Úrval - 01.07.1966, Blaðsíða 29
Þegar árið var liðið, hafði faðir-
in fengið 12 reikninga fyrir vögg-
unni, og síðan fylgdi, í árslokin,
krafa frá innheimtufirma um að
börga strax, ellegar skyldi hann
hafa verra af.
Nú reiddist faðir barnsins og
skrifaði harðort ábyrgðarbréf, og
sendi það framkvæmdastjóra verzl-
unarinnar sjálfum, og hótaði máls-
• sókn, þar sem þessar rukkanir hefðu
rúið hann lánstrausti og verið hon-
um til mikils ama.
Þetta bar árangur, og hann fékk
nokkrum dögum seinna mikið af-
sökunarbréf. Það virðist standa
þannig á þessum mistökum, að sá
sem stimplað hefur inn á reiknings-
heilann hefði látið X í ranga skúffu.
Nú gat heilinn, sem skrifaði út
reikningana ekki lesið bréfin frá
föður barnsins, hann var þegar til
átti að taka ekki annað en vél, sem
skildi ekki annað tungumál en göt-
in á IBM spjöldunum.
Slík atvik, sem þessi eru síður
en svo fátíð. Oft er letruð á vél-
gerða reikninga, ósk um, að fólk
sendi ekki bréf með greiðslunni,
heldur í sérstöku umslagi og oft
til annars heimilisfangs.
Vélin getur ekki lesið leiðréti-
ingarnar en heldur áfram að unga
út sama reikningnum með sömu
skekkjunni.
Það var 22 október 1965, að pró-
fessor nokkur pantaði þrjár bækur
frá bókaklúbb einum, með þeim
árangri að hann fékk eina bók
senda og hana skakkt afgreidda.
Réttu bækurnar bárust honum ekki
fyrr en mánuði seinna, og komu
honum þá ekki lengur að notum.
En vélheilinn hélt áfram að senda
reikning fyrir misafgreiddu bók-
inni, enda þótt hún væri löngu
endursend. Einn daginn komu fjór-
ar rukkunartilkynningar. Prófess-
orinn skrifaði vélheilanum svo-
hljóðandi bréf: Hr. vélheili, ég
skulda þér ekki neitt.
Þetta bréf komst í hendur gjald-
kera fyrirtækisins, sem skrifaði um
hæl afsökunarbréf, og bauðst til
að senda þrjár bækur prófessornum
að kostnaðarlausu, en hann bætti
við: — ég sendi þær með leynd, svo
að vélheilinn komist ekki að þessu,
því að við erum að reyna að róa
hann og fá hann til að gleyma yður.
Enda þótt máske megi segja að
skekkjurnar séu hlutfallslega fáar
miðað við þau ókjör, sem vélheil-
arnir senda frá sér, þá hefur nærri