Bókatíðindi - 01.12.2022, Qupperneq 65
SVK RAF
Snjóflygsur á næturhimni
Um ljósmyndir, minningar og snertingu við
veruleikann
Sigrún Alba Sigurðardóttir
Ljósmyndir móta minningar okkar og viðhorf til
umhverfis, náttúru og samferðafólks en þær eru
líka áhrifamikill miðill í listsköpun og gagnlegar
til skynjunar og skilnings á heiminum. Hér fjallar
Sigrún Alba á persónulegum og heimspekilegum
nótum um hlutverk ljósmynda í daglegu lífi og
hvernig þær varpa nýju ljósi á veröldina.
191 bls.
Forlagið - Mál og menning
IB
Sprog- og kulturkontakt i Vestnorden
Om det færøske, grønlandske, islandske og norske
sprogs møde med dansk
Ritstjóri: Auður Hauksdóttir
Bókin inniheldur 13 kafla um tengsl tungumála og
menningar á vestnorræna svæðinu. Fjallað er m.a. um:
sambýli íslensku, norsku og færeysku við dönsku í sögu
og samtíð og áhrif þess á tungumálin þrjú; dönsku
sem erlent mál á Grænlandi, Íslandi og í Færeyjum og
sem grannmál í Skandinavíu; málblöndun í færeyskum
bókmenntum og stöðu grænlenskrar tungu.
Stofnun Vigdísar Finnbogadóttur / Háskólaútgáfan
SVK
Spurningin um höfund Grettis sögu
Elín Bára Magnúsdóttir
Hér er rannsakað hvort Sturla Þórðarson (1214-
1284) hafi samið Grettis sögu, en hann hefur lengi
verið talinn höfundur sögunnar. Í bókinni er einkum
beitt stílfræðilegum aðferðum til að rannsaka
stíl Grettluhöfundar með samanburði við verk
Sturlu og aðrar greinar fornsagna. Niðurstöður
benda til að Sturla hafi skrifað Grettlu.
350 bls.
Háskólaútgáfan
SVK
Spurt og svarað
Aðferðafræði spurningakannana
Þórólfur Þórlindsson og Þorlákur Karlsson
Spurningakannanir eru mikilvægt rannsóknartæki
sem beitt er í nánast öllum þeim greinum
sem fjalla um manninn á einn eða annan hátt.
Meginstoðir þeirra – þ.e. spurningalistar og
úrtakið sem svarar þeim – er aðalviðfangsefni
bókarinnar, sem er bæði ætluð þeim sem nota
spurningakannanir og þeim sem búa þær til.
214 bls.
Forlagið - Mál og menning
SVK
Skagfirskar skemmtisögur 6
Fjörið heldur áfram
Björn Jóhann Björnsson
Sjötta bindið í þessum vinsæla bókaflokki hefur að
geyma vel yfir 200 gamansögur af Skagfirðingum.
Nýjum persónum bregður fyrir og við bætast sögur
af öðrum, eins og Bjarna Har kaupmanni, Hvata á
Stöðinni og Ýtu-Kela. Óborganlegar sögur af séra
Baldri í Vatnsfirði, sem var borinn og barnfæddur
Skagfirðingur. Glettnar gamanvísur fylgja með.
96 bls.
Bókaútgáfan Hólar
IB
Institute of Archaeology Monograph Series
Skálholt: Excavations of a Bishop's Residence
and School c. 1650-1790
Volume 1: The Site
Gavin Lucas og Mjöll Snæsdóttir
Fyrsta bindi af þremur um fornleifarannsókn
í Skálholti þar sem upp voru grafin húsakynni
biskupa, þjónustufólks og skólasveina. Í þessu
fyrsta bindi er fjallað almennt um verkefnið en
í því er einnig að finna ítarlega umfjöllun um
þær fjölmörgu byggingar sem voru grafnar upp
og voru í notkun á tímabilinu 1650-1950.
228 bls.
Fornleifastofnun Íslands ses
IB
Skipavík
Sigurður Bergsveinsson
Saga Skipavíkur í Stykkishólmi og
fyrirrennara hennar 1900 - 2020
Í bókinn er rakin saga skipasmíða í Stykkishólmi
á yfir 100 ára tímabili. Fjallað er um smíði
110 báta. Þar er um að ræða allt frá minnstu
árabátum upp í fullkomin nútíma fiskiskip.
288 bls.
Skipavík ehf.
SVK
Skírnir - Tímarit HÍB
Vor og haust 2022
Ritstjórar: Haukur Ingvarsson og Ásta Kristín
Benediktsdóttir
Fjölbreytt og vandað efni, m.a. um íslenskt
mál, bókmenntir, náttúru og sögu, heimspeki,
myndlist, stjórnmál og ýmis fræði í sögu og
samtíð. Skírnir er elsta menningartímarit á
Norðurlöndum og kemur út tvisvar á ári. Nýir
áskrifendur velkomnir: sími: 588-9060.
490 bls.
Hið íslenska bókmenntafélag
Rosa klár en samt svo hress
B Ó K A T Í Ð I N D I 2 0 2 2 65GOR Gormabók HSP Harðspjalda bók HLB Hljóðbók IB Innbundin bók KIL Kilja RAF Rafbók G Sveigjanleg kápa
Fræði og bækur almenns efnis