Læknaneminn - 01.04.2008, Page 20

Læknaneminn - 01.04.2008, Page 20
Umbætur í heilbrigðiskerfinu - Er einkarekstur svarið? Já, einkavæðing er svarið Sigríður Á. Andersen Héraðsdómslögmaður og 1. varaþingmaður Sjálfstæðisflokksins í Reykjavíkurkjördæmi norður Umræður um heilbrigðismál virðast oít vekja upp heitar tilfinningar. Hugleiðingum um aukna þátttöku einkaaðilaírekstriheilbrigðisþjónustu hafa gjarnan fylgt nokkur andköf. Sumir hafa þannig ekki mátt heyra minnst á neins konar einkarekstur í heilbrigðisþjónustu, hvað þá einkavæðingu. Þaðan af síður hafa þeir viljað ræða hugmyndir um slíkt. Vinstrimenn, sem hafa einsett sér að vera á móti einkaframtakinu, hvika ekki frá sannfæringu sinni um kosti ríkisreksturs í heilbrigðisþjónustu sem annarri þjónustu. Er þá engin þjónusta innan geirans undanskilin, hvorki læknisverk né ritaraþjónusta. Þessar heitu tilfinningar má því í raun rekja til varðstöðu um hugmyndafræði fremur en hagsmuni heilbrigðiskerfisins. Það er lítið gefið eftir í þeirri baráttu. Einkarekstur og einkavæðing Einkarekstur á heilbrigðissviði á sér langa sögu á íslandi. Reyndar er það svo að mörg framfaraskref í heilbrigðismálum má rekja til einkaframtaks. Einstaklingar og félagasamtök hafa haft forgöngu um stofnun og oft rekstur heilbrigðisstofnana og heilbrigðisþjónustu á ýmsum sviðum. Dvalarheimili aldraðra, endurhæfingarstöðvar og þjónusta við blinda og sjónskerta svo og tannlækningar eru dæmi um þetta frá fyrri hluta síðustu aldar. Nýrri dæmi má nefna eins og þjónustu við vægt sjónskerta, sjúkraþjálfun af ýmsum toga, líknarmeðferð og margvíslegt forvarnarstarf. Þessi þátttaka einkaaðila í heilbrigðisþjónustu hefur í gegnum árin ýmist verið án allrar aðkomu hins opinbera eða í einhvers konar samstarfi við þá þjónustu sem hið opinbera veitir, innan eða utan veggja opinberra heilbrigðisstofnana. Þessi þjónusta er nánast öll þess eðlis að óhætt er að fullyrða að íslenskt heilbrigðiskerfi væri ekki svipur hjá sjón ef hennar nyti ekki við. Þegar af þessari ástæðu er óþarfi að hrökkva við þótt nú sé rætt um aðkomu einkaaðila að rekstri í heilbrigðisþjónustu. Það er ekki rétt sem vinstrimenn hafa linnulaust haldið fram að umræða og áform hér á landi um aukna aðkomu einkaaðila að heilbrigðisþjónustu sé í reynd einkavæðing. Einkarekstur eða einkaframkvæmd er það kallað þegar boðin er út til einkaaðila þjónusta sem áður var nær alfarið á herðum hins opinbera og hið opinbera vill áfram stuðla að eða fjármagna. Með einkavæðingu er hið opinbera hins vegar að koma tilteknum rekstri í hendur einkaaðila án nokkurra skuldbindinga af þess hálfu til framtíðar. Einkavæðing er allra góðra gjalda verð og verðskuldar vissulega sess í umræðu um heilbrigðismál. Það er hins vegar ekki um það að ræða að einkavæðing hafi átt sér stað í nokkrum mæli í heilbrigðiskerfinu og ekkert bendir til þess að hún sé fyrirhuguð á næstunni. Því miður. Af hverju einkarekstur? Einkarekstur í heilbrigðisþjónustu hefur verið framkvæmdur með þeim hætti á íslandi að einkaaðilar, einn eða fleiri, selja ríkinu þjónustu sína, oft að undangegnu útboði ellegar eftir samningum ríkisins við heila starfsstétt. Það er ekki alls kostar nákvæmt sem stundum er haldið fram að einkarekstur sem slíkur spari hinu opinbera alltaf fé. Að minnsta kosti ekki til skamms tíma. Erfiðara er að meta það til lengri tíma. Útgjöld til heilbrigðismála eru eðli máls samkvæmt ekki föst fjárhæð sem einungis hækkar í takt við vísitölur launa eða neyslu. Gríðarlegar tækniframfarir ásamt vaxandi vitund og auknum kröfum almennings um bestu mögulegu þjónustu valda því að kostnaður af heilbrigðisþjónustu vex umfram önnur útgjöld. í nýútkominni skýrslu Hagstofunnar kemur fram að heildarútgjöld til heilbrigðismála hafa vaxið verulega síðasta aldarfjórðung, úr ríflega 6,4% af landsframleiðslu árið 1980 í um 9,2% af landsframleiðslu á síðasta ári. Árið 1980 voru heilbrigðisútgjöld um 41 milljarður króna á verðlagi 2007 en ríflega 117 milljarðar árið 2007. Heilbrigðisþjónustan hefur því nærri þrefaldast að magni (um 190% vöxtur) á þessu tímabili sem hlutfall af landsframleiðslu. í þessu 20 Læknaneminn
Page 1
Page 2
Page 3
Page 4
Page 5
Page 6
Page 7
Page 8
Page 9
Page 10
Page 11
Page 12
Page 13
Page 14
Page 15
Page 16
Page 17
Page 18
Page 19
Page 20
Page 21
Page 22
Page 23
Page 24
Page 25
Page 26
Page 27
Page 28
Page 29
Page 30
Page 31
Page 32
Page 33
Page 34
Page 35
Page 36
Page 37
Page 38
Page 39
Page 40
Page 41
Page 42
Page 43
Page 44
Page 45
Page 46
Page 47
Page 48
Page 49
Page 50
Page 51
Page 52
Page 53
Page 54
Page 55
Page 56
Page 57
Page 58
Page 59
Page 60
Page 61
Page 62
Page 63
Page 64
Page 65
Page 66
Page 67
Page 68
Page 69
Page 70
Page 71
Page 72
Page 73
Page 74
Page 75
Page 76
Page 77
Page 78
Page 79
Page 80
Page 81
Page 82
Page 83
Page 84
Page 85
Page 86
Page 87
Page 88
Page 89
Page 90
Page 91
Page 92
Page 93
Page 94
Page 95
Page 96
Page 97
Page 98
Page 99
Page 100
Page 101
Page 102
Page 103
Page 104
Page 105
Page 106
Page 107
Page 108

x

Læknaneminn

Direct Links

If you want to link to this newspaper/magazine, please use these links:

Link to this newspaper/magazine: Læknaneminn
https://timarit.is/publication/1885

Link to this issue:

Link to this page:

Link to this article:

Please do not link directly to images or PDFs on Timarit.is as such URLs may change without warning. Please use the URLs provided above for linking to the website.