Úrval - 01.07.1966, Page 12
10
ÚRVAL
lækningum.
Paul Etrlich í Frankfurt var ham-
hleypa við lestur rannsóknar-
skýrslna. Snemma á þessari öld
komst hann yfir ritgerð hjá hita-
beltissjúkdómaskólanum í Liver-
pool (Lverpool School of tropical
medicine). í henni var skýrt frá
iífrænu arseniksambandi, nefnt at-
oxyl, sem gæti eytt í tilraunadýr-
um sýklategund, sem nefnist tryp-
anósómar, og sem valda ýmsum hita-
beltissjúkdómum, þar á meðal
svefnsýki. í langri röð af nákvæm-
um tilraunum, sem tóku sex ár og
hljóta að hafa verið mjög þreytandi
með öllum sínum vonbrigðum og
leiðindum, bjó hann til og prófaði
605 arseniksambönd. Það var 606.
sambandið, nefnt salvarsan, sem
reyndist vera mjög virkt, og var hið
fyrsta af þeim flokki lyfja, sem vér
nú nefnum „efnafræðilega tilbúin
Jyf“ (chemotherapeutica), en sal-
varsanið er sérstaklega banvænt
fyrir þessa hræðilegu sýklaplágu
mannkynsins. Uppgötvun Dalvars-
ansins leiddi til þess, að vísinda-
menn um víða veröld hófu víðtæk-
ar rannsóknir á svipuðum grund-
velli, sem aftur leiddu til uppgötv-
unar á sulfalyfjum, penicillini og
öðrum sýklaeyðandi lyfjum (anti-
biotica).
Eg skal nefna þriðja dæmið. Tveir
vísndamenn í Bandaríkjunum kom-
ust að raun um að lyf, sem nefnist
6-mercaptopurine, kom í veg fyrir
að í kanínum mynduðust svonefnd
mótefni (antibodies), þegar spýtt
var í þær framandi eggjahvítuefni.
Ungur, brezkur skurðæknir las
skýrslu þeirra. Hann vissi, að það
er einmitt myndun slíkra mótefna,
sem veldur því, að ekki tekst að
græða líffæri úr einum sjúklingi í
annan. Er hann stóð frammi fyrir
þeim vanda, að þurfa að græða nýra
í sjúklinga sína, greip hann til þess
ráðs að nota þetta lyf og önnur
skyld sambönd með þeim árangri,
sem lofar mjög góðu um aukna
möguleika í framtíðinni á vefja- og
líffæraflutningi á milli manna
(„spare part surgery“).
Hvað er nú að gerast í þeim deild-
um, sem helga sig undirstöðurann-
sóknum? Ég skal lýsa fyrir ykkur
heimsfrægri rannsóknarstofnun í
Bandaríkjunum, sem ég heimsótti
á síðastliðnu ári, en hún fæst við
grundvallarrannsóknir varðandi
krabbamein. Forstjóri hennar var í
hópi vísindamanna, sem voru braut-
ryðjendur í framleiðslu á penicilini
í stórum stíl á síðari stríðsárunum.
Með eldlegum áhuga stjórnaði hann
fríðum hóp lækna, líffræðinga,
sýklafræðnga, efna- og eðlisfræð-
inga.
í einni deildinni eru rannsökuð
sýnishorn af jarðvegi frá öllum hlut-
um heims, í leit að öllum sveppum
og gerlum sem í þeim finnast. f
sveppum, líkum þeim, sem penicill-
inið var upphaflega fengið úr, hafa
á síðustu árum fundist mótefni gegn
krabbameini, sem virðast gefa góð-
ar vonir. Sökum þess hafa slíkar
smáverur verið rannsakaðar svo
þúsundum skiftir. Sérhver ný teg-
und slíkra smávera er ræktuð í
sérstökum næringarvökva. Efnin,
sem hún framleiðir, síast út í nær-
ingarvökvann og er síðan beitt gegn
ræktuðum krabbafrumum, til þess