Úrval - 01.07.1966, Page 77

Úrval - 01.07.1966, Page 77
LAND FYRIR STAFNI 75 ^EWHp að var ekki í fyrsta sfcipti, sem Tahitibúar ; sáu hvíta menn, þegar James Cook, skipstjóri, lf* sigldi skipi sínu Endea- vour (Tilraunin) inn á Matavai fló- ann 13. apríl 1769. Bougainville á skipinu La Boudeuse hafði verið þar árið áður, þó að líklega væri það ekki aiveg á sama stað á strand- lengjunni. Wallis á Höfrungnum hafði einnig verið þarna á ferð á undan Cook, eða árið 1767, og loks hafði Quiros verið á þessum slóðum 1606, en það ferðalag var nú öllum gleymt. Bougainville hafði dvalið aðeins þrettán daga við eyna en Waliis fimm vikur. Cook aftur á móti var þarna þrjá mánuði, og hann bjóst um í landi og gerði ýms- ar loftfræðilegar athuganir ásamt því að kortleggja strandlengjuna. Landtaka Cooks á Tahiti var einn megintilgangur leiðangurs hans. Þegar Endeavour siglir að landi á Tahiti er einangrun Kyrrahafs- eyjanna rofin að fullu, og eftir það var eyjarskeggjum það engin ný- lunda að sjá skip sigla að landi. Cook sjálfur sigldi þangað þríveg- is, og í kjölfar hans Spánverjar og Bligh á Bounty og þá enskir trú- boðar og Nantucket sel- og hval- fangarar, sem leituðu hafna á þess- um slóðum til öflunar „birgða", á leiðinni suður á veiðislóðirnar. Loks komu svo Frakkarnir. Allir þessir gestir, sem kannski væri samt réttara að kalla boðflenn- ur, lögðu allir einn af öðrum, sinn sérstaka skerf til þeirrar breytinga, sem varð á öllum lifnaðarháttum Tahitibúa upp frá því að fyrstu skipin vörpuðu akkerum á logn- kyrru lóninu. Þeim bárust vopn, sjúkdómar og vínandi, og einnig framandi lög og siðgæðishugmyndir, sem ekkert er- indi áttu inn í hið kyrrláta náttúru- iíf, sem eyjarskeggjar höfðu lifað frá ómunatíð. Það er að vísu rétt, að Evrópu- menn færðu eyjarskeggjum lyf, við ýmsum sjúkdómum og drepsóttum og þar með lækna, presta, yfirvöld og lögreglu, en Tahitibúar höfðu komizt af til þessa án þessa fólks og ef þeir hefðu verið látnir í friði, hefðu þeir sjálfsagt getað lifað án þess áfram um allan aldur. Máske hefur hamingjan í lífi eyjarskeggja lagt frá landi um leið og fyrstu seglin birtust við sjóndeildarhring- inn. Auðvitað gerði hvorki Cook né eyjarskeggjar sér nokkra grein fyr- ir þessu, né litu hlutina í slíku ljósi, sem við getum nú varpað á þá. Cook var þarna á snærum brezka flotamálaráðuneytisins, og hafði enga löngun til að vinna þessu fólki nokkuð tjón, miklu fremur vildi hann efna til vináttu við það og hafa eins lítil áhrif á siði þess og venjur og kostur var á. Tahitibú- arnir gátu ekki með nokkru móti haldið forvitni sinni í skefjum, og tóku opnum örmum þessum fram- andi mönnum á stórum seglskipum í afkáralegum fötum með glysvarn- ing sinn og töfratæki. Þeir myndu hafa heilsað Endea- vour af forvitnilegri gleði, þó að þeir hefðu vitað, hvað beið þeirra. Þessi fyrstu harkalegu kynni hinna ljósleitu sjómanna og hinna yfir-
Page 1
Page 2
Page 3
Page 4
Page 5
Page 6
Page 7
Page 8
Page 9
Page 10
Page 11
Page 12
Page 13
Page 14
Page 15
Page 16
Page 17
Page 18
Page 19
Page 20
Page 21
Page 22
Page 23
Page 24
Page 25
Page 26
Page 27
Page 28
Page 29
Page 30
Page 31
Page 32
Page 33
Page 34
Page 35
Page 36
Page 37
Page 38
Page 39
Page 40
Page 41
Page 42
Page 43
Page 44
Page 45
Page 46
Page 47
Page 48
Page 49
Page 50
Page 51
Page 52
Page 53
Page 54
Page 55
Page 56
Page 57
Page 58
Page 59
Page 60
Page 61
Page 62
Page 63
Page 64
Page 65
Page 66
Page 67
Page 68
Page 69
Page 70
Page 71
Page 72
Page 73
Page 74
Page 75
Page 76
Page 77
Page 78
Page 79
Page 80
Page 81
Page 82
Page 83
Page 84
Page 85
Page 86
Page 87
Page 88
Page 89
Page 90
Page 91
Page 92
Page 93
Page 94
Page 95
Page 96
Page 97
Page 98
Page 99
Page 100
Page 101
Page 102
Page 103
Page 104
Page 105
Page 106
Page 107
Page 108
Page 109
Page 110
Page 111
Page 112
Page 113
Page 114
Page 115
Page 116
Page 117
Page 118
Page 119
Page 120
Page 121
Page 122
Page 123
Page 124
Page 125
Page 126
Page 127
Page 128
Page 129
Page 130
Page 131
Page 132

x

Úrval

Direct Links

If you want to link to this newspaper/magazine, please use these links:

Link to this newspaper/magazine: Úrval
https://timarit.is/publication/1841

Link to this issue:

Link to this page:

Link to this article:

Please do not link directly to images or PDFs on Timarit.is as such URLs may change without warning. Please use the URLs provided above for linking to the website.