Úrval - 01.07.1966, Blaðsíða 17
HAGFRÆÐl BENSÍNGEYMISINS
15
ir þessir tveir megineiginleikar
góðs bensíns, þegar olíufélögin eru
að auglýsa bensín sitt, heldur tína
þau ýmsa aðra kosti til.
Þau auglýsa bensín, sem haldi
bensíngjöfinni hreinni, verji blönd-
unginn frosti, haldi kveikjunni í
lagi, firri eyðingu málmsins, og eyði
sora í bensíndunknum og fleira og
fleira af því tagi, sem allt geta auð-
vitað verið kostir, þó að hinir tveir
þættirnir, sem fyrst voru nefndir,
uppgufunarhraðinn og okteinmagn-
ið skipti langmestu máli.
Það, sem auðvitað hver og einn
bílstjóri leggur höfuðáherzlu á er
að komast sem lengsta vegalengd
á sem minnstu bensíni.
En þó að gerð bensínsins hafi
þarna mikið að segja, þá hefur bíl-
stjórinn sjálfur enn meiri áhrif á
þetta atriði.
Ilraður akstur.
Maður, sem lullar áfram á 50 km.
hraða fær meira fyrir sinn bensín
lítra en hinn, sem ekur sömu vega-
lengd á 100 km. hraða.
Orsökin liggur í hinni geysiauknu
loftmótstöðu vð hraðari aksturinn.
í dæminu hér á undan, myndi síð-
ari bíllinn og sá sem hraðar var ek-
ið, þurfa 5 sinnum meira afl til
að yfirvinna loftmótstöðuna en hinn.
Ef miðað er við bíl, sem eyðir, til
dæmis tíu lítrum á hundraðið, þá
eyðir hann 14 lítrum með hraðari
akstrinum eða 40% meira.
Bæjarakstur.
Það þarf auðvitað ekki heldur að
segja það vönum bílstjóra, hversu
margfalt meira magn eyðist við
akstur í bæ þar sem alltaf þarf að
vera að breyta gangi vélarinnar
heldur en á vegum úti. Ef miðað er
við sama aksturshraða, þá getur
þessi munur orðið 37% eða svo.
Rykkjóttur akstur.
Sá sem venur sig á að aka hrana-
lega af stað og síðan eins og fjand-
inn sé á hælunum á honum og snar-
hemlar svo, þegar hann stanzar, eyð-
ir að minnsta kosti fjórðungi meira
af bensíni en hinn, sem ekur jafnt.
Þeir hjá Mobilfyrirtækinu segja að
þessi munur sé enn meiri, og allt
að 35%.
Það er full ástæða fyrir hvern og
einn til að athuga, hvort hann er
með rétta gerð bensíns á bílnum
sínum, en þó athuga enn vandlegar,
hvort akstur hans sjálfs miðar að
því að spara bensínið.
POPLISTIN:
Það krefst stöðugrar æfingar að komast áfram á sviði poptónlistar-
innar. Maður verður stöðugt að halda áfram að greiða hárið, þangað
til Það er nákvæmlega eins og það á að vera.
Bobby Goldsboro