Bókatíðindi - 01.12.2022, Síða 61

Bókatíðindi - 01.12.2022, Síða 61
IB Jagúar skáldsins Óskar Magnússon Rjómahvítur glæsivagn dregur gjarnan að sér athygli vegfarenda um Mosfellsdal á sumrin, gljábónaður á hlaðinu við Gljúfrastein þar sem eigandinn átti heima í áratugi: Jagúar skáldsins. Hér segir Óskar Magnússon dásamlegar skemmtisögur af bílnum og nóbelsskáldinu Halldóri Laxness, en hann kynntist báðum og hlutaðist nokkuð til um samferð þeirra. 68 bls. Forlagið - JPV útgáfa KIL RAF HLB Játningar bóksala Shaun Bythell Þýð: Snjólaug Bragadóttir Shaun Bythell, fornbóksali í Wigtown í Skotlandi, sló í gegn með Dagbók bóksala. Hér heldur hann áfram þar sem frá var horfið — og bregður upp lifandi og bráðskemmtilegum myndum af sérvitringunum og furðufuglunum sem eru daglegir gestir í bókabúðinni og skrýtna fólkinu sem vinnur þar. Hlý, kaldhæðin og sprenghlægileg frásögn af lífi bókabéusanna. 400 bls. Ugla SVK Jógastund Anna Rós Lárusdóttir Myndh: Auður Ómarsdóttir Jógastund er fyrir alla sem vilja stunda jóga, ekki síst foreldra sem vilja virkja börnin í uppbyggjandi leik. Bókin inniheldur yndislegar jógastöður ásamt sögum, æfingum og leikjum. Æfingarnar og leikirnir eru aðgengileg fyrir alla, þar sem við líkjum í sameiningu eftir dýrum og hlutum í náttúrunni og úr verður hin besta samveru- og gleðistund. 156 bls. Sögur útgáfa KIL Jón Steingrímsson og Skaftáreldar Jón Kristinn Einarsson Séra Jóni Steingrímssyni var falin peningasending sem nýta átti til að endurreisa byggð á hamfarasvæðum Skaftárelda. Í leyfisleysi deildi hann út fé til nauðstaddra sem og sín sjálfs og var í kjölfarið kærður til yfirvalda í Kaupmannahöfn. Hér kemur fram nýtt sjónarhorn á móðuharðindin og mál Jóns. Í viðauka er Eldrit Jóns og lýsingar samtímamanna. 264 bls. Sögufélag IB RAF Ísland Babýlon Dýrafjarðarmálið og sjálfstæðisbaráttan í nýju ljósi Árni Snævarr Um miðja 19. öld gerðu franskir útgerðarmenn út fjölda skipa á Íslandsmið. Óskum þeirra um aðstöðu í landi var mætt með mikilli tortryggni og illur grunur fékk byr undir vængi þegar Napóleon prins kom til Íslands 1856. Viðhorf sem minna á þjóðernispópúlisma nútímans skutu þá upp kolli ásamt ýmsum falsfréttum. En hvað vakti í raun fyrir Frökkum? 312 bls. Forlagið - Mál og menning KIL Íslandsferð Idu Pfeiffer Guðmundur J. Guðmundsson þýddi og ritaði inngang Ida Pfeiffer Þýð: Guðmundur J. Guðmundsson Vorið 1845 steig á land í Hafnarfirði kona að nafni Ida Pfeiffer. Hún var ein á ferð, ferðabókahöfundur að viða að sér efni í bók um Norðurlönd. Hún hafði gert sér háar hugmyndir um land og þjóð og varð ekki fyrir vonbrigðum með náttúru landsins. En kynnin af innfæddum ollu henni vonbrigðum. Henni fannst þeir latir, ágjarnir og hinir mestu sóðar. 190 bls. Ugla GOR Íslenska fyrir okkur hin - tilraunaútgáfa Brynja Stefánsdóttir og Viðar Hrafn Steingrímsson Myndh: Erik Vikar Diez Vaxandi þörf er á kennslu í íslensku fyrir erlenda nemendur á öllum aldri. Bókin er samin með það að leiðarljósi að hún byggi á markvissan hátt upp orðaforða um nemandann og málefni sem standa honum nær. Í þeim tilgangi er mikil áhersla lögð á að útskýra merkingu orða með myndum. Ítarlegar kennsluleiðbeiningar má nálgast á www.idnu.is 106 bls. IÐNÚ útgáfa SVK Íslenskar bókmenntir Saga og samhengi Aðalheiður Guðmundsdóttir, Ármann Jakobsson, Ásta Kristín Benediktsdóttir, Jón Yngvi Jóhannsson, Margrét Eggertsdóttir og Sveinn Yngvi Egilsson Íslenskar bókmenntir: saga og samhengi er tveggja binda verk um sögu íslenskra bókmennta frá upphafi Íslandsbyggðar til vorra daga. Þar er sagan rakin á knappan hátt í samhengi við strauma og stefnur hvers tíma og er sú umfjöllun grundvölluð á rannsóknum seinustu áratuga. 840 bls. Hið íslenska bókmenntafélag Best í bókum B Ó K A T Í Ð I N D I 2 0 2 2 61GOR Gormabók HSP Harðspjalda bók HLB Hljóðbók IB Innbundin bók KIL Kilja RAF Rafbók G Sveigjanleg kápa Fræði og bækur almenns efnis
Síða 1
Síða 2
Síða 3
Síða 4
Síða 5
Síða 6
Síða 7
Síða 8
Síða 9
Síða 10
Síða 11
Síða 12
Síða 13
Síða 14
Síða 15
Síða 16
Síða 17
Síða 18
Síða 19
Síða 20
Síða 21
Síða 22
Síða 23
Síða 24
Síða 25
Síða 26
Síða 27
Síða 28
Síða 29
Síða 30
Síða 31
Síða 32
Síða 33
Síða 34
Síða 35
Síða 36
Síða 37
Síða 38
Síða 39
Síða 40
Síða 41
Síða 42
Síða 43
Síða 44
Síða 45
Síða 46
Síða 47
Síða 48
Síða 49
Síða 50
Síða 51
Síða 52
Síða 53
Síða 54
Síða 55
Síða 56
Síða 57
Síða 58
Síða 59
Síða 60
Síða 61
Síða 62
Síða 63
Síða 64
Síða 65
Síða 66
Síða 67
Síða 68
Síða 69
Síða 70
Síða 71
Síða 72
Síða 73
Síða 74
Síða 75
Síða 76
Síða 77
Síða 78
Síða 79
Síða 80
Síða 81
Síða 82
Síða 83
Síða 84

x

Bókatíðindi

Beinleiðis leinki

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Bókatíðindi
https://timarit.is/publication/1847

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.