Læknaneminn - 01.04.2008, Page 12

Læknaneminn - 01.04.2008, Page 12
Ur völundarhúsi valdsins hugrenningar iæknanema Oddur Þórir Þórarinsson 5. árs læknanemi Inngangur „Cogito, ergo sum” eða „Ég hugsa, þess vegna er ég til” mælti franski heimspekingurinn og stærðfræðingurinn René Descartes2 á 17. öld. Descartes hefur haft ómæld áhrif á sálfræði, heimspeki, rökhyggju og gervigreindarfræði nútímans. Ástæðan er líklega sú að hann mótaði, eða bjó jafnvel til, viðteknar og alþýðlegar hugmyndir fólks um eðli hugsunar, líkama, sálar oghugmynda. Þannighefurefahyggja hans orðið mörgum hugsuðum og í raun mannkyni öllu hvatning til að leita svara við ótal spurningum3 . Þetta mannlega eðli sem kalla má þekkingarfræðilega bjarghyggju (e. foundationalism) hefur síðan lagt grunninn að því samfélagi sem við byggjum í dag. Samfélagi þar sem kenningar raunvísindanna og óþrjótandi löngun í að rannsaka áþreifanlegar staðreyndir í bland við hugvísindi ýmiss konar hafa skapað fjölþætt, flókið, síbreytilegt en jafnframt spennandi samfélag. Hornsteinn þessa mannlega samfélags er líf fólks og heilsa. Enda hafa sjúkdómar, vanheilsa og dauði orðið vísindamönnum og hugsuðum mikið íhugunarefni allt frá því að sögur hófust. Læknisfræði hefur þannig í raun fylgt mannkyni frá upphafi, þó augljóslega hafi hún verið frumstæð framan af. í Egyptalandi að fornu voru læknar sérfræðingastétt, sem aðeins læknuðu sérgreindan líkamshluta. Elsta þekkta rit um læknisfræði er egypsk papýrusörk frá 1950 fyrir Krist. Læknisfræðileg þekking kom frá Egyptalandi og Mesópótamíu inn á gríska menningarsvæðið og barst þaðan til Rómarveldis. Grikkir voru þekktustu læknar fornaldar, enda héldu kenningar þeirra og læknisráð velli í Evrópu í nærri 2000 ár. Athyglisvert er að fyrstu grísku læknarnir álitu ekki nauðsynlegt að rannsaka sjúklinga. Að þeirra áliti var sjúkdómur og góð heilsa trúarlegt eða heimspekilegt viðfangsefni fremur en líkamlegt. Læknadeild Háskóla fslands Nám í læknisfræði á íslandi hvílir á gömlum merg. Árið 1759 lauk Bjarni Pálsson læknaprófi við Kaupmannahafnarháskóla4, fyrstur Islendinga, og var skipaður í embætti landlæknis þegar það var stofnsett 18. mars 1760. Skyldi hann m.a. kenna læknanemum og svo gerðu eftirmenn hans einnig þar til ákvæði um innlenda læknakennslu var afnumið úr erindisbréfi landlæknis árið 1824. Jón Hjaltalín sem varð landlæknir 1855 hóf baráttu fyrir innlendum læknaskóla. Árið 1861 samþykkti Alþingi, að forgöngu hans, tillögu um heimild til að halda uppi læknakennslu til prófs sem veitti lækninga- og embættisréttindi hérlendis. Veitti konungur heimild til þess 1862 og þar með hófst læknakennsla á íslandi sem staðið hefur óslitið síðan. Læknaskóli tók formlega til starfa í Reykjavík haustið 18765. Þegar Háskóli íslands var svo stofnaður árið 1911 varð Læknaskólinn ein af deildum hans. Þróun kennslu við læknadeild Háskóla fslands varð síðan í takt við þær stórstígu tækni- og vísindaframfarir sem urðu á fyrri hluta 20. aldarinnar. Þegar kom fram á 8. áratug aldarinnar var hins vegar ásókn stúdenta í læknanám orðin svo mikil að nauðsynlegt reyndist að takmarka íjöldann við eitthvert annað viðmið en eingöngu lágmarkseinkunn. Var kerfi samkeppnisprófa, numerus clausus, tekið upp á þeim tíma. Hélt þetta kerfi sér í öllum aðalatriðum þar til bylting varð á bæði inntökuskilyrðum og skipulagi kennslu við deildina haustið 2003. Afar lítið hefur verði fjallað um markmið, tilgang og framkvæmd þeirra breytinga sem þar áttu sér stað og er það skoðun undirritaðs að í besta falli sé óljóst um árangur af þessumbreytingum. Erþað jafnframt skoðun undirritaðs að forvígismenn þessarar umfangsmiklu byltingar á læknanámi á íslandi hafi komist upp með gagnrýnislaust hjal um gæði þessara breytinga án þess að færð hafi verið viðhlítandi efnisleg rök fyrir þeim skoðunum sem þar eru settar fram6. Haustið 2003 hófu 48 stúdentar nám í læknisfræði við læknadeild Háskóla íslands að undangengnu inntökuprófi og er þar um að ræða fyrsta árganginn 12 Læknaneminn
Page 1
Page 2
Page 3
Page 4
Page 5
Page 6
Page 7
Page 8
Page 9
Page 10
Page 11
Page 12
Page 13
Page 14
Page 15
Page 16
Page 17
Page 18
Page 19
Page 20
Page 21
Page 22
Page 23
Page 24
Page 25
Page 26
Page 27
Page 28
Page 29
Page 30
Page 31
Page 32
Page 33
Page 34
Page 35
Page 36
Page 37
Page 38
Page 39
Page 40
Page 41
Page 42
Page 43
Page 44
Page 45
Page 46
Page 47
Page 48
Page 49
Page 50
Page 51
Page 52
Page 53
Page 54
Page 55
Page 56
Page 57
Page 58
Page 59
Page 60
Page 61
Page 62
Page 63
Page 64
Page 65
Page 66
Page 67
Page 68
Page 69
Page 70
Page 71
Page 72
Page 73
Page 74
Page 75
Page 76
Page 77
Page 78
Page 79
Page 80
Page 81
Page 82
Page 83
Page 84
Page 85
Page 86
Page 87
Page 88
Page 89
Page 90
Page 91
Page 92
Page 93
Page 94
Page 95
Page 96
Page 97
Page 98
Page 99
Page 100
Page 101
Page 102
Page 103
Page 104
Page 105
Page 106
Page 107
Page 108

x

Læknaneminn

Direct Links

If you want to link to this newspaper/magazine, please use these links:

Link to this newspaper/magazine: Læknaneminn
https://timarit.is/publication/1885

Link to this issue:

Link to this page:

Link to this article:

Please do not link directly to images or PDFs on Timarit.is as such URLs may change without warning. Please use the URLs provided above for linking to the website.