Úrval - 01.11.1966, Page 76
74
ÚRVAL
í byrjun desember, veit ég ekki,
hvers konar hvíld ég fékk þann sér-
staka mánaðardag. Líklega hef ég
þá verið að setja niður í ferðatösk-
ur til þess að komast af stað til
skips“. Ernest virðist skyndilega
finna til í bakinu. Hann teygði hand-
legginn aftur fyrir bak og nuddaði
það.
„Hvernig líður þér, Papa? Ég
meina, sko, hvernig þér líði í raun
og veru.“
„Já, við skulum líta á sönnunar-
gögnin.“ Hann gekk í áttina til bað-
herbergisins, og ég elti hann. Á
borði við dyrnar var stór flaska af
nuddalkoholi. Ernest baðaði sig
sjaldan í vatni. Hann kaus heldur að
þvo sér upp úr alkoholi með þvotta-
svampi. Á öðru borði úti í horni, á
milli baðkersins og handlaugarinnar,
voru fjölmörg glös með þvagi í.
Ernest tók eitt þeirra, lyfti því upp
og skoðaði innihald þess við birt-
una frá glugganum. „Gat ekki piss-
að í tvo daga, vegna þess að ég var
stíflaður einhvers staðar með frumu-
efni úr nýrunum. Loks tókst mér að
koma því úr mér. Líttu á þetta
fjandans sull. Þú getur séð einhvers-
konar agnir fljótandi í því, sem líkj-
ast einna helzt fjaðratannstönglum.
Og liturinn, maður. Ég hræðist hann.
Sveskjusafi. Læknirinn á skipinu
Með Castro skömmu eftir valdatöku hans.