Bókatíðindi - 01.12.2022, Qupperneq 46

Bókatíðindi - 01.12.2022, Qupperneq 46
KIL RAF Stórstreymi Cilla Börjlind og Rolf Börjlind Þýð: Ísak Harðarson Árið 1987 er morð framið í flæðarmálinu á sænskri eyju. Fórnarlambið er ung ófrísk kona sem enginn ber kennsl á. Árið 2011 velur ungur lögreglunemi, Olivia Rönning, málið sem verkefni í lögregluskólanum. Fyrr en varir er hún komin á kaf í þessa dularfullu morðgátu. Það flækir málið enn frekar að Tom Stilton, sem rannsakaði málið, finnst hvergi. 504 bls. Forlagið - JPV útgáfa KIL RAF Stuldur Ann-Helén Laestadius Þýð: Ísak Harðarson Samastúlkan Elsa verður vitni að því þegar sænskur granni drepur hreindýrskálfinn hennar. Hún segir ekki frá enda skiptir lögreglan sér ekki af því þótt Samar verði fyrir tjóni og grannarnir hæðast að menningu þeirra. Þegar Elsa vex úr grasi berst hún gegn misréttinu en þá vitjar fortíðin hennar. Höfundur byggir söguna á raunverulegum atburðum. 461 bls. Forlagið - JPV útgáfa KIL RAF HLB Sumar í strand hús inu Sarah Morgan Þýð: Birgitta Elín Hassell og Marta Hlín Magnadóttir Þegar meistarakokkurinn Cliff Whitman deyr í bílslysi breytast aðstæður Joönnu Whitman á svipstundu. Þrátt fyrir skilnað vegna síendurtekins framhjáhalds er áhugi slúðurblaðamanna á henni enn sá sami. Þegar hún kemst að því að unga konan sem var með fyrrverandi eiginmanni hennar í bílnum er ólétt, finnur Joanna sig knúna til að bregðast við. 384 bls. / H 11:13 klst. Björt bókaútgáfa - Bókabeitan KIL Svarti engillinn Nina von Staffeldt Þýð: Lára Sigurðardóttir Karlmaður finnst myrtur í báti á reki við Norður-Grænland. Í farmi bátsins reynist vera mikið magn af hvítabjarnarskinni og náhvala- og rostungstönnum. Við fyrstu sýn virðist hér um að ræða smyglvarning og afrakstur ólöglegra veiða. Önnur bókin um Sika Haslund og blaðamanninn Þormóð Gíslason í sjálfstæðum flokki glæpasagna sem gerast á Grænlandi. 307 bls. Ugla KIL RAF HLB Systirin í skugganum Þriðja bókin í bókaflokknum um systurnar sjö Lucinda Riley Þýð: Valgerður Bjarnadóttir Star, dularfyllst systranna, er hikandi við að stíga út úr örygginu sem hún upplifir í nánu sambandi við systur sína CeCe. Vísbendingin sem Pa Salt skildi eftir um uppruna hennar leiðir hana í fornbókabúð í London. Hún stígur út úr skugga systur sinnar og kýs sína eigin framtíð. Bókaflokkurinn um systurnar sjö er einhver sá vinsælasti í heimi. 606 bls. Benedikt bókaútgáfa KIL Samkomulagið Robyn Harding Þýð: Sigurlína Davíðsdóttir Samkomulagið er hörkuspennandi sakamálasaga um hvernig samband ungrar konu við eldri mann, sykurpabba, verður eitrað og banvænt. Þetta er áhugaverð saga um kynlíf, þráhyggju og morð. 350 bls. Bókafélagið KIL RAF Sannleiksverkið Clare Pooley Þýð: Helga Soffía Einarsdóttir Julian Jessop, ríflega sjötugur og sérvitur listamaður heldur því fram að fæstir séu heiðarlegir hverjir við aðra. En hvernig væri ef fólk væri það? Frumleg og áhrifamikil saga með litríkum persónum og fyrir hana hlaut Clare Pooley RNA-verðlaunin fyrir bestu frumraun í skáldsagnagerð. Bókin varð auk þess metsölubók og hefur komið út í 30 löndum. 