Úrval - 01.07.1966, Qupperneq 65

Úrval - 01.07.1966, Qupperneq 65
Á BOTNI PEARL HARBOUR 63 í vatni. Það var ekki langur tími liðinn síðan lúðurinn hafði kallað okkur til orrustu. Úrið mitt gekk enn og mér skildist að það hefði ekki tekið skipið nema 15 mínútur að sökkva. Tíminn sniglaðist áfram. Vatnið steig en loftið hvarf. Það leitaði um smugur eitthvað út í skipið. Líkamir hinna drukknuðu félaga okkar möruðu í vatnsskorpunni og við gátum dröslað þeim á bak við brak og höfðum sjálfsagt allir hugs- að sömu hugsunina, að það yrði ekki langt þar til við værum þar einnig hjá þeim. Sjálfsagt hafa flestir okkar beðið sömu þöglu bænarinnar og ég: — Guð, bjargaðu okkur héðan. Olíubrákin á vatninu og fýlan af henni olli okkur ógleði. Einn og einn maður var að hverfa á brott til að leita fyrir sér um útgöngu — leið, en enginn þeirra kom aftur. Hér átti enginn neitt eftir nema sitt eigið líf, og það var eðlilegt, að menn vildu ráða hverra ráða þeir leituðu til að bjarga því. Við höfðum ekki verið þarna lengi, þegar við vorum ekki orðn- ir nema tuttugu talsins, en ekki varð vart við nokkurn æsing eða hræðslu, og stundirnar liðu. Vatn- ið steig þumlung eftir þumlung og það voru dýrmætir þumlungar. Mér varð hugsað heim og til æskudaga minna og þess fólks, sem ég hafði kynnzt. Ég minntist langra sumar- daga við önn og strit á búgarð- inum, en samt vannst tími til að skemmta sér við sund og veiðar og drauma. Jafnvel hér í myrkrinu og dauðanum töfruðu minningarnar bros fram á varir mínar. Fjöl- skylda mín gaf mér styrk. Það var meir en ár síðan ég h'afði séð hana, og þau höfðu öll staðið úti fyrir dyrum og veifað mér í kveðju- skyni, þegar ég hélt úr hlaði. Hvern- ig myndu þau taka fréttinni um dauða minn? Auðvitað myndu þau syrgja mig, en þó með örlitlu stolti. Einn mannanna mundi nú allt í einu eftir, að það átti að vera neyðarlúga hér einhvers staðar. „Hún er þröng sagði hann og ligg- ur alla leið niður á aðaldekkið um þrjátíu fet. Við skulum reyna. Ég reyndi að gera mér grein fyrir, hvar þessi lúga myndi vera, en slíkt er erfitt, þegar maður snýr öfugt við það sem á að vera. Það var ekki líklegt, að nokkur okkar kæmist alla þessa leið lifandi. Fyrst yrði að fara eftir rennunni og nið- ur á aðaldekkið, um þrjátíu feta leið, og síðan yrði að fara yfir dekkið og upp á yfirborðið. Það var ekki líklegt, að nokkur maður gæti haldið niðri í sér andanum allan þennan veg. Við fundum lúguna undir vatninu og hún virtist nákvæmlega nógu víð fyrir mann að skríða í gegn. Við útbjuggum einskonar líflínu úr skyrtunum okkar, 1 því augna- miði að hann gæti fikað sig eftir henni til baka. Maðurinn, sem fyrst- ur hafði látið sér detta þessa und- ankomuleið í hug, fór af stað, en hann kom ekki aftur, og enginn þeirra sem á eftir honum fóru. Ég ákvað að bíða, enda þótt ég vissi ekki hvað réði þeirri ákvörðun minni. Ég var ekki hræddur en það
Qupperneq 1
Qupperneq 2
Qupperneq 3
Qupperneq 4
Qupperneq 5
Qupperneq 6
Qupperneq 7
Qupperneq 8
Qupperneq 9
Qupperneq 10
Qupperneq 11
Qupperneq 12
Qupperneq 13
Qupperneq 14
Qupperneq 15
Qupperneq 16
Qupperneq 17
Qupperneq 18
Qupperneq 19
Qupperneq 20
Qupperneq 21
Qupperneq 22
Qupperneq 23
Qupperneq 24
Qupperneq 25
Qupperneq 26
Qupperneq 27
Qupperneq 28
Qupperneq 29
Qupperneq 30
Qupperneq 31
Qupperneq 32
Qupperneq 33
Qupperneq 34
Qupperneq 35
Qupperneq 36
Qupperneq 37
Qupperneq 38
Qupperneq 39
Qupperneq 40
Qupperneq 41
Qupperneq 42
Qupperneq 43
Qupperneq 44
Qupperneq 45
Qupperneq 46
Qupperneq 47
Qupperneq 48
Qupperneq 49
Qupperneq 50
Qupperneq 51
Qupperneq 52
Qupperneq 53
Qupperneq 54
Qupperneq 55
Qupperneq 56
Qupperneq 57
Qupperneq 58
Qupperneq 59
Qupperneq 60
Qupperneq 61
Qupperneq 62
Qupperneq 63
Qupperneq 64
Qupperneq 65
Qupperneq 66
Qupperneq 67
Qupperneq 68
Qupperneq 69
Qupperneq 70
Qupperneq 71
Qupperneq 72
Qupperneq 73
Qupperneq 74
Qupperneq 75
Qupperneq 76
Qupperneq 77
Qupperneq 78
Qupperneq 79
Qupperneq 80
Qupperneq 81
Qupperneq 82
Qupperneq 83
Qupperneq 84
Qupperneq 85
Qupperneq 86
Qupperneq 87
Qupperneq 88
Qupperneq 89
Qupperneq 90
Qupperneq 91
Qupperneq 92
Qupperneq 93
Qupperneq 94
Qupperneq 95
Qupperneq 96
Qupperneq 97
Qupperneq 98
Qupperneq 99
Qupperneq 100
Qupperneq 101
Qupperneq 102
Qupperneq 103
Qupperneq 104
Qupperneq 105
Qupperneq 106
Qupperneq 107
Qupperneq 108
Qupperneq 109
Qupperneq 110
Qupperneq 111
Qupperneq 112
Qupperneq 113
Qupperneq 114
Qupperneq 115
Qupperneq 116
Qupperneq 117
Qupperneq 118
Qupperneq 119
Qupperneq 120
Qupperneq 121
Qupperneq 122
Qupperneq 123
Qupperneq 124
Qupperneq 125
Qupperneq 126
Qupperneq 127
Qupperneq 128
Qupperneq 129
Qupperneq 130
Qupperneq 131
Qupperneq 132

x

Úrval

Direct Links

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Úrval
https://timarit.is/publication/1841

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.