Læknaneminn - 01.04.2008, Page 52

Læknaneminn - 01.04.2008, Page 52
Ritgerð í lyfjafræði Áhrif fæðu á frásog lyfja sem tekin eru inn um munn Berglind Kristjánsdóttir 3. árs læknanemi Tinna Arnardóttir 3. árs læknanemi Myndir: Minnkað aðgengi tetra- cyklíns eftir að fæðu hefur verið neytt. Jafnvægishvörf veikra sýra (1) og veikra basa (2). í súru umhverfi flyst jafnvægið til vinstri. Frásog er það þegar lyf flyst frá skömmtunarstað yfir í blóð. Frásogsstaðir líkamans eru margir en algengust er þó lyfjagjöf um munn. Þannig er meltingarvegurinn notaður sem frásogsstaður. Ýmislegt getur haft áhrif á frásog sameinda svo sem fituleysanleiki, jónun, stærð og sýrustig lyfs og umhverfis. Hér verður íjallað um áhrif fæðu á frásog lyfja sem tekin eru inn um munn.' Neysla fæðu getur haft áhrif á frásog lyfja í meltingarvegi og eru áhrifin mjög flókin. Bæði getur frásogið minnkað og aukist en mikilvægt er að hafa í huga að hætta er á að meðferð misheppnist ef aðgengi er verulega minnkað vegna fæðuáhrifa. Lyf sem frásogast verr eftir máltíð eru því tekin fyrir neyslu matar til þess að auka aðgengi þeirra. Það sem helst hefur áhrif eru tví- og þrígildar málmjónir, sýrustig, fita, trefjar, próteininnihald og seigja matar.'2 Tví- og þrígildar málmjónir má finna í ýmsum fæðutegundum. Þær jónir sem oftast hafa áhrif eru kalsíum (Ca2+), járn (Fe2+/Fe3+), ál (A13+) og magnesíum (Mg2+). Þar að auki er algengt að fólk taki inn járnbætiefni og sýrubindandi lyf sem eru oft hýdroxíð eða bíkarbónöt af þessum fyrrnefndu málmum. Sumar bættar matvörur innihalda einnig mikið magn þessara málmjóna og geta áhrif þeirra verið allmikil. Þetta getur valdið minni frásogun vegna málmhringsmyndunar eða aðloðunar. Málmhringsmyndun er myndun á flóka sem inniheldur málmjón og einn eða fleiri skautaðan hóp af einsameindum. Aðloðun er það fyrirbæri þegar fast efni festist við yfirborð annars efnis án samgildrar tengingar. Hvort tveggja getur valdið minna aðgengi í meltingarfærunum. Sýklalyf eru þau lyf sem þetta hefur mest áhrif á. Frásog tetrasýklíns minnkar t.a.m. mikið við neyslu á mjólkurvörum eða með inntöku járnbætiefna vegna málmhringsmyndunar (mynd l).2 Sýrustig hefur áhrif á jónun lyfjasameinda en lyf frásogast betur á ójónaða forminu. Flest lyf eru veikar sýrur en þónokkur eru veikir basar. I súru umhverfi flyst jafnvægi efnajafnanna á mynd 2 til vinstri. Frásog veikrar sýru minnkar því i basískara umhverfi því þá eykst jónaða form hennar og vatnsleysanleiki þannig að hún flæðir verr um lípíðhimnur. Þessu er öfugt farið með lyf sem eru veikir basar. Á þennan hátt getur sýrustig fæðu og það hversu mikið er seytt af magasýrum haft áhrif á frásog lyfsins. Við þetta má svo bæta að til eru lyf sem þola illa súrt umhverfi. Lækkað pH getur þannig valdið eyðileggingu þeirra og minnkuðu aðgengi.'3'5 Seigja matar er annað sem getur haft áhrif. Mörg lyf frásogast eftir endilöngum smáþörmunum en sum lyf frásogast einungis í ákveðnum hlutum þeirra. Mikil seigja getur leitt til þess að lyf sem aðallega eru frásoguð í efri hluta smágirnis fari framhjá frásogsstað sínum án þess að vera tekin upp. Hins vegar minnka þessi seigjuáhrif eftir því sem neðar dregur í smágirninu vegna þynningar fæðutuggu í auknu meltingarfæraseyti. Aðgengi þeirra lyfja sem geta frásogast hvar sem er í smágirni eru hins vegar ekki háð seigju matarins.5 1. 2. AH A + H BH+ <7+ B + H Fæðuáhrif á frásog lyíja í íjærhluta smágirnis eru talin vera minni en í nærhlutanum þar sem fæðueiningarnar eru meltar og frásogaðar á leið sinni um smágirnið. Til þess að minnka neikvæð fæðuáhrif væri því e.t.v. hægt að gefa lyf í hylkjum sem myndu losna á ákveðnum stað i meltingarveginum til þess að hámarka aðgengi þeirra. 52 Læknaneminn
Page 1
Page 2
Page 3
Page 4
Page 5
Page 6
Page 7
Page 8
Page 9
Page 10
Page 11
Page 12
Page 13
Page 14
Page 15
Page 16
Page 17
Page 18
Page 19
Page 20
Page 21
Page 22
Page 23
Page 24
Page 25
Page 26
Page 27
Page 28
Page 29
Page 30
Page 31
Page 32
Page 33
Page 34
Page 35
Page 36
Page 37
Page 38
Page 39
Page 40
Page 41
Page 42
Page 43
Page 44
Page 45
Page 46
Page 47
Page 48
Page 49
Page 50
Page 51
Page 52
Page 53
Page 54
Page 55
Page 56
Page 57
Page 58
Page 59
Page 60
Page 61
Page 62
Page 63
Page 64
Page 65
Page 66
Page 67
Page 68
Page 69
Page 70
Page 71
Page 72
Page 73
Page 74
Page 75
Page 76
Page 77
Page 78
Page 79
Page 80
Page 81
Page 82
Page 83
Page 84
Page 85
Page 86
Page 87
Page 88
Page 89
Page 90
Page 91
Page 92
Page 93
Page 94
Page 95
Page 96
Page 97
Page 98
Page 99
Page 100
Page 101
Page 102
Page 103
Page 104
Page 105
Page 106
Page 107
Page 108

x

Læknaneminn

Direct Links

If you want to link to this newspaper/magazine, please use these links:

Link to this newspaper/magazine: Læknaneminn
https://timarit.is/publication/1885

Link to this issue:

Link to this page:

Link to this article:

Please do not link directly to images or PDFs on Timarit.is as such URLs may change without warning. Please use the URLs provided above for linking to the website.