415 bls. Bjartur KIL RAF HLB Sjö eiginmenn Evelyn Hugo Taylor Jenkins Reid Þýð: Sunna Dís Másdóttir Leikkonan og einfarinn Evelyn Hugo er loks reiðubúin að segja frá glæstri ævi sinni og öllum hneykslismálunum. En þegar hún velur óþekkta blaðamanninn Monique Grant til starfans kemur það engum meira á óvart en Monique sjálfri. Af hverju varð hún fyrir valinu? Af hverju núna? 496 bls. Björt bókaútgáfa - Bókabeitan KIL RAF Snákurinn mikli Pierre Lemaitre Þýð: Friðrik Rafnsson Mathilde er miðaldra andspyrnuhetja, ekkja, móðir og hundavinur. Þessi elskulega kona, sem er hvers manns hugljúfi, á sér þó aðra og skuggalegri hlið sem aðeins örfáir vita um. Bráðskemmtileg og óvænt saga eftir einn vinsælasta spennusagnahöfund Frakka. 283 bls. Forlagið - JPV útgáfa KIL RAF Staðurinn Annie Ernaux Þýð: Rut Ingólfsdóttir Hann fór aldrei inn á söfn og las eingöngu héraðsblaðið, verkamaðurinn sem varð smákaupmaður. Hann flíkaði ekki tilfinningum sínum en bar þá einlægu von í brjósti að dóttir hans gengi menntaveginn. Dóttirin er Annie Ernaux, Nóbelsverðlaunahafi í bókmenntum 2022. Í þesssari snilldarlegu bók fjallar hún á nærfarin hátt um samband sitt við föður sinn. 108 bls. Ugla B Ó K A T Í Ð I N D I 2 0 2 2 GOR Gormabók HSP Harðspjalda bók HLB Hljóðbók IB Innbundin bók KIL Kilja RAF Rafbók G Sveigjanleg kápa46 Skáldverk ÞÝDD
Qupperneq 1
Qupperneq 2
Qupperneq 3
Qupperneq 4
Qupperneq 5
Qupperneq 6
Qupperneq 7
Qupperneq 8
Qupperneq 9
Qupperneq 10
Qupperneq 11
Qupperneq 12
Qupperneq 13
Qupperneq 14
Qupperneq 15
Qupperneq 16
Qupperneq 17
Qupperneq 18
Qupperneq 19
Qupperneq 20
Qupperneq 21
Qupperneq 22
Qupperneq 23
Qupperneq 24
Qupperneq 25
Qupperneq 26
Qupperneq 27
Qupperneq 28
Qupperneq 29
Qupperneq 30
Qupperneq 31
Qupperneq 32
Qupperneq 33
Qupperneq 34
Qupperneq 35
Qupperneq 36
Qupperneq 37
Qupperneq 38
Qupperneq 39
Qupperneq 40
Qupperneq 41
Qupperneq 42
Qupperneq 43
Qupperneq 44
Qupperneq 45
Qupperneq 46
Qupperneq 47
Qupperneq 48
Qupperneq 49
Qupperneq 50
Qupperneq 51
Qupperneq 52
Qupperneq 53
Qupperneq 54
Qupperneq 55
Qupperneq 56
Qupperneq 57
Qupperneq 58
Qupperneq 59
Qupperneq 60
Qupperneq 61
Qupperneq 62
Qupperneq 63
Qupperneq 64
Qupperneq 65
Qupperneq 66
Qupperneq 67
Qupperneq 68
Qupperneq 69
Qupperneq 70
Qupperneq 71
Qupperneq 72
Qupperneq 73
Qupperneq 74
Qupperneq 75
Qupperneq 76
Qupperneq 77
Qupperneq 78
Qupperneq 79
Qupperneq 80
Qupperneq 81
Qupperneq 82
Qupperneq 83
Qupperneq 84

x

Bókatíðindi

Direct Links

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Bókatíðindi
https://timarit.is/publication/1847

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.