Úrval - 01.07.1966, Blaðsíða 128
Einu sinni litu menn á það sem
móðgun, ef þeim var sent vél-
ritað bréf.
ÞAÐ TEKUR
f Á TAUGARNAR
AÐ VÉLRITA
éi.rixaeinn á erfiða ævi,
og ekki léttari en
námuverkamaðurinn,
hvað líkamlegt erfiði
snertir.
Þetta er nú nýjasta niðurstaða
lækna og vísindamanna, sem feng-
izt hafa við að rannsaka þetta efni.
Það virðist, sem það sé vissulega
einstaklega erfitt starf að lemja rit-
vélarborð sex til átta stundir á dag,
og erfiðið liggur mest í því, að vél-
ritarinn lemur of fast.
Aldur, leikni, hraði og æfing
breytir því ekki, að hver einasti
vélritari lemur stafalyklana of fast,
og að jafnaði með 13 til 15 punda
þunga enda þótt sannað sé, að það
þarf ekki nema um 400 gramma
þungan áslátt til að stafurinn mark-
ist nægjanlega vel á pappírinn.
Vélritari að atvinnu slær að jafn-
aði 14.754.000 áslætti á ári hverju,
segja hinir vísu menn og er þá
allt talið, kommur og önnur merki,
skiptingar og hvað eina. Ef reiknað
er með 240 vinnudögum á árinu,
þá verða þetta 61 þús. áslættir
daglega.
Með þeim ásláttarfjölda ferðast
fingur vélritarans 27 km daglega
um leturborðið og er því engin
furða, þó að vélritarinn sé oft
þreyttur eftir daginn. Þegar vinnu-
árið væri liðið, hefðu fingur manns-
ins ferðazt álíka leið og yfir Atl-
antshafið, frá London til Washing-
ton.
Það er vandgert að minnka þessa
orkueyðslu, því að öllum, sem vél-
rita hættir til að slá allt of fast.
Eina lausnin virðist vera sú, að
taka rafmagnsritvélar sem mest í
notkun, eins og reyndar flestar
skrifstofur eru að gera í dag.
Rafmagnsritvélin þarf ekki nema
56 gramma ásláttarþunga og þar við
bætist, að vagninn er ekki hreyfð-
ur með allri hendinni í lok hverrar
línu, eins og á venjulegum ritvél—
um, heldur er aðeins stutt á hnapp.
Með því að margfalda saman vega-
lengdina sem fingurnir fara og á-
sláttarþungann á hvorutveggja vél-
unum, kemur í ljós, að vélritarinn
eyðir tuttugu og tveimur sinnum
meiri orku í vinnu sína á venju-
lega ritvél heldur en á rafmagns-
ritvél.
Og það er ekki aðeins það að vél-
ritarinn eyði þetta miklu minni
orku við rafmagnsritvélina, heldur
eykst hraðinn og villum fækkar.
Við verðum samt að sætta okkur
við það, að á meðan rafmagnsrit-
vélar lækka ekki meira í verði en
126
ÚRVAL