Bókatíðindi - 01.12.2022, Side 66
GOR
Stærðfræði 3C
Diffrun og einkenni ferla - greining ferla - heildun
Gísli Bachmann
Þessi kennslubók er ætluð nemendum á 3. þrepi
(þriðja áfanga) í stærðfræði í framhaldsskóla.
Í henni er fjallað um diffrun og einkenni
ferla, greiningu ferla og heildun.
120 bls.
IÐNÚ útgáfa
KIL
Svikin við erfðaskrárnar
Milan Kundera
Þýð: Friðrik Rafnsson
Frumleg og ögrandi ritgerð eftir einn af meisturum
20. aldar bókmennta. Ritgerðin er í níu hlutum og
skrifuð eins og skáldsaga. Sömu persónur koma
fyrir aftur og aftur: Stravinski, Kafka, Nietzsche,
Janacek, Hemingway, Rabelais og erfingjar hans,
risar skáldsögunnar, en segja má að tónlistin og
skáldsagan séu meginviðfangsefni bókarinnar.
308 bls.
Ugla
GOR
Sýklafræði og sýkingavarnir - tilraunaútgáfa
Ásdís Lilja Ingimarsdóttir og Þórdís Hulda
Tómasdóttir
Í bókinni er fjallað um mismunandi tegundir örvera,
sérkenni þeirra og byggingu, en sérstök áhersla
lögð á sjúkdómsvaldandi örverur auk ítarlegrar
umfjöllunar um sýkingavarnir. Bókin er ætluð
nemendum í heilbrigðisvísindum á framhaldsskólastigi
en jafnframt öllum þeim sem vilja fræðast um
grundvallaratriði sýklafræði og sýkingavarna.
287 bls.
IÐNÚ útgáfa
SVK
Sýnisbók þess að Ísland er ekki barbaraland
Ritstjórar: Margrét Eggertsdóttir og Guðvarður Már
Gunnlaugsson
Þýð: Sigurður Pétursson
Umsj: Hjalti Snær Ægisson
Specimen Islandiæ non barbaræ er bókmenntasögulegt
rit, samið á latínu af Jóni Þorkelssyni (1697–1759)
Skálholtsrektor. Markmið þess er að sýna hinum lærða
heimi að Íslendingar séu menntuð bókmenntaþjóð.
Sigurður Pétursson (1944–2020) þýddi verkið á
íslensku en Hjalti Snær Ægisson bjó verkið til útgáfu.
Útgáfan er tvímála og henni fylgja skýringar.
421 bls.
Stofnun Árna Magnússonar í íslenskum fræðum
KIL
Saga
Tímarit Sögufélags LX: 1 og 2 2022
Ritstjórar: Vilhelm Vilhelmsson og Kristín Svava
Tómasdóttir
Tímaritið Saga kemur út tvisvar á ári, vor og haust.
Efni þess tengist sögu og menningu landsins í víðum
skilningi. Ritrýndar greinar og viðhorf mynda
stærstu efnisþætti tímaritsins. Í Sögu birtast einnig
ritdómar og ritfregnir um nýjar bækur er varða sögu,
einkum Íslandssögu, og annað efni af sagnfræðilegu
tagi. Ómissandi öllu áhugafólki um sögu.
278 bls.
Sögufélag
IB
Stiklur um undur Íslands
Ómar Ragnarsson
Myndh: Friðþjófur Helgason
Við fylgjum eldhuganum Ómari Ragnarssyni, helsta
baráttumanni okkar fyrir íslenskri náttúru, um perlur
og stórbrotna staði þessa undralands sem Ísland er.
Fetum í fótspor hans og ljósmyndarans Friðþjófs
Helgasonar um fáfarnar slóðir, leynistaði sem þeir
hafa heimsótt og svæði sem Ómar hefur sérstakt
dálæti á. Ómar og Friðþjófur – stiklarar í 50 ár.
352 bls.
Sögur útgáfa
SVK
Stórasta land í heimi
Þrautabók um Ísland
Ari H.G. Yates
Þýð: Anna Yates
Ísland er sannarlega skrítinn og skemmtilegur
hrærigrautur, í senn heitt og kalt, lítið og stórt
o.s.frv. – og þjóðin sem byggir það er sömuleiðis
alveg sérstök, fámenn en samt svo áberandi. Bókin er
full af heilabrotum, fróðleik og skemmtun og geymir
næstum því allt sem gott er og gaman að vita um
þetta stórasta land í heimi. Einnig til á ensku.
56 bls.
Forlagið - JPV útgáfa
IB
Strand í gini gígsins
Surtseyjargosið og mannlífið í Eyjum
Ásmundur Friðriksson
Sursteyjargosið sem hófst 14. nóvember 1963 hafði
mikil áhrif á Vestmannaeyinga. Í þessari mögnuðu
bók er brugðið upp einstakri mynd af mannlífinu
í Eyjum á árum Surtseyjarelda og lýst ótrúlegum
svaðilförum tengdum þeim sem fæstar hafa verið
færðar í letur áður. Höfundur bókarinnar gæðir
frásögnina lífi með fjörmiklum stílsmáta sínum.
296 bls.
Ugla
SVK
Straumar frá Bretlandseyjum
Rætur íslenskrar byggingarlistar
Hjördís Sigurgísladóttir og Dennis Davíð
Jóhannesson
Straumar frá Bretlandseyjum - Rætur
íslenskrar byggingarlistar er afrakstur sögulegs
rannsóknarverkefnis arkitektanna Hjördísar
og Dennis. Hún fjallar um hvernig áhrif frá
Bretlandseyjum hafa mótað íslenska byggingarsögu
frá upphafi byggðar og fram á daginn í dag.
124 bls.
Arkitektar Hjördís & Dennis
IB
Stund milli stríða
Saga landhelgismálsins, 1961-1971
Guðni Th. Jóhannesson
Saga landhelgismálsins er þjóðarsaga. Hún er saga
baráttu um lífshagsmuni og þjóðarheiður. Höfundur
segir frá litríkum köppum og æsilegum atburðum,
bæði á sjó og landi. Jafnframt setur hann atburði og
ákvarðanir í samhengi, dregur ályktanir en eftirlætur
lesandanum líka að mynda sér eigin skoðanir.
Hér er þessi saga rakin í máli og myndum.
518 bls.
Sögufélag
B Ó K A T Í Ð I N D I 2 0 2 2 GOR Gormabók HSP Harðspjalda bók HLB Hljóðbók IB Innbundin bók KIL Kilja RAF Rafbók G Sveigjanleg kápa66
Fræði og bækur almenns efnis