Læknaneminn - 01.04.2008, Page 72

Læknaneminn - 01.04.2008, Page 72
Valtímabiliö Kamilla Sigríður Jósefsdóttir é.árs læknanemi Þórhildur Halldórsdóttir ö.árs læknanemi Davíð Þór Þorsteinsson kandídat VALTÍMABILIÐ MITT! Þegar það var hringt í mig og ég beðin um að skrifa þessa grein reyndi ég fyrst að malda í móinn. Taldi þetta ekki vera nógu áhugaverða lesningu en lét svo undan. Ástæðan er sú að í frásögn minni er ekkert um brimbrettaferðir við strendur Nýja-Sjálands, kengúruát í Ástralíu, fílsreiðar í Nepal né sá ég litlu vannærðu börnin með útstandandi maga í Afríku. Ekki fór ég heldur á vit ævintýranna til „merkilegra“ háskóla úti í hinum stóra heimi þar sem snobb og vanvirðing gagnvart úttauguðum læknanemum er í hávegum höfð, og kem ég hér upp um eigin fáfræði og fordóma í þeim efnum. Margir samnemendur mínir gætu hins vegar skrifað greinar sem innihéldi frásagnir af þessu og þætti mér sjálfri það mjög áhugaverð lesning. En þetta skal víst vera um valtímabilið mitt sem ég eyddi á heilsugæslu á höfuðborgarsvæðinu, nánar tiltekið á Heilsugæslunni Glæsibæ. Ég á víst að tilgreina hvers vegna ég ákvað að verja valtímabilinu eins og ég gerði og hefur mér vafist tunga um tönn í þeim efnum en effir drjúga umhugsun hef ég ákveðið að leggja spilin á borðið. Val mitt byggðist ekki á brennandi áhuga mínum á heimilislækningum eða starfsemi heilsugæslunnar eins og sumir samnemendur mínir hafa haldið og hafa ákveðið fyrir mig að stefnan mín liggi í þá átt. Ég hreinlega vissi ekki og veit ekki enn hvert stefnan mín liggur og hvað ég ætla að verða þegar ég er orðin stór. Því gat ég ekki notfært mér brennandi áhuga minn á ákveðnu sviði til að hjálpa mér með hvernig valtímabilinu skyldi varið. Að fara á vit ævintýranna var að sjálfsögðu heillandi tilhugsun. Aðstæður mínar flæktu þó óneitanlega aðeins þá mynd þó svo að hægt væri að leysa þær á einhvern hátt. Gat þó ekki hugsað mér að vera án fjölskyldu minnar og varpa allri ábyrgð yfir á manninn minn á meðan ég bjargaði fílum í Nepal (eða voru það börnin í Afríku?). Að fara inn á spítala og vera þar í þrjá mánuði var eitthvað sem ég gat ekki hugsað mér í ljósi þess að ég á eftir að eyða næstu níu mánuðum þar. Svo það var fljótlega út úr myndinni. Ég fór í marga hringi með þetta. Það er skömm frá því að segja en eftir 5 f/2 árs nám og gífurlega uppbyggða gremju yfir nýju skipulag(sleys)i læknadeildar var einhvers konar „plateau“ náð í metnaðarskalanum hjá mér og var metnaðarleysi og áhugaleysi að gera út af við mig á þessum tímapunkti. Féll ég því hálfpartinn á tíma við að velja mér eitthvað. Þá komu fjölskyldubönd og klíkuskapur að íslenskum sið sér vel. Þannig er saga mín á bakvið það hvernig ég valdi að verja valtímabilinu mínu. En þá er komið að því að segja frá sjálfu valtímabilinu. Tveir læknar á heilsugæslustöðinni voru búnir að ganga með hugmynd að ákveðnu verkefni í maganum um þó nokkurt skeið. Verkefni mitt var því að útfæra það frekar og framkvæma. Verkefnið fól í sér að kanna fjölda innflytjenda sem leituðu eftir þjónustu á heilsugæslustöðinni, þjóðerni þeirra og aðkomu að stöðinni. Einnig að kanna ánægju þeirra með þjónustuna sem þeir fengu ásamt fleiri þáttum. Hafður var íslenskur samanburðarhópur til hliðsjónar. Til að byrja með þurfti ég að leita heimilda um sams konar rannsóknir sem var bara að finna í erlendum greinum- Mér til mikillar furðu er þetta alveg ókannað land hér heima þrátt fyrir gífurlega fjölgun innflytjenda síðastliðin ár. Einnig blöskraði mér stefnuleysi heilbrigðisyfirvalda í þessum málum, sem eru þó eitthvað að taka við sér. Skrifa þurfti rannsóknaráætlun og sækja um hjá Persónuvernd og Vísindasiðanefnd. Tók þetta gífurlegan tíma og var þetta mun meiri vinna en ég bjóst við, eitthvað sem fór alveg framhjá mér við 3. árs verkefnið. Fundað var einu sinni í viku með læknunum þar sem var farið yfir gang mála. Þegar öll tilskilin leyfi voru komin og allt var tilbúið fyrir gagnasöfnunina var haldinn fundur með öllu starfsfólki stöðvarinnar og verkefnið kynnt þar sem það krafðist þess að allir tækju þátt. Það var mjög gaman að sjá áhuga starfsfólksins við að taka þátt og láta þetta ganga upp og alla þá aukavinnu sem það lagði á sig við 72 Læknaneminn
Page 1
Page 2
Page 3
Page 4
Page 5
Page 6
Page 7
Page 8
Page 9
Page 10
Page 11
Page 12
Page 13
Page 14
Page 15
Page 16
Page 17
Page 18
Page 19
Page 20
Page 21
Page 22
Page 23
Page 24
Page 25
Page 26
Page 27
Page 28
Page 29
Page 30
Page 31
Page 32
Page 33
Page 34
Page 35
Page 36
Page 37
Page 38
Page 39
Page 40
Page 41
Page 42
Page 43
Page 44
Page 45
Page 46
Page 47
Page 48
Page 49
Page 50
Page 51
Page 52
Page 53
Page 54
Page 55
Page 56
Page 57
Page 58
Page 59
Page 60
Page 61
Page 62
Page 63
Page 64
Page 65
Page 66
Page 67
Page 68
Page 69
Page 70
Page 71
Page 72
Page 73
Page 74
Page 75
Page 76
Page 77
Page 78
Page 79
Page 80
Page 81
Page 82
Page 83
Page 84
Page 85
Page 86
Page 87
Page 88
Page 89
Page 90
Page 91
Page 92
Page 93
Page 94
Page 95
Page 96
Page 97
Page 98
Page 99
Page 100
Page 101
Page 102
Page 103
Page 104
Page 105
Page 106
Page 107
Page 108

x

Læknaneminn

Direct Links

If you want to link to this newspaper/magazine, please use these links:

Link to this newspaper/magazine: Læknaneminn
https://timarit.is/publication/1885

Link to this issue:

Link to this page:

Link to this article:

Please do not link directly to images or PDFs on Timarit.is as such URLs may change without warning. Please use the URLs provided above for linking to the website.