Úrval - 01.11.1966, Page 14
12
ÚRVAL
afturendann, hristi hausinn og reis
síðan upp til fulls. Sumir birnir réð-
ust að því búnu beint á vísinda-
ménnina, en þessi leit bara á okkur.
Svipur hans sýndi, að hann væri
dauðleiður á þessari vitleysu, og
svo flýtti hann sér burt.
I rannsóknarstofunni í Gjárþorpi
lágu hrammför, kort og útvarps-
sendistöðvar í löngum röðum á
borðunum. Á veggjunum héngu
mörg kort, og átti hver björn sitt
sérstaka kort. Þegar vísindamenn-
irnir miðuðu út birnina til þess að
ná útvarpssendimerkjum frá þeim,
var staðsetning þeirra jafnóðum
merkt inn á kortið. Smám saman
fundu þeir þannig ,,landareign“
hvers bjarnar. ,,Landareign“ sumra
var stór eða allt að 14 mílur á
lengd og 4 mílur á breidd, en hjörn
nr. 40 þurfti aðeins .5x3 mílna stórt
svæði til þess að afla sér nægilegs
ætis á og tryggja sér næga svefn-
staði.
Þegar komið var fram á árið 1965,
voru Craigheadbræðurnir komnir
langt áleiðis með að afla sér skiln-
ings á leyndardómum þess tímabils
í lífi bjarnanna, sem fer jafnan á
undan vetrardvala þeirra. Þeir vissu
nú, að birnir gengu allir til náða
samtímis, en samt aldrei á sama
mánaðardegi þau árin, sem rann-
sókn þessi náði yfir. Árið 1961 var
það þ. 21,—22. október, árið 1963 þ.
5. nóvember og árið 1965 þ. 11.
nóvember. Og það sama gilti um
veðrið þessa daga. Þá hafði verið
stormur, kuldi og lágur loftþrýst-
ingur.
Híðin voru hugvitsamlega valin.
Sum voru í bröttum brekkum, sem
gátu reynzt mönnum dauðhættuleg-
ar, þegar snjórinn hafði breiðzt
yfir allt. Sum voru utan í gjár-
veggjum. Öll voru þau í brekkum
móti norðri, sem ekki þiðnaði, þótt
hlýrri kaflar kæmu stöku sinnum
stund og stund. Öll híðin höfðu
birnirnir sjálfir grafið við trjárætur
og undir þeim. Ekkert híði var not-
að nema einn vetur.
Öll híðin voru fóðruð innan með
grenigreinum, sem er bezta ein-
angrunarefnið á þessum slóðum.
Greinar þessar slitu birnir af trján-
um báru þær í kjaftinum til híðis-
ins. Svo virtist sem þungaðar birn-
ur græfu sér dýpri híði og fóðruðu
þau en betur en ófrjóar birnur og
karldýrin. Húnarnir sem getnir eru
í júní, fæðast í desember, og hugs-
anlegt er, að hin syfjaða móðir
blundi jafnvel, meðan á því stendur.
Tími til þess að leggjast í vetrar-
dvala.
Birnirnir vita, þegar þessi dagur
er í nánd, og útbúa híði sitt mörgum
vikum áður en hríðarbylurinn kem-
ur, sem er þeim vísbending um að
leggjast í vetrardvala. Svo bíða þeir
dags þessa.
Síðasta haust þessarar rannsóknar
veittu óvejuleg veðurskilyrði ein-
mitt nokkur svör við spurningum
sem snerust um dag þennan, þ.e.
hvað það væri, sem kæmi öllum
björnunum til þess að leggjast í
vetrardvala samtímis.
Hin árin hafði haustið ætíð nálg-
azt hægt og hægt. Það hafði jafnan
snjóað, síðan þiðnað og kuldinn
svo aukizt smátt og smátt, þangað
til mikla kulda- og óveðurskastið
Lom. En þ. 15. september þetta