB
Fagri heimur, hvar ert þú?
Sally Rooney
Þýð: Ingunn Snædal
Alice og Felix, Eileen og Simon eru ung en yngjast ekki.
Þau þrá hvert annað en svíkja hvert annað samt sem
áður. Þau hafa áhyggjur af vináttunni og heiminum
sem þau búa í, hvort hann sé kominn á heljarþröm,
gegnsýrður af valdaójafnvægi, trúarbrögðum og
hamfarahlýnun. Geta þau fundið leið til að trúa á
fegurð heimsins? – Bókaklúbburinn Sólin
316 bls.
Benedikt bókaútgáfa
SVK
Farþeginn
Ulrich Alexander Boschwittz
Þýð: Elísa Björg Þorsteinsdóttir
Tímamótaverk eftir þýska rithöfundinn Ulrich
Alexander Boschwitz (1915-1942), enda þótt bókin
kæmi ekki út í Þýskalandi fyrr en upprunalegt
handrit kom í leitirnar árið 2018. Eitt allra fyrsta
bókmenntaverkið til að lýsa örlögum þýskra
gyðinga og nú metsölubók víða um heim.
278 bls.
Dimma
KIL RAF
Fávitinn
Fjodor Dostojevskí
Þýð: Ingibjörg Haraldsdóttir
Þetta stóra verk rússneska sagnameistarans
Dostojevskís frá árinu 1868 er ein þekktasta skáldsaga
19. aldar, gríðarlega margslungin og breið frásögn
um samfélag manna og samskipti, gæsku og grályndi,
með hinn algóða Myskhin fursta í brennidepli.
Rómuð þýðing Ingibjargar Haraldsdóttur kom fyrst
út 1986‒1987 en hefur lengi verið ófáanleg.
866 bls.
Forlagið
IB
Ferð til Indlands
E.M. Forster
Þýð: Hjalti Þorleifsson
A Passage to India er frægasta verk enska
skáldsagnahöfundarins E.M. Forsters. Bókin gerist á
Indlandi á fyrri hluta tuttugustu aldar þegar landið laut
breskri stjórn. Enskar aðkomukonur mæta tortryggni
landa sinna í borginni Chandrapore þegar þær lýsa
yfir áhuga á að kynnast aðstæðum innfæddra og valda
síðan uppnámi innan indverska samfélagsins.
436 bls.
Ugla
KIL RAF HLB
Fiðrildið
Katrine Engberg
Þýð: Friðrika Benónýsdóttir
Nakin kona finnst látin í hjarta Kaupmannahafnar.
Líkami hennar er þakinn undarlegum skurðum.
Rannsókn málsins berst inn í innsta hring danska
heilbrigðiskerfisins. Morðingi gengur laus en það er
eins og kerfið haldi hlífiskyldi yfir honum. Hver verður
næsta fórnarlamb? – Önnur bókin í hinni vinsælu
Kaupmannahafnarseríu eftir Katrine Engberg.
356 bls.
Ugla
KIL RAF
Drag plóg þinn yfir bein hinna dauðu
Olga Tokarczuk
Þýð: Árni Óskarsson
Í afskekktri pólskri sveit eyðir Janina dögum sínum
í að lesa stjörnuspeki, þýða kveðskap Williams Blake
og sjá um sumarhús fyrir auðuga íbúa Varsjár. En
einn daginn finnst nágranni hennar, sem hún kallar
Háfeta, dauður við einkennilegar aðstæður. Olga
Tokarczuk hlaut Bókmenntaverðlaun Nóbels 2018.
"Algjör snillingur." Egill Helgason, RÚV
279 bls.
Bjartur
IB KIL
Dúna
Frank Herbert
Þýð: Kári Emil Helgason og Dýrleif Bjarnadóttir
Á vatnslausri eyðimerkurplánetu þar sem dýrmætasta
afurð alheimsins er framleidd ráða risavaxnir
ódrepandi ormar ríkjum. Þegar Atreifsættin tekur
við stjórn plánetunnar úr höndum hinna grimmu
Harkonna hrindir það af stað örlagaríkri atburðarás
sem ógnar valdhöfum um heima alla.
700 bls.
Partus
KIL RAF HLB
Ef þetta er maður
Primo Levi
Þýð: Magnús H. Guðjónsson
Primo Levi var ítalskur gyðingur sem lenti í Auschwitz
en lifði af til að segja sögu sína. Þegar rússneskir
hermenn frelsuðu hann og aðra fanga var hann
nær dauða en lífi eftir tæplega ársdvöl. Frásögn
hans af þessari vist er hófstillt og blátt áfram og
lýsir ólýsanlegri grimmd og harðræði en jafnframt
mannlegri reisn og samkennd, þrátt fyrir allt.
229 bls.
Forlagið - Mál og menning
KIL
Engin heimilisgyðja
Sophie Kinsella
Þýð: Maríanna Clara Lúthersdóttir
Ofurlögfræðingurinn Samantha Sweeting á sér ekkert
líf utan vinnunnar. Hennar æðsti (og eini) draumur
er að verða meðeigandi í lögfræðistofunni þar sem
hún starfar en svo gerir hún mistök sem gera framtíð
hennar hjá fyrirtækinu að engu. Fyrir stórkostlegan
misskilning ræður hún sig sem ráðskonu á sveitasetri,
án nokkurrar reynslu af heimilisstörfum.
470 bls.
Angústúra
KIL
Ég hringi í bræður mína
Jonas Hassen Khemiri
Þýð: Ásdís Ingólfsdóttir
Bílsprengja hefur sprungið í Stokkhólmi. Amor,
ungur maður af arabískum uppruna, þvælist um
dauðskelfda borg. Umfram allt verður hann að
hegða sér ofureðlilega. Í sólarhring fylgist lesandinn
með hugrenningum Amors þar sem mörkin milli
fórnarlamba og glæpamanna, ástar og efnafræði,
vænisýki og veruleika verða sífellt óljósari.
140 bls.
Bókaútgáfan Sæmundur
B Ó K A T Í Ð I N D I 2 0 2 2 GOR Gormabók HSP Harðspjalda bók HLB Hljóðbók IB Innbundin bók KIL Kilja RAF Rafbók G Sveigjanleg kápa40
Skáldverk ÞÝDD