Bókatíðindi - 01.12.2022, Qupperneq 57
SVK
Sýnisbók íslenskrar alþýðumenningar
Bíbí í Berlín
Sjálfsævisaga Bjargeyjar Kristjánsdóttur
Guðrún Valgerður Stefánsdóttir
Bíbí hét fullu nafni Bjargey Kristjánsdóttir (1927-
1999). Hún var kennd við kotbæ foreldra sinna,
Berlín. Hún var stimpluð „fáviti“ frá því í bernsku.
Þegar Bíbí var þrítug lést móðir hennar og var hún
í kjölfarið flutt á elliheimili á Blönduósi. Um síðir
flutti hún í sjálfstæða búsetu. Sjálfsævisagan ber
vott um góða greind, kímnigáfu og innsæi.
368 bls.
Háskólaútgáfan
SVK
Boðaföll
Nýjar nálganir í sjálfsvígsvörnum
Agla Hjörvarsdóttir, Fanney Björk Ingólfsdóttir,
Harpa Sif Halldórsdóttir, Hrefna Svanborgar
Karlsdóttir, Sigurborg Sveinsdóttir og Svava
Arnardóttir
Sjálfsvíg og sjálfsskaði eru málefni sem snerta okkur öll.
Boðaföll er fyrsta íslenska bókin sem fjallar um þetta út
frá persónulegri reynslu höfunda af öngstræti. Bókin
miðlar raunverulegri von um bata fyrir öll sem hafa
þjáðst á þennan hátt. Bókin gagnast fólki í vanlíðan,
ástvinum þeirra, fagfólki og samfélaginu öllu.
264 bls.
Hugarafl
SVK
Byggðafesta og búferlaflutningar á Íslandi
Ritstjóri: Þóroddur Bjarnason
Í þessu riti er veitt yfirlit um svæðisbundna
mannfjöldaþróun á Íslandi og búferlaflutninga
innanlands og utan. Fjallað er um tengsl
búferlaflutninga við menntun, atvinnu,
samgöngur, húsnæði, þjónustu, búsetuánægju,
staðartengsl, fjölskyldu og vini, jafnrétti kynjanna
og slúður. Loks er lagt mat á framtíðarhorfur
í búferlaflutningum og byggðaþróun.
400 bls.
Háskólaútgáfan
KIL RAF HLB
Catilinusamsærið
Gaius Sallustius Crispus
Þýð: Guðmundur J. Guðmundsson
Rómaveldi á árunum 66–62 f. Kr. Þá gerði
öldungaráðsmaðurinn Lucius Catilina ásamt nokkrum
félögum tilraun til að ræna völdum í ríkinu. Þótt
frásögnin sé lífleg og spennandi dregur höfundur upp
dökka mynd af stjórnmálaástandinu í Róm á þessum
tíma, enda telur hann að samsæri Catilinu sé eins
konar forleikur að falli rómverska keisaraveldisins.
151 bls.
Ugla
KIL
Dagbók úr fangelsi
Sigurður Gunnarsson
Bók þessi var skrifuð meðan höfundurinn var
vistaður á Litla Hrauni og lýsir lífinu innan veggja
fangelsins nánast dag frá degi þá fimm mánuði sem
hann dvaldist þar. Bókin lýsir samskiptum fanganna
innbyrðis og við fangaverði, aðbúnaði í fangelsinu
o.fl. Einstakur vitnisburður um lífið í íslensku
fangelsi, skrifuð af mikilli næmni og skilningi.
289 bls.
Skrudda
SVK
Á heimaslóð
Alfreð Washington Þórðarson
Alfreð Washington Þórðarson var einn þeirra
sem settu sterkan svip á listalíf Vestmannaeyja á
fyrri hluta og fram yfir miðja síðustu öld. Hann
samdi mörg falleg og grípandi lög sem urðu
vinsæl en önnur hafa smám saman gleymst. Með
þessari útgáfu á 14 lögum Alfreðs við ljóð þekktra
Eyjamanna leita lög hans heim til Eyja að nýju.
60 bls.
Bókaútgáfan Sæmundur
IB
Á slóðum Akurnesinga
Þættir um mannlíf og sögu
Ásmundur Ólafsson
Ásmundur Ólafsson kemur víða við á slóðum
Akurnesinga í þessu greinasafni, allt frá landnámi
til nútímans. Hann fjallar sem fyrr um sögu og
fjölskrúðugt mannlífið á Skipaskaga af innsæi líkt og í
fyrri bók sinni „Á Akranesi“ sem kom út árið 2016.
224 bls.
MTH útgáfa
IB
Á sporbaug
Nýyrði Jónasar Hallgrímssonar
Anna Sigríður Þráinsdóttir
Myndh: Elín Elísabet Einarsdóttir
Jónas Hallgrímsson, listaskáldið góða, var okkar helsti
orðasmiður. Svo vel voru orðin hönnuð og vandlega
hugað að lögun þeirra, hljómi, útliti og notagildi
að þau festu rætur í málinu. Hér eru dásamlegu
nýyrðin hans samankomin í skemmtilegri bók. Anna
Sigríður Þráinsdóttir skrifar um orðin og Elín Elísabet
Einarsdóttir segir sögu Jónasar í myndum.
208 bls.
Sögur útgáfa
IB RAF
Á sögustöðum
Helgi Þorláksson
Hugmyndir okkar um sögustaði landsins mótuðust
yfirleitt af þjóðernisrómantík á 19. og 20. öld. Hér er
fjallað um sex fræga og óumdeilda sögustaði í nýju
ljósi: Bessastaði, Hóla, Odda, Reykholt, Skálholt
og Þingvelli. Sagan er rakin og leitað svara við
spurningunni: Hvað er eiginlega svona merkilegt
við sögustaði? Stórfróðleg og áhugaverð bók!
463 bls.
Forlagið - Vaka-Helgafell
SVK
Baráttan um bjargirnar
Stjórnmál og stéttabarátta í mótun íslensks
samfélags
Stefán Ólafsson
Þessi bók varpar nýju ljósi á þróun íslensks samfélags
og lífskjara almennings. Hún sýnir hvernig vald og
hagsmunir ólíkra stétta og átök þeirra um áhrif réðu
för. Vinstri stjórnmálaöfl urðu ekki jafn áhrifamikil
hér og á hinum Norðurlöndunum, en íslensk
verkalýðshreyfing bætti það upp að hluta. Þetta er
grænbók um hvað má betur fara í samfélaginu.
334 bls.
Háskólaútgáfan
B Ó K A T Í Ð I N D I 2 0 2 2 57GOR Gormabók HSP Harðspjalda bók HLB Hljóðbók IB Innbundin bók KIL Kilja RAF Rafbók G Sveigjanleg kápa
Fræði og bækur almenns efnis