Úrval - 01.07.1966, Blaðsíða 37
Verðmœtar perlur hafa fundizt í ám í t.f ríkjum Bandankjanna.
GIMSTEINAR
í fersku vatni
Eftir Daniel P. Mannix
Það er flestra skoðun, að
***Je^T1 perlur myndist aðeins
/Mj í lindýrum í söltu vatni,
og eru þau venjulega
kallaðar ostrur, en eru
í rauninni fjarskyldur ættingi hinn-
ar ætu ostru í hitabeltissjónum, sem
flestir þekkja. En sérhver fiskur,
sem framleiðir perlumóður, getur
jafnframt framleitt perlur, og það
gera líka margir af þeim fiskum,
sem þrífast í fersku vatni.
Það er sjaldgæft, að veruleg
verðmæti finnist í ferskvatnsfiski,
en þó hefur það komið fyrir í 14
ríkjum, Bandaríkjanna og einnig
í Mexíkó og Vestur-Indíum. Það
finnast perlur fyrir 150 þús. doll-
ara virði í Bandaríkjunum árlega.
Þau hjónin Hanauer, sem reka
American Gem and Pearl Co. í New
York hafa sérþekingu á þessu sviði.
Þau hafa verið í þessum perluvið-
skiptum um 50 ára skeið. Þó að
þau séu orðin gömul, fara þau á ári
hverju til Arkansas, Alabama, Ge-
orgia og Tennessee og elta uppi all-
ar sögusagnir um perlur á þessum
slóðum. Árlegur fengur þeirra í
þessum leiðangrum er frá 10—12
þús. dollurum að verðmæti í perlum.
Þó er það svo, að það er varla einn
af hverjum þúsund skelfiskum, sem
ber í sér perluefni og síðan aftur
ekki nema einn af hverjum þús-
und þeirra, sem framleiðir raun-
verulegar perlur.
Eitt af frumskilyrðum perluveiða
er að þekkja fólkið á staðnum. í
Arkansas fréttu þau Hanauerhjón-
in af gömlum manni, sem byggi
langt inn í Ozark og hefði hann
fundið fullkomna perlu að lögun
á stærð við baun. Þau hjónin fóru
umsvifalaust á stúfana og fundu
karlinn nær dauða en lífi af sulti
hjá perlunni, sem hann harðneitaði
að láta af hendi fyrir minna en
300 dollara.
Hjónin vildu hana ekki hvorki
fyrir þá upphæð né aðra, því að
hún var ekki túskildingsvirði.
TRUB
35